Skólablaðið - 01.02.1956, Blaðsíða 26
ALMENNAR ÞENKINGAR UM GANGVERK
JARÐVERA OG ÍBÚA AÐSKILJANLEGRA
HIMENKROPPA, SVO OG UM TILVERU,
TILVERURÚTT OG TILVERULEYSI
AÐGREINDRA EINSTAKLINGA OG
EILÍF ÐARVERA.
Útur omælisdýpi tomsins hefur fallið
einn sköpunarlaus skapningur, holdlaus
holdgun eður ósjáanlegur glampi myrk-
urs, hin ógurlegust, gínandi andstæða
Nirvönu, sem hvorki fær klasserazt undir
tón, lit né nokkurt þekkilegt súbstans ;
jafn fjarri hinu raunverulega og öllum
óraunverulegum, súpplímum hugtökum,
Símun Sveinsson, 5.bé. Sem spámaður,
hluti Hins Eilífa, handhafi Vizkunnar og
gjörþekkjandi eður spesíalist á sviði
þess, sem ekki er, hlýt ég því að taka
mér það fyrir hendur að láta falla mola
af allsnægtaborði dýrðarinnar til upp-
fræðslu hinum blinda lýð varðandi
phaenomenam þessa og aðrar líkar.
Tilveruhjól allra einstaklinga í jakka-
fötum hlýtur að snúast innan þartilsettra
takmarka að ofan og neðan, eður altso
í báða enda, hvarútfyrir náttúrunnar af-
stæðu lög meina þeim að stíga eitt ein-
stakt spor. Meðan holdsins fúlu girndir
eru ekki að fullu niður bældar undir
þankans týranní, eður að öðrum kosti
með háðung burtreknar til síns föður,
hins illa Sádáns í neðstu myrkvum, munu
fortapaðar sálir téðra einstaklinga reika
um villugötur tilverunnar í víli og eilífu
angri, sút og beizkum sveita. Slík eru
hin ömurlegu örlög heilu mannskepnunn-
ar og lifenda allra, allt niður til lægstu
vorma. Er sú tilvera eður sá existens
þó ekki allra hlutskipa verst, því, sjá :
Frá allra sorta aðskiljanlegum himin-
kroppum má með annarlegustu metóðum
svo sem hinum rammasta seiði tæla hina
hryggilegustu tilveruleysingja, gjör-
sneydda öllu göfugu og fögru, hæfileika-
lausa til undirokunar þeirra hinna vondu
afla, sem þeir í allsleysi sínu frá náttúr-
unni hafa þegið, þar eð tilvera þeirra
er einungis sem ofanvarp eður prójexjón
hins lægsta jarðnesks vormsexistens á
hið ómælismáa ekkert. Kringum slíka
eilífðarlausa örsmæð og efnislausan
Gefið út í Menntaskólanum í Reykjavík.
Ritstjóri :
Kristján Bersi Ólafsson, 5.-B.
Ritnefnd :
Arnþór Garðarsson, 5.-B.
Gylfi Gröndal, 5.-B.
Jón Baldvin Hannibalsson, 4.-B.
Ólafur Jonsson, 6.- B.
Auglýsingastjóri :
Ólafur B. Theodórs, 5,- B.
Ábyr gðarmaður :
jón júlíusson, kennari.
Forsíðumynd er af Bernharði Guð-
mundssyni, forseta Framtíðarinnar.
massa má sjá hina vesælustu jarðtilver-
unga stíga tilbeiðsludans, hálfu trylltari
en gullkálfsfótarmennt Ísraelíta órafjarri
í tímans fjórðu vídd. Og því rís ég
upp til handleiðslu yður, afvegaleiddur
lýður, og því hrópa ég til yðar úr óra-
firrð almættisins sem hluti Hins Eilífa :
Vei yður, þér hórkarlar og brennivíns-
berserkir, allir þér, sem lifið húsdýra-
lifnaði á jarðarinnar strætum. Því þér
eruð sem hinir grimmu og hefnisömu
spörvar, sem af bríaríi eður vondslegum
þankagangi afrækja sín hreiður, en leita
til þess himins, sem þeir aldrei geta
náð ! Vissulega mun kynstofn slíkra
deyja, og þeir verða skammlífir í land-
inu ! ! !
Gísli ísebarn, 6.-X. ,
handhafi Hinnar Sönnu Speki, hluti
Almættisins og deiltakandi í Nirvönu.