Skólablaðið - 01.04.1959, Síða 20
180 -
BRANDARAR ÚR FJÓRÐA BÉ
GuSni G. : "Muííler er trefill, svo lang-
ur, að hægt er að þrívefja honum um
hálsinn og þ6 nær hann niöur á tær að
aftan og framan."
*
Magnús í latínu:
"í hvaða orðflokki er þetta orð? "
Nemandi svarar: "Fornafn."
Magnús: "Nei þetta þykir mér nú heldur
"tuff", vinur minn, þetca er sögn. "
■'r
Ólaifur ólafss. : "Annað ritgerðarefnið er
vatn."
Nemandi: "Já ! H2Só4 ! "
*
Ólafur ólafsson: "Munið þer hvað borgin
heí þarna í Norður-Englandi, þar sem
Egill orkti "Höfuðlausn" ? "
Nemandi: "Jú, var það ekki Algeirs-
borg? "
AF alkunnum húmor höfðu 4.-B og 5.-A
skipti á stofum í öðrum tíma 1. apríl.
Magnús Finnbogason átti að kenna 4.-B
í þeim txma. Mun honum hafa brugðið
allmjög í brún.
Lysir hann aðkomunni svo :
"Þegar ég kom hérna inn í bekkinn áð-
an - piltar - þá varð ég déskoti hissa. Hér
var heill skipsfarmur af spikfeitum stelp-
um."
MANSÖNGUR
Leyndardómur gleðinnar í brosi þínu býr
og blámi þinna augna er kristalstær og
, skír.
f návist þinni hverfa hin dimmu drungaský
þú dansar eins og vorgolan, léttfætt,
björt og hlý.
Um dásemd þína og fegurð ég kveð
minn æðsta oð,
og alla mína drauma ég set í þetta Ijóð.
Ef veröld þessi færist og fagra landið
mitt,
mér fyndist alveg sama, ef þig ég
gæti hitt.
G.S.
L O K A O R Ð
UM leið og vér fylgjum þessu síðasta
blaði vetrarins úr hlaði, viljum vér
þakka öllum þeim, sem hafa miðlað
blaðinu af anda sínum á árinu. Að vísu
hafa sumir miklir blekiðjumenn fyrri
árganga brugðizt nokkuð vonum vorum,
en aðrir hafa í staðinn risið sem kó-
metur á næturhimni. Á það vonandifyr-
ir þeim að liggja að afsanna þá kenn-
ingu, að orðsins list sé á undanhaldi í
skólanum. Einkum eru miklar vonir
bundnar við 3. bekkinga, og liggur nú
fyrir þeim að sanna, að þeir séu jafn
miklir á borði sem í orði.
Loks viljum vér biðja lesendur b1aðs-
ins velvirðingar á brenglun blaðsíðutals,
sem átti sér stað í síðasta tbl.
Með ósk um góð próf og háar eink-
unnir.
"Sjá hér, hve illan endi. . . "
Eyþór skeggræðir: "Einfrumungarnir
enda venjulega líf sitt með því að deyja."
Val.e.
Ritnefnd.