Skólablaðið - 01.02.1956, Page 3
ÉR í skóla er félagslíf talsvert umfangsmikið og má segja, að það
standi í allmiklum blóma. Hinar ýmsu nefndir skólafélagsins
starfa af krafti, - við skulum vona af fullum krafti, og einstök
félög reyna að koma stefnumálum sínum á framfæri meðal mennt -
linga. Skólablaðið er ævinlega fúst til að gefa forystumönnum
þessarar starfsemi tækifæri til að láta ljós sitt skína, segja frá
starfsemi sinni, boða áform sín eða skamma utanstjórnarlimi fyrir áhugaleysi,
sem því miður er talsvert mikið og nær jafnvel stundum inn í raðir stjórnar-
herranna sjálfra.
Nú haia ýmsir ágætis formenn hrist fram úr penna sínum þann boðskap,
sem þeim liggur þyngst á hjarta. Er þar fyrstur inspector scholae og síðan