Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.02.1956, Blaðsíða 13

Skólablaðið - 01.02.1956, Blaðsíða 13
- 92 - legt en heimila verði Ó. J. að gera ýms- ar breytingar á einu og öðru er aflaga fer í þjóðfélagskenningum Marx og Leníns, "samkvæmt eigin lífsskoðun og geðþótta", svo að þjóð vor verði ekki jafnmeinlegum örlögum að bráð og Rúss- ar og Kínverjar. En undarlegir eru þeir duttlungar örlaganna, að ef við flettum yfir á næstu síðu blaðsins, getur að líta, hve ómjúkum höndum Ó. J. fer um sálar- framleiðslustarfsemi í því þjóðfélagi, er við Ó. J„ verðum báðir að una enn um hríð. SÚ lýsing verðskuldar vissulega alla athygli og er rúmi Skólablaðsins ekki til annars betur varið en að endur- prenta hana, svo að öllu réttlæti sé full- nægt : "Ef litið er á yfirborðið (þ„ e. menn- ingarinnar) verður lágkúran mest áber- andi. Alls staðar glymur flár og gjallandi jazz : leirburðarstagl og holtaþokuvæl er á hvers manns vörum, allt úir og grúir af sorpritum og reyfurum, lélegum kvik- myndum, sjónleikjum og söngleikjum og hvers kyns omerkilegum skemmtunum, sem of Langt yrði upp að telja. Hvergi verður þverfótað fyrir alls konar gervi- varningi, gervilist og ótrúlegustu gervi- mennsku, sem virðist eiga hylli fjöidans eina og óskipta. í fám orðum sagt: á yfirborðinu ræður skríimenning, þar sem dekrað er við úrkynjaðan smekk iýðsins, og hann fóðraður á útvötnuðum hégóma ár eftir ár. " Svo mörg voru þau orð, en ekki er þetta að sama skapi fögur drápa um vest- ræna menningu á okkar dögum. Við því er heidur ekki að búast, en þessi lýsing uppfyllir þær kröfur, sem gera verður til hennar - hún er sönn. Legg ég eindregið til, að hún verði prentuð a viðhafnarstað í Heimsmenningarsögu, ef við íslendingar kynnum einhverntíma að eiga því láni að fagna, að slíkt rit yrði þýtt úr norskri ATHUGASEMDIR VIÐ JÓN HANNIBAL.SSON ÓN B„ Hannibalsson ritar allmikla grein hér í Skóla- blaðið og deilir víða hart á undirritaðan fyrir "sann- færingarleysi og eilífan nagandi efa" ásamt með hoilustuleysi við sjálfan sósíalismann, málsstað hins strit- andi lýðs. Orðum sínum finnur hann stað í jólahugleiðingu minni, þeirri er birtist í síðasta blaði. NÚ fýsir mig ekki að hvekkja lesendur með langhundi til and- mæla jóni, en þó mun rétt að víkja nokkrum orðum að þessari ritsmíð hans, - um leið og ég tjái honum þakkir mínar fyrir tilskrifið. Þess ber þó að geta þeg- ar í upphafi, að ég svara honum ekki svo ýtarlega sem grein hans gefur annars til- efni til, heldur mun ég aðeins stikla á meginatriðum máls hans. En girnist Jon frekari umræður um ágreiningsefni skal ég glaður ræða við hann privatim, hvort sem sú ræða yrði háð yfir kaffibolla eða annarri sterkari veig. jón gerir sér allmikið far um að af- neita því, að pólitískar skoðanir geti verið mönnum trúaratriði og komið svo í stað kristindóms og annarra afdankaðra trúarbragða. Samt kemur það berlega í ljós af grein hans, að sjálfur er hann sannfærður kommúnistií hann álítur komm- únisma einu leiðina, sem mannkyni sé fær úr ógönjjum aldar vorrar. Skoðun Jons er honum obifandi sannfæring, vissa hafin yfir allan efa, - m„ ö„ o. trú. Og þessa trú sína styður hann síðan "vísindalegum kenningum um lögmál og þróun þjóðfe- lagsins", svipað og bókstafsfastur biblíu- trúarmaður styðstvið heilög orð drottins síns. Þarna stingur hið politíska trúar-

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.