Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.02.1961, Page 6

Skólablaðið - 01.02.1961, Page 6
MlT'lfflTkEÍ'■ ESSI nútímatónlist. Það er ekki hlustandi á hana. í nú- tímatónverkum er ekkert, sem kalla má fallegt. Þau eru ekkert annað en eilífir mis- hljómar. " Þetta er efalaust algeng um- sögn fólks um tónlist okkar aldar. Menn geta haft gaman að tónverkum hinna gömlu meistara, en jafnframt megnustu andúð á öllu, sem nefnt er nú- tímatónlist. Svo virðist sem nemendur skólans seu að einhverju leyti undir sömu sök seldir, hvað þetta snertir. Að því er forráðamenn plötusafnsins segja, eru hljómplötur með nútímatonlist síður fengnar að láni en aðrar plötur. En mér finnst, að þetta þurfi að breytas. Af þessari ástæðu hef óg ráðizt í að rita þessar hugleiðingar um samtímatónlist okkar, þó að ég viti, að mig skorti þekkingu til þess að gera efninu næg skil. Verða menn því að taka viljann fyrir verkið. Nú ber ekki að skilja orð mín svo, að ég amist við því, að gömlu meistar- arnir séu mikils metnir. En ég tel, að samtíminn megi ekki hverfa í skuggann fyrir fortíðinni. Sjálfsagt er það ekki nýtt, að sam- tímalist njóti lítilla vinsælda. Fortíðin hefur ávallt yfir sér blæ frægðar. Það hefur jafnan verið svo, að heyrzt hafa mótmæli og talað er um afturför, þegar tónskáld hafa rutt nýjar brautir. Má til dæmis benda á viðtökur þær, er þriðja sinfónía Beethovens, Hetjusinfónían, hlaut, þegar hún var frumflutt, enda hefst með þessu verki nýtt tímabil í tónsmíðum snillingsins. Segja má, að "modernisminn" sé fremur sprottinn af nauðsyn env<nokkur önnur tónlistar stefna. Rómantíska stefn- an náði hámarki tignar sinnar á ofan- verðri síðustu öld. Lengra varð ekki haldið á sömu braut. Það varð því að marka nýjar stefnur, ef stöðnun átti ekki að blasa við. Tónskáldin reyndu að finna einhverja nýja leið, nýja stefnu. tJr þessu varð hálfgerð ringulreið, sem segja má að ríki enn. Það er því ekki unnt að skilgreina "modernismann" sem heil- steypta stefnu eins og rómantíkina. Þó má segja, að einkum séu það tvær kenn- ingar, sem orðið hafa ofan á. Á ég þar við tólf tóna kerfi Schönbergs og "neo- klassik" Stravinskis. Skilin eru þó of ógreinileg á milli þeirra. Schönberg var Austurríkismaður. Hann kom fyrst fram á sjónarsvið tón- listarinnar um síðustu aldamót. Samdi hann í fyrstu mikið í anda Wagners, þó að ymsum athyglisverðum nýjungum í hljómsveitarútsetningu brygði fyrir. Brátt fór hann að færa sig upp á skaftið, og verk hans fjarlægðust meira og meira rómantísku stefnuna. Á árunum 1920-30 hóf hann að semja undir þeirri stefnu eða rétt- ara sagt kerfi, tólf tóna kerfinu, sem borið hefur frægð hans sem föður nútíma tón- listar. Schönberg hefur ritað bækur um þetta kerfi sitt, þar sem hann setur fram tónfræðilegar kenningar um það, hvernig semja skal eftir því. Eins og nafnið bendir til, byggist tólf tóna kerfið á því, að allir tólf tónar áttundarinnar eru notaðir jöfnum höndum. Þetta hefur að sjálfsögðu í för með sér, að dúr- og mollkerfinu er á glæ kastað. Ýmsar reglur eru um niðurröðun tónanna, t. d. það, að engan tón má endurtaka, fyrr enn allir aðrir tónar áttundarinnar hafa verið leiknir. Verk þau, sem Schönberg samdi samkvæmt þessu kerfi, þykja erfið á- heyrnar. Starf hans er fyrst og fremst fólgið í myndun fræðisetningar, sem í verkum nemenda hans hefur breytzt í list. Á síðustu árum hafa arftakar Schönbergs þó ekki fylgt tólf tona kerfinu bókstaflega. Schönberg naut fremur lítilla vin- sælda í lifenda lífi. Má til gamans geta þess, að árið 1905, þegar nýtt sinfóniskt Ijóð eftir tónskáldið var frumflutt, skrif- aði gagnrýnandi einn í Vínarborg um

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.