Skólablaðið - 01.02.1956, Qupperneq 31
- 110 -
um gáfu- og menntamanninum á fætur
öðrum upp á slíkar mottökur, er Björn
Th„ Björnsson fékk títtnefnt kvöld.
Margt er á döfinni samt sem áður varð-
andi frekari starfsemi félagsins, og ber
þá helzt að minnast á nýmæli þau, er
nu er verið að hrinda í framkvæmd.
En það eru kvikmyndasýningar, sem
munu verða haldnar á vegum félagsins,
það er enn lifir vetrar. Eru það alls
kyns kvikmyndir, sem ætlunin er að
sýna, kvikmyndir um myndlist, bókmennt-
ir, tónlist og a. m. k. eina leikna kvik-
mynd. - Fyrsta verkefni mun verða hin
afbragðsgóða mynd "Pótemkin", sem
russneski snillingurinn Eisenstein hefur
gert um uppreisnina 1905. Mun jón júl-
íusson kennari kynna mynd og höfund
fyrir sýningu. Þannig mun verða reynt
að fá menn, bæði hér ur skóla og annars
staðar frá til að mæla fáein orð á undan
hverri sýningu þeim til kynningar. -
Að vísu eru margir örðugleikar á kvik-
myndasýningum á sal, þar eð hann er
lítill og rúmar eigi marga, auk þess
sem erfitt er að stilla þannig hátalara,
að fólk eigi ærist. Vona ég því, að fólk
afsaki allar smámissmíðar, sem kynnu
að verða og hvet ég um leið menntlinga
að sækja sýningar þessar og láta eigi
glepjast af öðru verra. Hefur Ólafur
Rafn jónsson verið ráðinn sýningarmeist-
ari, enda fróður mjög um alla véla-
mennsku.
Að síðustu vildi ég þakka Joni júlíus-
syni fyrir ágætar leiðbeiningar og góða
aðstoð við öflun kvikmynda. Höfum vér,
fyrir milligöngu Jons, fengið kvikmyndir
þessar frá sendiráðum heimsins stór-
velda, Bandaríkjunum, Sovétríkjunum,
Frakklandi og Bretlandi og hafa starfs-
menn þeirra allra reynzt mjög hjálplegir
og vinsamlegir.
ÓLAFUR B. THEODÓRS,
formaður íþróttafélagsins ;
íþróttafélagið tók til starfa eftir jól.
Þátttaka er með bezta móti eða ca. 130
nemendur.
Haldinn var stjórnarfundur og gaf frá-
farandi formaður, Einar Sigurðsson
VI.-B, skýrslu um starfið á liðna árinu.
Kunnum við honum beztu þakkir fyrir
vel unnin störf. Aðrir stjórnarmeðlim-
ir skiptu með sér verkum sem hér seg-
ir :
Form. Ólafur B. Theodórs, V.-B.
Varaform. Jon Ásgeirsson.
Gjaldk. Ottó Tynes, IV.-X.
Ritari Gunnar Kvaran, IV.-Y.
Áhaldav. Pétur Bjarnason, IV.-B.
Síðan voru gerðar áætlanir um starfið
í vetur.
Strax eftir nýjár voru fengnir tímar í
körfuknattleik, og eru þeir sem hér
segir :
Stúlkur á þriðjudögum kl. 7-8 síðd.
Piltar - fimmtudögum - 7-8
Innan skamms verður íþróttahúsið að
Hálogalandi fengið til handknattleiks -
æfinga, en því er lokað nú.
Þá hélt íþróttafélagið skemmtikvöld
þann 21. jan. Þar las Jón Ragnarsson
upp úr verkum Kiljans, Halldór Haralds-
son III,-C spilaði á pianó, og þeir
Kristján Bersi Ólafsson og Höskuldur
jónsson kváðust á. Vakti þetta mikinn
fögnuð og voru listamennirnir hylltir
ákaflega. Að lokum var svo stiginn
kvenr éttindadans við mikinn föjpiuð
kvenna og jafnvel annarra. Foru nem-
endur heim að sofa laust fyrir kl. 1.
Loks hefur félagið það á prjónunum,
að fá tíma fyrir badminton, en ekki er
víst að það takist.
Hið árlega handknattleiksmót innan
skólans verður að líkindum ekki háð í
vetur.
Oss hefur borizt í hendur eitt ágætt
stjórnarblað úr landsbyggðinni eða rett-
ara sagt frá útlöndum, nefnilega Fram-
sókn úr Ve stmannaeyjum. Þar er upp-
prentaður langur spurningalisti, og tök-
um vér oss það Bersaleyfi að birta
spurningu nr. 1 :
"Telur héraðslæknir það samrýmast
heilbrigðis- og þrifnaðarkröfum í skólum,
að sultardropar úr nefi kennara leki
niður á námsbækur nemanda?"
- Svari hver sem getur !