Morgunblaðið - 23.11.2009, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2009
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
MICHAEL BAY
KEMUR HÖRKUSPENNANDI
MYND Í ANDA SEVEN
4 FÓRNARLÖMB! 4 LEYNDARMÁL!
SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND
MEÐ FRÁBÆRUM LEIKURUM
SÝNDÍÁLFABAKKAOGSELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA
OG KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR EVENT HORIZON
ÞETTA SÖGÐU LESENDUR Á KVIKMYNDIR.IS
“FANTA GÓÐ MYND MÆLI MEÐ HENNI”
“MEGASNILLD. FÍLAÐI HANA Í BOTN.”
“SNILLDAR SCI FI”
HHH
“HRÖÐ, SPENNANDI... OG SNARKLIKKUÐ MYND
FRÁ A-Ö... EKTA AFÞREYINGARBÍÓ!”
T.V - KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
Nia Vardalos,
stelpan úr "My
big fat greek
wedding" er
loksins komin
til Grikklands
í frábærri
rómantískri
gamanmynd.
SÝND ÍKRINGLUNNISTRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 8 7
2012 kl. 8 - 10:10 10
COUPLES RETREAT kl. 10:55 12
A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl. 6 7
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 8 7
ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN... kl. 6 L
HORSEMEN kl. 8 16
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 8 7
2012 kl. 8 - 10:10 10
THE INFORMANT kl. 11 L
Guðfræði trúðsins er, sýnistmér, guðfræði hins flýj-andi manns sem hefur ver-ið hrakinn af braut góðra
viðmiða inn í eyðimörk grimmdar og
myrkurs. Þetta er guðfræði þess sem
fer í felur með trú sína – ekki af því að
hann langi til þess – heldur vegna
þess að hann finnur fyrir ofsóknum
hrópenda sem hafa að spotti lífsýn
hans og hugsjónir. Guðfræði trúðsins
er leiðin aftur heim úr útlegðinni, frá
flóttanum. Guðfræði trúðsins hjúfrar
sig að Jesú litlum því þar er von um
skjól í hvítri helgun sakleysisins –
gegnt nútímavæddri guðfræði kross-
ins sem Hollywood hefur atað blóði í
leit sinni að eilífu lífi til handa því for-
gengilega; skruminu. Guðfræði
trúðsins er falleg, tregafull og sönn.
Hún er guðfræði án ótölulegra sam-
þykkta fjölda kirkjuþinga mannkyns-
sögunnar.
Bergur Þór Ingólfsson og Halldóra
Geirharðsdóttir hafa um langt skeið
haldið uppi merki trúðsins í íslensku
leikhúsi. Af alúð og natni og með trú
á viðfangsefni sínu hverju sinni hafa
þau fært leikmenningu okkar nýja
vídd sem hér var áður óþekkt eða
þótti í besta falli ómerkileg. Bergur
og Halldóra eru vandvirkir leikarar
sem bera virðingu fyrir leikhúsinu –
þegar þeim tekst best upp er á meist-
arabragur – sbr. Dauðasyndirnar
sem enn er mögulegt að sjá. Á engan
er hallað þó því sé haldið hér fram að
þau beri höfuð og herðar yfir aðra ís-
lenska leikara í þeirri viðkvæmu list
sem trúðleikur er.
En, það er ekki nóg.
Jesús litli er á löngum köflum ágæt
sýning, lagt er út af og upp með sjálft
jólaguðspjallið, það er bæjarhlaðið
sem haldið er frá og leiðarsteinarnir
sem fylgt er. Ferðalag þetta er gott,
lengst af, en stundum missa ferða-
langarnir sjónar á leiðarsteinunum.
Er þá farið út og suður um stund án
sýnilegs tilgangs, en sem betur fer
rata alltaf flestir aftur inn á réttu
slóðina.
Trúðarnir Barbara, Úlfar og Bella,
öðru nafni Halldóra, Bergur og
Kristjana Stefánsdóttir, ráða för.
Barbara og Úlfar eru fullsköpuð og
hafa mikla reynslu, kunna sitt, Bella
er reynslulítil og hefur fátt í vopna-
búri sínu til að halda í við meistara
sína. Af þessum sökum skapast áber-
andi jafnvægisleysi í sýningunni, fjöl-
breytileiki og flæði stranda, of oft
þarf að vekja takt sýningarinnar að
nýju. Kristjönu Stefánsdóttur –
þeirri eðla söngkonu – er falið alltof
stórt leikhlutverk í Jesú litla. Þetta
má leikstjóra hafa verið ljóst fyrir
löngu.
Benedikt Erlingsson leikstýrir –
fyrrgreindur annmarki er stærsta
veilan á hans vinnu, en einnig hlýtur
það að skrifast á Benedikt að á köfl-
um skortir sýninguna afgerandi fók-
us. En hugkvæmni Benedikts þóttist
ég kenna í ýmsum lausnum og út-
færslum á smærri atriðum og síðast
en ekki síst á því að leikarar höfðu
greinilega unnið heimavinnuna sína
hvað varðaði þekkingu á viðfangsefn-
inu; þeir þekktu félags- og sagnfræð-
ina, svo ekki sé minnst á heilaga ritn-
ingu. Benedikt er fróðleiksþyrstur
leikhúsmaður og allt að því akadem-
ískt nákvæmur (sem ekki þarf alltaf
að vera hrós, en er það hér).
Leikmynd er einföld, stórt öfugt
hvolf (andóf gegn hákirkjulegri nálg-
un?) úr dúk/líni er yfir sviðinu sem er
notað hugvitsamlega eftir þörfum (og
geri ég framtíðaráhorfendum ekki
þann grikk að segja nánar frá því).
Búningar og leikmunir eru sjúkra-
hústengd – lunkin skírskotun sem
farið er fulllangt með að mínu mati og
hefði mátt stilla betur í hóf, en er
engu að síður skemmtileg. Lýsing
Kjartans Þórissonar er flott og spilar
vel með leikmyndinni og skapar á
stöku stað einstakar myndir helgi og
hreinleika.
Tónlistin er fjölbreytt og fellur
ljúflega að sýningunni, Kristjana
Stefánsdóttir hefur í tónlistarstjórn
sinni skapað skemmtilega heild sem
stundum er grínið eitt en á öðrum
stöðum ljær hún sýningunni fallegan
blæ ritúals og tignar. Tónheimur sá
sem Kristjana ber hér ábyrgð á er
príma! Mikill söngur er í verkinu og
vinda trúðarnir sér úr dægurlögum
yfir í óperusöng af miklum bravúr.
Textinn leikur sér með vísanir
hvort heldur sem er í Shakespeare
eða samtímapólitík. Þó vantaði text-
ann, líkt og sýninguna í heild, oftlega
fókus – það var of mikið undir til að
hægt væri að ná utan um og klára.
Látbragðslistin í byrjun leiks er vel
unnin og vísar aftur í gamalkunnug
brögð, þekkt úr leiklistarsögunni.
Frumsýningargestir skemmtu sér
prýðilega, það var mikið hlegið –
enda oft tilefni til – þetta er skemmti-
leg sýning en.… það vantar hið marg-
umtalaða „eitthvað“.
Ég skora á fólk að fara í leikhús og
sjá Jesú litla – kynna sér guðfræði
trúðsins og máta við sína. Ef mér
skjöplast ekki þá vantar líka „eitt-
hvað“ í hana.
Morgunblaðið/Kristinn
Jesús litli „Ég skora á fólk að fara í leikhús og sjá Jesús litla – kynna sér
guðfræði trúðsins og máta við sína,“ segir í lok dómsins.
Guðfræði trúðsins –
guðfræðin þín?
Borgarleikhúsið – Litla sviðið
Jesús litli, Benedikt Erlingsson, Berg-
ur Þór Ingólfsson, Halldóra Geir-
harðsdóttir.
bbbnn
Leikfélag Reykjavíkur. Frumsýning 21.
október 2009. Leikstjórn: Benedikt Erl-
ingsson. Leikmynd og búningar: Snorri
Freyr Hilmarsson. Lýsing: Kjartan Þór-
isson. Tónlist – útsetningar og stjórn:
Kristjana Stefánsdóttir. Tónlist í sýning-
unni: Brian Wilson, Atli Heimir, Bob Dyl-
an, Pavel Chesnokov, Kristjana Stef-
ánsdóttir o.fl.
GUÐMUNDUR S.
BRYNJÓLFSSON
LEIKLIST
KRISTILEGA tónlistarkonan Sarah Kelly hefur tvisvar verið tilnefnd til
Grammy-verðlauna fyrir plöturnar Take Me Away og Where The Past
Meets Today í flokknum „besta rokk- eða rappgospelplatan“. Tónleika-
gestir í Fíladelfíukirkjunni hafa því líklega ekki orðið fyrir vonbrigðum á
laugardagskvöldið þegar Kelly hélt þar tónleika fyrir fullum sal.
Kelly er vel þekkt utan kristilega geirans og hefur spilað með mörgum
þekktum tónlistarmönnum. Til dæmis leikur Slash, gítarleikari Guns ’n’
Roses, á nýjustu plötu hennar og tónlist hennar hefur hljómað í sjónvarps-
þáttunum Grey’s Anatomy. Henni hefur verið líkt við tónlistakonur eins og
Janis Joplin, Sheryl Crow og Norah Jones.
Tríó Vadims Fyodorovs hitaði upp fyrir Kelly á tónleikunum í Fíladelfíu
á laugardaginn.
Tvisvar tilnefnd til
Grammy-verðlauna og
vann með Slash
Morgunblaðið/hag
Kraftur Sara Kelly er kraftmikil tónlistarkona.
Huggulegt Listamenn máluðu listaverk á meðan tónleikunum stóð.