Skólablaðið - 01.02.1961, Side 3
IN MEMORIAM
JÓHANNES ÁSKELSSON
YFIR KENNARI
3. ágúst 1902 - 16. janúar 1961
Menntaskolinn í Reykjavík hefur nú nýlega oröiS a5 sjá á bak eins ágæt-
asta kennara síns.
Johannes Áskelsson var tengdur þessari menntastofnun sterkum, orjúfandi
böndum, hann var í augum okkar nemenda beinlínis hluti hennar. Hann lagði
storan skerf til þess að gæða Menntaskólann því lífi, sem hann lifir og mun lifa
í vitund nemenda sinna, eldri og yngri.
Við vitum, að jóhannes Áskelsson var mikill vísindamaður, og vissulega
urðum við þess vör , hve mjög hann unni fræðigrein sinni. Hann kenndi hana
ekki aðeins vel. Hann glæddi einnig áhuga okkar á henni.
En mer og bekkjarsystkinum mínum verður hann þó minnisstæðastur, eins
og við kynntumst honum í fimmtarbekkjarferð okkar vorið 1960 - ekki einkum sem
vísindamanni og kennara - heldur sem góðum dreng - vini og fólaga. Eftir að saga
Tjörneslaganna er okkur löngu gleymd, mun minningin um Jóhannes Áskelsson enn
lifa í hjigum okkar allra.
Þorsteinn Gylfason.