Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.05.1951, Síða 3

Skólablaðið - 01.05.1951, Síða 3
GEFIÐ Ú T í MENNTASKÓLANUM í REYKJAVÍK Maí 1951 4. tölublað 26. árgangur ^rflæda oid Qimission 21. aprí/ /95/ Herra rektor, kennarar, skólasystkin! Hjá því mun ekki fara, að ræður við Dimission beri mjög svip hver af annarri. Orsakir þess eru eðlileg- ar og öllum kunnar. Hins vegar er 'það ýmsum erfiðleikum bundið fyr- ir einn úr hópi þeirra, sem kveðja skólann, að sameina allt, sem hver og einn úr þessum hóp vildi sagt hafa á slíkri stund. Auk þess hefur svo hver sína skoðun á því, hvernig þessi orð skuli sett fram. Einn vill hjartnæma og grátklökka ræðu, ann- ar háfleyga og skáldlega, helzt ó- skiljanlega ræðu, hinn þriðji raun- sæja og jafnvel hversdagslega og sá fjórði ef til vill hvassyrta ádeilu- ræðu. — Ég þykist þess þó fullviss, að þeir, sem setið hafa skólann allt frá 1. bekk, beri jafnan enn meiri hlýhug til hans en aðrir. — Ef til vill mæli ég ekki sízt fyrir munn þessara nemenda. Loks er þá hinn langþráði lausnardagur okkar 6. bekkinga runninn upp með alla sína dýrð, söknuð sinn og ef til vill kvíða. Á fyrstu árum okkar í þessum skóla var Dimission svo órafjarlæg. Varla flaug okk- ur Iþá í hug, að eftir örfá ár stæðum við í sporum þeirra, sem þá komu saman hér í salnum í hinzta sinn. Þá furðaði okkur á öllum þeim hátíðleik, þeim klökkva og söknuði þrungna andrúmslofti, sem fyllti þennan sal vor hvert við' Dimission. — En árin liðu. Við sáum á bak hverjum hópnum ó fætur öðrum, en þokuð- umst um leið ofar og ofar. Okkur skildist smám saman, hvað það var. sem hinir horfnu hópar höfðu sakn- að, og við vorum fegin því að fá að vera hér áfram. Sama tilfinningin hefur gripið okkur, þótt við látum hana ekki í I jós fyrr en nú, fremur en þeir, sem á undan eru gengnir. Öll okkar fyrstu skólasystkin hafa yfirgefið skólann, síðasti hópurinn kvaddi hann fyrir réttu ári. Eftir það vor- um við í vissum skilningi orðin ein. Svo hefur og farið, að við höfum mænt á þennan dag mest allra daga, ekki með einskærri tilhlökkun og óþreyju, heldur einnig trega og jafn- fram kvíða.. — Að vísu eru þeir menn til, sem brosa að hátíðleik stundarinnar, meðan aðrir sjá til, en ekki er ég í vafa um, að þeir finna til sömu tilfinninga og hinir. 6. bekkingar! Dimission er í dag. Það er okkar Dimission, nú eru það við, sem kveðjum. Gefið ykkur tima til að hugleiða það, að í dag yfirgefum við þenn- an skóla, — í dag erum við í síðasta skipti öll saman komin í þessum sal sem nemendur skólans, — í dag höldum við brott frá þessari fóstmóður, — eftir þenn- Afiahteinn Gutijohnscn. SKÓLABLAÐIÐ 3

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.