Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.05.1951, Qupperneq 17

Skólablaðið - 01.05.1951, Qupperneq 17
ENGINN VEIT SÍNA ÆVINA, FYRR EN .. Rvk 20. apríl ’51. Þessi dagur hefur tvímælalaust verið merkilegasti dagur lífs míns, og ætla ég að skýra frá atburðum þeim, sem fyrir mig hafa komið, meðan þeir eru mér enn í fersku minni. Ég var alveg nýkominn til borgarinnar, ofan úr sveit með nokkur málverk, sem ég ætlaði að selja. Ég var á gangi í Austurstræti, reikaði milli búðarglugg- anna, og virti fyrir mér hinar fögru spánsku vörur, sem hvarvetna blöstu við, og mér varð hugsað til sög- unnar um........ En allt í einu hrökk ég upp úr þessum hugleiðing- um mínum, er kallað var: „Þér misstuð töskuna yðar.“ Ég sneri mér við og tók við töskunni, sem bréfberi nokkur rétti mér. Hann virti mig fyrir sér rannsak- andi og allt að því óhugnanlega, leit því næst á nafn- miðann á tösku minni og sagði: „Þér eruð Jón Þor- steinsson frá Vík, ekki satt?“ Jú, ekki gat ég neitað því. ..Það er einskær tilviljun, að ég skyldi rekast á yður, því að ég er með óskilabréf í töskunni minni, og utan- áskriftin á því er: Jón Þorsteinsson, Vík á Landi undir Fjöllum"'. Mér fannst það nú harla einkennilegt, að einhver ætti svo brýnt erindi við mig, að hann þyrfti endilega að skrifa mér. Þó tók ég við bréfinu og stakk því í vasann. Ég fór síðan inn á Hressingarskálann, og á meðan ég beið eftir afgreiðslu, reif ég up]) bréfið og las: Helgað minningu Jóns Þorsteinssonar, sem fæddur var 1. maí 1933 og dó mjög skyndilega 20. apríl 1951. „Jafnvel í blóma lífsins er dauðinn í nánd.“ .... Og það leið yfir mig. Er ég rankaði aftur við mér, lá ég á legubekk í stóru — afarstóru herbergi. Mjög var tekið að rökkva. Ég leit á klukkuna, — hún var tuttugu mínútur geng- in í ellefu. Skyndilega heyrði ég einhvern hávaða fyr- ir aftan mig. Ég leit við og sá dökkan, ókennilegan skugga líða inn um dyrnar. Brátt sá ég, að þetta var maður. Hann var gífurlega feitur, holdhvaparnir héngu í fellingum utan á skrokk hans, hárið var rytjulegt, gráýrótt og kollvik há. Þarna stóð hann, greip sílspik- uðum fingrunum um stólbak og einblíndi á mig. Hvar hafði ég séð þennan mann áður? Allt í einu varð mér það ljóst. Það var.... og ég rak upp örvæntingar- fullt hræðsluóp. Hvað eiginlega er þetta? Kvurskonar mannasiðir eru þetta, má ég spyrja? Þér hljótið að vera draugfullur. Þegar ég hafði náð mér eftir þá skelfingu, sem hafði gripið mig, útskýrði ég fyrir hon- um alla málavöxtu. Ég hafði komið með nokkrar myndir til borgarinnar, og hann var lifandi eftirmynd einnar þeirra. Ennfremur rétti ég honum bréfið. Hann varð afar undrandi, en sagði síðan: „Við hljótum að hafa hitzt áður. Voruð þér ekki á þjóðhátíðinni í Vest- mannaeyjum í fyrra?“ Nei, ég hafði ekki verið þar. „En þér blátt áfram verðið að hafa verið þar,“ og ég tók eftir því, að nú var grátklökkvi í rödd hans. Nei, því miður; það hafði ekki verið svo vel. Hann titraði og þurrkaði sér um augun með rauðum vasaklút, fitl- aði vandræðalega við úrfestina sína og sagði loks: ..Það er víst ekki um annað að ræða, en að þér bíðið hérna, þangað til klukkan er orðin tólf. Ekki getið þér farið, það gæti verið ekið yfir yður.“ Honum óx styrkur ineð hverju orði. Þarna stóð hann alvarlegur og myndugleikinn sjálfur, og ef til vill dálítið spaugi- legur. Mér hefði líka fundist hann hlægilegur fyriri lítilli stundu. En ég hló ekki. ískaldur hrollur fór um mig, hræðsla læsti sig um mig eins og hryllilegar rán- dýrsgreijiar. Óttinn nagaði mig og lamaði. Viljið þér reykja? Ég rétti fram hendina sem í leiðslu.... .... Og nú sitjum við og reykjum. Reykjarhringir, gusur og mekkir flögra um loftið í hinni hverfandi og reikulu birtu. Við sitjum þungt hugsandi, og hrökkv- um upp og skimum flóttalega í kringum okkur, ef við heyrum einhver óvænt hljóð. Þögnin er tilbreytingar- laus og drepandi, og loftið er lævi blandið, en þó eru þessi hljóð ennþá verri. Þey, þey, — þarna var eitt- hvað að hreyfa sig. Eða var það ekki? Ég hef ekki mátt til þess að athuga það — þessi skelfilegi ótti hefur gagntekið mig. Ég er núna að skrifa þetta við borðið hérna undir glugganum. Klukkan er nú langt gengin í tólf. Mínúturnar seiglast áfram, og líf mitt styttist óðum, þverr, deyr út sem flöktandi kertis- skar. — Nei, það getur ekki verið. Má ekki vera svo, — Ég vil ekki deyja, — ég er ungur og vil lifa og leika mér, ég er enn of ungur. Nei. — Ég vil ekki deyja. Ég má það ekki. Nei, nei-nei, það er ómögu- lega ... Vitleysa, auðvitað var þetta bara tilvísun, og þó . . . Óttinn ásækir mig. — 9 mínútur etfir. Memento mori. Oh. — Þetta latínurugl — til helvítis með það. Eitthvað innra með mér brestur — já, ég finn það. Mók sígur yfir mig. Skynjunin brenglast, ég er að hætta að geta grillt línurnar á blaðinu. Ótti gríp- ur mig. Er ég að verða sturlaður. Já. — Nei! ótti, sennilega ótti, á ég að æpa, öskra, veina? Nei, — nei- nei. Þögn. Þögn. Þögn. Ó, fagra líf, miskunnarlausa líf. Einungis tikk-takka-takka-tikk-takk-tikk-takk. .. . E. SKÓLABLAÐIÐ 17

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.