Morgunblaðið - 23.11.2009, Page 32

Morgunblaðið - 23.11.2009, Page 32
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 327. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM» Heitast 4°C | Kaldast 0°C Léttskýjað að mestu á S- og V-landi. Hiti í kringum frostmark og víða vægt frost inn til landsins. »10 Jesú litla skortir fókus en sýningin er skemmtileg og frumsýningargestir skemmtu sér prýði- lega. »29 LEIKLIST» Jesús litli er fyndinn DÓMUR» Terminal er glæsileg smíð og fær fimmu. »26 Íslenska undrabarn- ið er skemmtileg ævisaga um óvenju- legt lífshlaup sem er samofið brennandi tónlistaráhuga. »23 BÓKMENNTIR » Skemmtileg ævisaga TÓNLIST» Dikta troðfyllti Nasa og tryllti á tónleikum. »26 BÓKMENNTIR» Bubbi afhenti fyrstu bókina á bakkanum. »28 Menning VEÐUR» 1. Stærsta farþegaskipið séð innan frá 2. Alvarlegar árásir í miðbænum 3. Grunuð um stórfelldan fjárdrátt… 4. Haldið sofandi í öndunarvél »MEST LESIÐ Á mbl.is Gunnlaugur Júlíusson hag- fræðingur stefnir að því að hlaupa 5.000 kílómetra á árinu. Í fyrra hljóp hann 4.800 km og árið 2007 hljóp hann rétt rúmlega 3.000 km. „Álagið hefur aukist verulega. Engu að síður er þetta miklu léttara en áður. Það þakka ég fyrst og fremst mataræð- inu,“ segir Gunnlaugur á bloggsíðu sinni. Í sumar hljóp Gunnlaugur frá Reykjavík norður til Akureyrar til styrktar Grensásdeild Landspít- alans. „Að hlaupa 5.000 kílómetra er með því mesta sem menn ná á einu ári,“ segir Gunnlaugur, en hann er með ýmis spennandi verkefni í deigl- unni og kveðst því munu ná settu takmarki fljótlega. HLAUP Gunnlaugur nálgast 5.000 kílómetra á árinu „Ég hef æft mjög mikið og staðið mig vel á æfingum. Ár- angur síðustu daga er afrakstur þess,“ sagði Eygló Ósk Gústafsdóttir, hin 14 ára gamla sundtelpa úr Sundfélaginu Ægi sem vakti verðskuldaða athygli á Ís- landsmeistaramótinu í sundi um helgina. Hún setti átta stúlknamet og eitt telpnamet auk þess að vera í sveit Ægis sem setti þrjú Íslands- met í boðsundi. „Sundbolirnir hjálpa eitthvað til við þetta allt,“ sagði Eygló Ósk, spurð um þær miklu framfarir sem hún sýndi á mótinu. Eygló Ósk háði mikið einvígi við systur sína, Jó- hönnu Gerðu, á ÍM um helgina. SUND Sundbolirnir hjálpa eitthvað til við þetta allt Þrír tónlistar- menn, sem eiga það sameiginlegt að hafa allir sent nýverið frá sér plötur, halda tón- leika á Rósenberg annað kvöld. Þeir eru Hjörvar, Koi og Lára Rúnars- dóttir. Hjörvar gaf út aðra sólóplötu sína A Copy of Me í fyrra, Koi er hugar- fóstur Kjartans Orra Ingvasonar en hann sendi frá sér sína fyrstu plötu Sum of all things í september. Lára Rúnarsdóttir hefur alið af sér þrjár sólóplötur. Sú nýjasta heit- ir Surprise og kom út í október. Lára kemur fram ásamt fjögurra manna bandi á Rósenberg. TÓNLIST Lára, Koi og Hjörvar leika á Rósenberg á morgun Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is „HELMINGUR allra krabba- meina er í dag læknaður en lækning við mænuskaða ekki fundin. Við þurfum því að herða baráttuna og stuðningur frá Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunni WHO er nauðsyn. Mestar framfarir í átt til lækn- inga á mænuskaða eru í Kína og á Indlandi en læknum þar gengur ekki sem skyldi að fá viðurkenningu á Vestur- löndum. Það verður að breytast,“ segir Auður Guðjónsdóttir, formaður stjórnar Mænuskaða- stofnunar Íslands. Herferð sem er liður í baráttunni í leit að lækn- ingu á mænuskaða hefst í dag með auglýsingum sem sýndar eru í helstu sjónvarpsstöðvum á Norðurlöndum. Jafnframt verður sett af stað und- irskriftasöfnun þar sem Norðurlandabúum gefst kostur á að beita sér í baráttunni. Í löndum þriðja heimsins er margt sem lofar góðu hvað varðar lækningu á mænuskaða. „Vand- inn er hins vegar sá að sá þrýstingur sem frá Vesturlöndum kemur er afar lítill. Það verður að breytast. Ég hef því sagt að leggi menn hér á Norðurlöndum þessu máli lið séu þeir að vinna þarft verk í þágu alls mannkyns,“ segir Auður sem er skurðhjúkrunarfræðingur á Landspít- alanum. Hún hóf baráttu í þágu mænuskaðaðra í kjölfar þess að dóttir hennar, Hrafnhildur Thor- oddsen, slasaðist alvarlega fyrir um tuttugu árum og hefur verið í hjólastól síðan. Skref í átt til bata Spurð um þann árangur sem læknar á Indlandi hafa náð nefnir Auður að þar í landi hafi á þessu ári verið gerðar átta tilraunaaðgerðir á nýlöm- uðum einstaklingum þar sem öllum þrýstingi af mænu sjúklinganna hefur verið létt og blóðflæði til hennar aukið sem gefið hefur góða raun. Þær aðgerðir voru styrktar af Mænuskaðastofnun Ís- lands. Þá fór kona frá Sauðárkróki, Þuríður Harpa Sigurðardóttir sem er lömuð neðan við brjóst, fyrr á þessu ári í meðferð til Indlands og náði þar skrefum í átt til bata. Í þágu alls mannkyns  Herferð hefst í dag til að vekja athygli á málum mænuskaðaðra á Norðurlöndum  Indverskir og kínverskir læknar njóta ekki viðurkenningar  Biðlað til WHO Mænan Myndbrot úr auglýsingaherferðinni sem verður sýnd á sjónvarpsstöðvum á Norðurlöndum. Auður Guðjónsdóttir Gestum lítið fækkað í Kringlunni Kringlan Nóg að gera í kreppunni. GESTUM Kringlunnar það sem af er ári hefur fækkað um þrjú pró- sent frá sama tímabili í fyrra. Má segja að kaupmenn í Kringlunni geti verið nokkuð ánægðir miðað við ástandið, en spáð hefur verið allt að 30% samdrætti í einkaneyslu á árinu. Fjöldi gesta í fyrra stóð nokkurn veginn í stað frá árinu áð- ur. Sigurjón Örn Þórsson, fram- kvæmdastjóri rekstrarfélags Kringlunnar, segir kaupmenn í Kringlunni finna fyrir minni versl- un Íslendinga erlendis. Þeir sem selja vörur á borð við barnaföt, sem fólk hefur hingað til gjarnan keypt erlendis, hafi t.d. sjaldan upplifað jafnmikla sölu. Einnig muni um fjölgun ferðamanna til landsins, en slegið var met í endurgreiðslu virð- isaukaskatts í sumar. KRISTILEGA tónlistarkonan Sarah Kelly hélt tónleika í Fíladelfíukirkjunni á laugardagskvöldið. Kelly hefur tvisvar verið tilnefnd til Grammy- verðlauna en hún er vel þekkt utan kristilega geirans og hefur spilað með mörgum þekktum tónlistarmönnum, t.d leikur Slash, gítarleikari Guns’n Roses, á nýjustu plötu hennar og tónlist hennar hefur hljómað í sjónvarps- þáttunum Grey’s Anatomy. Tónleikar Kelly í Fíladelfíu heppnuðust mjög vel en hún var mjög einlæg og persónuleg við tónleikagesti. | 29 Morgunblaðið/hag EINLÆG OG PERSÓNULEG

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.