Skólablaðið - 01.02.1956, Blaðsíða 4
- 83 -
koma íormenn allra félaga allt niður í
íþróttafelag. Bindindisfélag er því miður
ekki með, þar eð tilvera þess ágæta fyr-
irtækis liggur nokkuð á huldu, og tókst
oss ekki, þrátt fyrir mikla leit, að hafa
upp á formanni þess. En í þeirri von, að
slíkt komi ekki að mikilli sök og fátt fari
þessvegna forgörðum, leiðum vér stór-
gripina fram á völlinn og gefum þeim
lausan tauminn.
SVEINBJÖRN BJÖRNSSON,
inspector scholae :
Hverjum skóla er nauðsyn að halda uppi
félagslífi meðal nemenda til þess að auka
tilbreytni og stuðla að nánari kynnum
þeirra í milli. Til þess að fullnægja
þessum þörfum hafa nemendur flestra
skóla stofnað með sér skólafélög, sem
borið hafa uppi slíka starfsemi. Hér í
skóla hafa menn ekki látið sér nægja eitt
félag, heldur lengst af þrjú og nu að lok-
um fimm félög, sem öll hafa að markmiði
að fullnægja felagsþörf nemenda. Skóla-
félagið er víðtækast þessara félaga og í
raun og veru svo víðtækt, að menn verða
helzt ekki varir við það sem heild nema
á skólafundum og í kosningum á vorin.
Hinar einstöku nefndir félagsins eru í
eðli sínu sjálfstæðar stjórnir og sjálfar
ábyrgar gerða sinna. Sé þannig litið á
málið, verða stjórnirnar 11 talsins og sé
enn bætt við bekkjarráðum verða það alls
15 stjórnir og ráð, sem vinna að félags-
málum menntlinga. Minna má nu gagn
gera, mun margur segja og spyrja sjálfan
sig, hvort ekki sé ókostur að hafa svo
margar stjórnir, nefndir og ráð.
En reynslan hefur sýnt, að því fer fjarri.
Betur sjá augu en auga segir máltækið,
og því fleiri einstaklingar sem eiga hlut
að félagsmálum, þeim mun fj ölbreyttari
verður starfsemin og tilbreytni meiri.
Sé verkefnum dreift meðal einstaklinga,
fær hver og einn meiri tíma til að sinna
hlutverki sínu og vanda til þess sem bezt
hann getur. Þarna mun einnig að finna
ástæðu þess, að félagslíf hefur löngum
staðið í miklum blóma hér og verið öðr-
um skólum til fyrirmyndar.
í vetur hefur verið óvenju mikill kraift-
ur í félagslífi og það mun fjölbreyttara
og líflegra en undanfarin ár. Liggja til
þess margar ástæður, en veigamest
verður að telja, að óvenju mikið val
skemmtikrafta er nú í neðri bekkjum
og það, sem enn betra er, þeir eru fús -
ir að koma fram á skemmtunum.
Dansnefnd og bekkjarráð í samráði
við hana hafa það, sem af er vetrar,
haldið 10 dans- og skemmtikvöld auk
jólagleði. Kaffikvöldin, sem bekkjarráð
gengust fyrir, tókust öll með ágætum,
og væri vissulega vert að halda áfram
á þeirri braut, en þar sem mjög erfitt
er um veitin^ar innan skólans án þess
að níðst sé a portnershjónum, er ólík-
legt að fleiri slík kvöld verði haldin í
vetur.
Almennur söngur og speldi hafa ein-
kennt samkomur vetrarins, en slíkt hef-
ur ekki tíðkast áður. Söngur er ætíð
prýði á samkomum og til gleðiauka, en
speldi verður leiðigjarnt, sé það framið
á sama máta í tíma og ótíma.
Leiknefnd hefur unnið mikið og þarft
verk við Herranótt ársins og er langt
síðan skólaleikur hefur fengið jafn góða
dóma og ágæta aðsókn.
Tonlistarnefnd hefur haldið 4 tónlistar-
kvöld við slælega sókn. Er það öldungis
ómaklegt, en þar sannast sem áður, að
menningin á erfitt uppdráttar nú á tímum.
íþökunefnd hefur og barizt hatramm-
lega og beitt öllum brögðum til að lokka
fávísa menntlinga út í musteri bókmennt-
anna og ginna þá til fylgis við menning-
una en orðið lítið ágengt.
Ritnefnd hefur aftur á móti miðað bet-
ur við útgáfu Skólablaðsins, enda eru
þar öndvegismenn í hverju sæti.
Einni umferð selsferða er lokið. Var
hegðan manna almennt góð í ferðum
þessum og verður önnur umferð hafin á
næstunni. Þá fór hluti ó.bekkjar í skíða-
ferð á Hellisheiði og gisti í seli. Tokst
sú ferð mun betur en búizt var við.
Fleiri slíkar verða ekki farnar.
Af framtíðarverkefnum er fátt enn
ráðið annað en dansæfingar með reglu-
legu millibili, aðaldansleikur, sem hald-
inn verður í Sjálfstæðishúsinu 11. apríl,
dimission um 20. apríl o. s.frv.
Auk þessa hefur mikið verið vætt, að
menntlingar önnuðust dagskrá í útvarpi