Skólablaðið - 01.05.1951, Qupperneq 21
BLEKSLETTUR
Það er gömul venja, að skýra hér í þessum þætti frá
helztu skemmtunum, sem haldnar hafa verið í skól-
anum. Vill það oft verða allþarflaust hjal um efni,
sem flestum er áður kunnugt, enda verður nú hrugðið
út af þeim sið. Þó skal geta þess, að skemmtiskrá aðal-
dansleiks skólans var mjög til fyrirmyndar, og ber sér-
staklega að gefa gaum hinum bráðsnjalla gamanþætti
6. bekkjar „Quo vadis?“ Sýndu skopstælingar þeirra,
að 6. bekkur hefur náð gífurlegri tækni í þeirri göf-
ugu list að herma eftir kennurum.
Hér skal aðeins getið hins nýstofnaða Eisperantó-
félags Mennttiskólans. Hefur starfsemi þess verið með
miklum blóma, og nú í vor eru hafin námskeið fyrir
félagsmenn. Ætlunin mun þó, að hefja aðalstarfið í
haust, og er þess að vænta, að menn grípi nú tækifærið
að kynnast málinu og baráttu Esperantista fyrir hug-
sjónum sínum.
Málfundafélagið E'ramtíðin hefnr starfað af miklu
fjöri. Meðal annars var rætt um kennslu og námsefni
skólans og skorað á kennara að koma á fund með nem-
endum og lýsa skoðunum sínum á vandamáli þessu.
Ekki er oss kunnugt, hvort viljaleysi þeirra hefur vald-
ið því, að fundur sá hefur enn ekki verið haldinn. Hins
vegar hafa nú heyrzt ýmsar raddir meðal nemenda, sem
finnst nauðsyn umbóta í þessum efnum. og ætla mætti,
að kennarar telji sér málið skylt.
Að síðustu er vorið komið eftir strangan vetur lær-
dóms og kúrisma. Menn tipla varlega út í sólskinið,
depla sljóum lestraraugum við birtunni og undrast
hjartagæzku og viðmótshlýju máttarvaldanna. Aðrir
hafa lítið lesið, eru samt hressir í bragði og bera það
með sér í hverju spori, að þeir hafi svo sem alltaf vit-
að, að vorið mundi koma. Ekki sést ský á lofti allt upp-
lestrarfríið, eins og venja er, og margir falla í snörur
góðviðrisins, og gætir fullmikils hlutleysis í styrjöld-
um þeirra við erkióvininn, sem sé námsbækurnar. Próf-
in eru eins þrautleiðinleg og andlaus og áður og kenn-
arar óskemmtilega naskir að geta sér til um götin á
lærdómsflíkunum. í slíku andrúmslofti sveitast nokkr-
ir fölir menn við að koma út síðasta tölublaði Skóla-
blaðsins við þröngan fjárhag og nauman tíma. Er nú
auðsætt, að gera verður einhverjar breytingar á útgáfu
blaðsins, því að tekjur þess hrökkva ekki lengur fyrir
kostnaði, sem aukizt hefur gífurlega í ár. Höfum vér
orðið að lifa á bónbjörgum, þ. e. auglýsingabetli, og
veitist æ erfiðara að kría út nægilegt fé til útgáfunnar.
Nóg hefur blaðinu borizt af efni. Biðjum vér þá and-
ans menn afsökunar, sem afskiptir hafa orðið í efnis-
vali. Margir hafa lagt blaðinu lið í vetur, og samstarf
innan ritnefndar hefur verið með ágætum. Auglýsinga-
stjórar hafa lagt á sig mikla vinnu og verður seint
fullþakkað. Ennfremur viljum vér þakka ábvrgðar-
manni blaðsins, Ingvari Brynjólfssyni kennara, ánægju-
legt samstarf og hinn mikla áhuga og velvild, sem
hann hefur sýnt blaðinu. Að síðustu óskum vér ritstjóra
og ritnefnd næsta árs góðs gengis í starfi þeirra.
C. P.
Hugleiðingar um heimsmálin
Stjórnmálanna sterhi menn
stríðin láta heyja.
Þínir brœður þurfa enn
þeim til geós oð deyja.
Hatur er i heimi nóg.
Hungur marga kvelur
meftan illskeytt auSvaldskló
ar'Si þeirra stelur.
Þjakaó mannkyn þolir enn
þrœlatökin hörSu.
Rísa þó mun röSull senn
réttlœtis á jörSu.
Jón BöSvarsson.
SKÓLABLAÐIÐ
GefiS út í
MENNTASKÓLANUM 1 REYKJAVÍK
Ritstjórí:
Guðmundur l’étursson. 5. X.
Ritnejnd:
\rni Björnsson, 4. B.
Einar Laxness, 6. B.
Eiríkur Haraldsson, 6. Y.
Sveinn Kristinsson, 6. Y.
A uglýsingastjórí:
Vigfús Magnússon, 4. C.
A byrgSarmaSur:
Tngvar Brynjólfsson, kennari.
SKÓLABLAÐIÐ 21