Skólablaðið - 01.02.1961, Side 8
- 112 -
Níözt á smælingjum.
IKAN heldur áfram ofsókn-
um sínum á hendur
Menntaskólanum.
í súmar birtist viötal viö
Tryggva Karlsson, og
hraut margt gullkorn af vörum hon-
um. En nú hefur veriö vegiö tvisv-
ar í sama knérunn. Vart veröur
annaö sagt en viötal viö "stúlku úr
Menntaskólanum" hafi veriö nauöa-
ómerkilegur þvættingur. í>ó vakti
viötaliö reiöi ýmissa borgara hér í
bæ, m.a. froöufelldi nöldurseggur
Alþýöublaösins, Hannes á hornum
sér. Spæjarar og kjaftakindur skól-
ans hafa haft augu og eyru opin, en
ekki oröiö svo mikils vísari, aö
óhætt sé aö fullyröa, hver hafi tal-
aö viö blaöamanninn. En öörum
þræöi er viötal þetta svo ómerki-
legt, aö stúlkukindin veröur aö
sætta sig viö aö vera ekki umtöluö.
Skepnuskapur ?
Sýningar Filmíu eru jafnan hinn
mesti menningarviöburöur og sækir
fjöldi menntlinga jafnan sýningar.
Því miöur vildi svo til, aö miös-
vetrarpróf stóöu yfir í efri bekkj-
unum, þegar fyrsta sýning eftir ný-
ar var. Fyrir bragöiö misstu
nokkrir samvizkusamir nemendur af
sýningunni, en þó fóru margir.
Er þetta bagalegt, þar sem myndin
er talin bráöfyndin og skemmtileg.
Fylgzt meö tímanum._
Félagsheimilisnefnd keypti ný-
lega pylsupott, og fylgdi honum
ráðskona. Garöar lætur engan bil-
bug á sér finna í hinni höröu sam-
keppni viö búllur borgarinnar og
auglýsir jafnvel dansleiki sína sem
skröll. ísvél veröur sett upp von
braöar, en leyfi fyrir jukeboxinu
hefur ekki enn þá fengizt.
_Me_s sías_ fundinn^
Nýr spámaöur hefur hafiö upp
raust sína meöal lýösins og þykir
taka Tryggva Karlssyni fram. Þegar
biskupinn tók þátt í trúmálaumræöum
í íþöku, kom andinn yfir Svein Val-
fells, og tók hann að tala tungum.
Yrti hann svo á biskupinn: Gada
mar, ka seirum hesa drú? - Ræða
Sveins hljóðar svo í íslenzkri þýö-
ingu : Hvað er þetta maöur, hvaö
segiröu um þessa trú ?
No£Ö u r fö£_._
Eins og kunnugt er.fór inspector
scholae til Akureyrar ásamt leikend-
um og starfsfólki Herranætur.
Sýndu þau þrisvar viö mikinn fögnuö.
ÁÖur fyrr hafa embættismenn einir
og örfáar stúlkur notiö góðs af þess-
um nemendaskiptum, og er sagt, aö
manninum, sem vildi flýta nemenda-
skiptum, finnist þetta fjandi skítt.
Píslarvotturinn.
ólafur R. Gr'ímsson vinnur sér
margt til frægöar um þessar mundir.
Viö guösþjónustu í Dómkirkjunni rétt
fyrir jólin fékk (sic! ) ólafur aö bera
fána Menntaskólans. Bindindisdaginn,
1. febrúar, var jafnvel enn meira um
dýrðir. Fékk Ólafur leyfi úr skóla,
sigldi hraöbyri í Austurbæjarskólann
og boðaði óhörönuöum unglingum
bindindissemi og lítillæti hjartans.
Þe^ar ónefndur kennari Gagnfræöa-
skolans viö Vonarstræti var spurður
um bindindisstarfsemi í skolanum
þennan dag, svaraöi hann því til, aö
"Ólafur Grímsson vildi fá aö tala. "
Ólafur mun halda utan í sumar á veg-
um kristniboðsins í Konsó.
Hanri_Sver r ir.
Sverrir Hólmarsson dvelst nú í
Vesturheimi. Situr hann enn í skóla,
en mun ferðast einn mánuö um Banda^
ríkin. Fyrst var Sverri komiö fyrir
hjá Gyöingafjölskyldu, en nokkru síðar
var honum komiö fyrir hjá púrítönum,
sem neyta hvorki tóbaks, áfengis,
sykurs o. s.frv. , og eiga þeir aö
kristna Sverri. Aö ööru leyt'i kemur
hann sér vel og veltir oft vöngum í
sjónvarpi. Tslenzku kunni hann sæmi-