Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.02.1961, Qupperneq 7

Skólablaðið - 01.02.1961, Qupperneq 7
-111 Schönberg, að hann væri "maður, sem sé algjörlega skyni skroppinn og álíti aheyrendur sxna fífl .... Verk Schön- bergs er ekki aðeins fullt af vitlausum nótum, eins og Don Quixote eftir Strauss, heldur er það fimmt'íu mínutna löng vit- laus nóta. Þetta ber að skilja bókstaf- lega". Þetta var þó ritað, áður en Schönberg fann upp tólf tóna kerfið. Russinn Igor Stravinski fetar aðrar slóðir en Schönberg. Hann notar hin gömlu tónfræðikerfi. Þó notar hann stundum mismunandi tóntegundir sam- tímis í sama verki. Veldur þetta oft harla skringilegum samhljóm. Hljóm- sveitarútsetning Stravinskis er skemmti- leg og litrík. Einkum er það þó taktur- inn ( rythminn ), sem einkenna verk hans. Það er alltaf þessi öruggi þungi taktur líkt og í jazz. Á efri árum hefur Stravinski samið undir nokkrum áhrifum frá Schönberg. Þannig hafa hinar tvær meginstefnur nálgazt hvor aðra. Ég vil geta þess, að Listafélagið mun að líkindum hafa plötukynningu á verkum Stravinskis í vetur. Við skulum nu snóa okkur að spurn- ingunni, sem er fyrst í þessu greinar- korni og íhuga hana nánar. Hefur tónlistin tekið grundvallar- breytingum á þessari öld, hefur hún fjar- lægst hið listræna, það sem gefur henni gildi ? Ég tel það ekki. Það er sama, hvort listamaðurinn notar tólf tónakerfi Schön- bergs, fjöltóntegunda kerfi og rythma Stravinskis eða fúguform barokktímans. Þetta er aðeins það form, sem tónskáld- ið semur verk sitt eftir. Formið er að- eins það, sem tónskáldið byggir á, þegar það tjáir hugsanir sxnar og tilfinningar. En það er andi tónskáldsins, sem gefur verkinu gildi, sem gerir "listina langa", þó að "lífið sé stutt". En þá skulum við orða upphafsspurn- inguna frá öðrum sjónarhóli. "Hvernig er unnt að skilja, hvað tónskáld atóm- aldarinnar vilja segja með verkum sín- um ? Þau eru svo óáheyrileg með öll- um sínum mishljómum. Það er einhver munur að hlýða á verk frá rómantíska tímabilinu, þar sem tilfinningar lista- mannsins bókstaflega ólga í gegnum verkið. " Það er vissulega satt, að hlusta þarf oftar á nútímaverk en verk hinna gömlu meistara, til þess að hafa gaman að þeim. Það er a. m. k. reynsla mín. En þarna erum við komin að þeim misskilningi, að það sé nauðsynlegt að skilja tónlist. Hana á ekki að skilja. Það á að njóta hennar. Við skulum taka eitthvert ýkt dæmi. Hugsum okkur, að ég og þú, lesandi góður, hlýðum báðir á sama tónverkið. Tónskáldið hef- ur haft í huga fallega sveit, þegar hann samdi verkið. Hann heyrir lækinn sytra og fuglana syngja. Það er sumardagur. Þegar ég hlusta, finnst mér verkið lýsa borg. Fólkið gengur um sér til skemmt- unar í j?óðá veðrinu og vagnaskrölt heyr- ist. Þer finnst verkið lýsa hafinu. Bár- urnar skoppa kænunni, þegar þær skella a kinnungnum. Hvorugur höfum við skilið bókstaf- lega merkingu verksins, en við getum notið verksins engu að síður og haft mjög gaman af því. Efalaust hefðum við notið þess enn betur, ef við heíðum skil- ið það á sama hátt og tónskáldið. Þá hefðu ýmis smáatriði skýrzt fyrir okkur. En þetta gildir þó aðeins, þegar tónarnir lýsa einhverju hlutstæðu, þegar hægt er að lýsa verkinu með sögu eða frasögn, þ. e. a. s. þegar verkið er pró~ grammúsík. En þegar tónlistin lýsir ekki neinu í beinum skilningi, heldur aðeins er, þá getur verið erfiðara að komast að þeirri hugsun, sem býr að baki verkinu. En skiptir það þá máli, þó að tón- listin vekji ekki sömu kenndir hjá hlust- andanum og tónskáldinu, sem skóp hana? Er jafnvel ekki betra, að hlustandinn noti sitt eigið hugmyndaflug og skilji verkið á sinn hátt, eða hreinlega skilji það ekki, heldur njóti þess. Þorkell Helgason. Að gefnu tilefni skal þess getið, að það var ekki Einar Magnússon yfir- kennari heldur bara Einar Már ritstjóri, sem skrifaði í síðasta blaði blekslettur um sögukennslu undir stöfunum E. M.

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.