Morgunblaðið - 23.11.2009, Síða 27

Morgunblaðið - 23.11.2009, Síða 27
HLJÓMSVEITIN Dikta hélt útgáfutónleika á Nasa á fimmtudaginn vegna nýútkominnar plötu sinnar, Get it Together. Er það þriðja plata sveitarinnar, sem hefur eignast vænan aðdáendahóp í gegnum tíðina eins og sást á fullu húsi á tónleikunum. Var Diktumönnum fagnað ákaft að hverju lagi loknu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Dæmalaus Dikta Aðdáendur Tónleikagestir voru augljóslega kátir. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2009 Sýnd kl. 7 og 10 (POWERSÝNING) Sýnd kl. 8 og 10 „Fantagóð hrollvekja sem er meðal þeirra bestu síðuastu ár“ VJV - Fréttablaðið HHHH -Þ.Þ., DV HHHH „... í heildina er myndin fantagóð og vel gerð...góð tilbreyting“ -H.S., MBL POWERSÝNINGÁ STÆRSTA DIGITALTJALDI LANDSINSKL. 10:00 Sýnd kl. 6 fjölskyldudagar Sýnd kl. 6, 8 og 10 HHHH „Taugatrekkjandi og vægast sagt óþægileg” T.V. - Kvikmyndir.is 34.000 MANNS! SUMIR DAGAR... EIN VINSÆLASTA MYND ÁRSINS! 650kr. SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND ÚT NÓVEMBER SÖKUM VINSÆLDA! SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUMSÝND Í SMÁRABÍÓI með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI A Serious Man Í Í I HHHHH -Empire 85% af 100 á Rottentomatoes! HHH „Vel gert og sannfærandi jóladrama sem minnir á það sem mestu máli skiptir“ -Dr. Gunni, FBL HHHH „Myndin er afburðavel gerð og kærkomin viðbót í íslenska kvikmyndasögu” H.S., MBL Meistarar svarta húmorsins, Coen-bræður er mættir aftur með frábært meistarverk. Skylduáhorf fyrir unnendur góðar kvikmynda! „Á eftir að verða klassísk jólamynd.” - Ómar Ragnarsson „Frábær íslensk bíómynd!!” - Margrét Hugrún Gústavsdóttir, Eyjan.is HHH “…með ævintýrabjarma, verk sem byrjar í myrkrinu en lýkur í ljósinu og voninni”. - ÓHT, Rás 2 Love Happens kl. 8 - 10:30 LEYFÐ This is It kl. 8 LEYFÐ 2012 kl. 4:45 - 8 - 10:30 B.i.10 ára Zombieland kl. 10 B.i.16 ára 2012 kl. 4:45 - 8 Lúxus Desember kl. 8 B.i.10 ára FRÁ LEIKSTJÓRA INDEPENDENCE DAY OG THE DAY AFTER TOMORROW STÆRSTA FRUMSÝNING ÁRSINS! „2012 er Hollywood-rússíbani eins og þeir gerast skemmtileg- astir! Orð frá því ekki lýst hvað stórslysasenurnar eru öflugar.” T.V. - Kvikmyndir.is Stórslysamynd eins og þær gerast bestar. V.J.V - FBL „...þegar líður á verður spennan þrælmögnuð og brellurnar gerast ekki flottari“ „2012 er brellumynd fyrir augað og fín afþreying sem slík“ S.V. - MBL VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI 25.000 MANNS Á 11 DÖGUM! Þú færð 5% endurgreitt í Smárabíó 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á -bara lúxus Sími 553 2075 Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum www.laugarasbio.isKreditkorti tengdu Aukakrónum! Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is ÞAÐ vakti nokkra athygli þegar sendiráð Ísland í Wash- ington hætti við sýningu á heimildarmyndinni A Name is a Name eftir Sigurjón Einarsson. Fjallar myndin um deilu Makedóníu og Grikklands, en grísk stjórnvöld hafa ekki viljað viðurkenna rétt Makedóníu til nafns síns þar sem í Grikklandi er hérað með sama nafni. Sigurjón segir ákvörðun sendiráðsins hafa komið sér verulega á óvart. „Á Íslandi hef ég alltaf mætt skilningi á málefnum smáþjóða og þjóðarbrota. Mér hefur alltaf fundist það partur af íslensku þjóðarsálinni að styðja við smáþjóðir í baráttunni við óréttlæti af ýmsum toga. Þetta atvik nú finnst mér bera merki þess að við erum í ákveðnum hlekkjum eftir allt það sem gengið hefur yfir okkur undanfarið og þurfum að taka meira tillit til stærri þjóða sem virðast hafa á okkur ákveðið tang- arhald.“ Segir hann að þegar ákveðið var að aflýsa sýningunni hafi hann fengið heldur loðin svör frá sendiráðinu og það hafi ekki verið fyrr en fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðu- neytisins tjáði sig um málið sem það hafi skýrst. Í sam- tali við Morgunblaðið þann 19. nóvember sagði Unnur Gunnarsdóttir að þegar menn hafi gert sér grein fyrir því að með því að sýna myndina væri hægt að líta svo á að Íslendingar væru að blanda sér í nafnadeilu ríkjanna hafi verið ákveðið að hætta við. „Öllum var ljóst um hvað myndin fjallaði og kom það fram í boðsbréfi sem sent var frá sendiráðinu svo það hefði ekki átt að koma flatt upp á neinn,“ segir Sigurjón. Bleyðulegt „Ég er skúffaður yfir því að yfirvöld á Íslandi þori ekki að koma við þessa deilu og þykir mér frekar bleyðu- legt að geta ekki sýnt heimildarkvikmynd af ótta við að styggja ríkisstjórn annarrar þjóðar.“ Segist Sigurjón viss um að þrýstingur hafi komið frá grískum yfirvöld- um vegna sýningarinnar. „Hefði ekki komið alvarleg við- vörun að utan held ég ekki að sendiráðið eða ráðuneytið hefði hopað. Ég veit ekki hvernig af þessari viðvörun var staðið, eða hver sem átti í hlut, en í gegnum vinnu mína a þessari mynd hef ég því miður komist að því að í Grikk- landi eru ákveðin öfl sem tilbúin eru að beita öllum brögðum í þessari nafnadeilu.“ Hætt við sýningu á heimildar- mynd um nafnadeilu Makedóníu og Grikklands í sendiráði Bleyðuleg framkoma yfirvalda Kvikmyndagerðarmaður Sigurjón Einarsson er skúff- aður yfir því að myndin skuli ekki vera sýnd. Myndina ákvað Sigurjón að gera eftir að hafa heim- sótt Makedóníu árið 2007. „Ég hef áður gert nokkrar heimildarmyndir um málefni smáþjóða og í Make- dóníu ræddi ég við fjölda fólks um nafnadeiluna. Ég vissi um hana fyrir, en gerði mér þarna grein fyrir því að þetta snýst um meira en bara nafnið. Deilan snýst um sögu og menningu Makedónsku og Grísku þjóð- arinna, og er Makedóníu haldið í gíslingu vegna þess. Beita Grikkir sér gegn inngögnu landsins í alþjóða- samtök eins og NATO og ESB vegna deilunnar.“ Ætlaði Sigurjón að klára myndina á um fjórum málum, en verkefnið reyndist umfangsmeira en svo. „Ég fór sex eða sjö sinnum til Makedóníu og ferðað- ist um landið þvert og endilangt. Tók ég viðtöl við ríf- lega fjörtíu manns, enda er ekki hægt að skauta létt yfir deiluna.“ Ekki hægt að skauta létt yfir efnið http://anameisaname.com/

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.