Skólablaðið - 01.02.1961, Síða 9
113 -
lega, er síðast fréttist, en rægitungur
segja, aS ensk orð og setningar, ja,jafn-
vel heil bréf á ensku slæðist öðru
hverju hingað upp. Hann er væntanlegur
í aprílbyrjun.
_Listayikan.
Listavikan hofst með opnun mál-
verkasýningar. Sýningin var fjölbreytt
( þ. e. sundurlaus ) og verkin heldur mis-
jöfn. Gamall vildarvinur Listafélagsins
skoðaði sýninguna og reit athugasemdir
a sýningarskrána. Allar kynningarnar
tokust vel, einkum leiklistarkynningin.
Voru menn nokkuð lengi að átta sig á
málflutningi Þorvarðs Helgasonar, sem
las upp erindi eftir Ionesco. Héldu menn
lengi vel, að Þorvarður flytti hér eigin
skoðanir og væri að skandalísera.
Þegar Tryggvi Karlsson sá auglýsinguna
um leiklistarkynninguna, spurði hann :
!lHvað hafa Sameinuðu Þjoðirnar að gera
með þetta? "
Hámarki náði listavikan með lista-
máltíðinni í veitingahúsinu Klúbbnum.
Voru þar ríkulegar veitingar á borð born-
ar, dans stiginn fram eftir nóttu, en
ræðuhöld og fjöldasöngur féllu niður, hvað
setti mjög ánægjulegan svip á alla sam-
komuna. Engir kennarar voru viðstaddir.
-Malsvar nir _og_ málfundi_r\
Málsvarnafyrirkomulagið hefur gefið
allgóða raun, sem af er. Málsvörn
Magnúsar JÓhannssonar var að vísu orð-
in að leiðindaþrasi undir lokin, enmáls-
varnir Svavars Gestssonar og LÚðvíks
Karlssonar tókust sæmilega. Tungufant-
urinn Tryggvi Karlsson hélt einnig máls -
vörn og sagði margt merkilegt. Eru hér
sýnishorn málflutnings hans :
"Verið ekki svona smásugusamir".
"Ef ég sýndi ykkur mesta mann í heimi,
munduð þið hlæja að honum. En sjálf-
sagt hefur hann aldrei verið til".
"Menn, sem eru ekki að kippa upp við
það, sem þeim kemur við. . "
"Ég vil ekki stimpa við þúfurnar, þegar
menn eru að klifra á fjöll".
"í htíndum gjaldkera sjóðsins, Einar
Maggs.." "Ef skólafundur telur mál
þetta ekki virði, að skólinn beiti þvífyr-
ir sér. . "
S KÓLABLAÐIÐ
Gefið út í Menntaskólanum Reykjavík
Ritstjóri :
Einar Már Jonsson 5. -B
Ritstjórn :
Guðjón Albertsson 6. -B
Garðar Gíslason 5. -B
Baldur Símonarson 5. -X
Gunnar Sigurðsson 5. -X
Ólafur Gíslason 4. -X
Björn Bjarnason 3. -E
Auglýsingastjóri :
Erna Ragnarsdóttir 5. -A
Ábyrgðarmaður :
Guðni Guðmundsson, kennari
Forsíðumyndin er gerð efiir einni
mynd Ólafs Gíslasonar a myndlista-
sýningu nemenda í íþöku.
Aðrar myndir í blaðinu drógu Xngi-
mundur Sveinsson og Jon Gí slason.
Ritnefnd annaðist skreytingar.
SIGURKARL var að ganga út úr
stærðfræðitíma hjá V. -Z þegar hann
sneri sér allt í einu við og sagði :
"Hann Guðmundur Arnlaugsson er
veikur í dag, kennir hann ykkur ekki
stærðfræði? "
"Nous avons changé tout cela. "
Þorsteinn Gylfason: Mér skilst að
elektrónan sé höfuðeind efnisins.
Steini robott : HÚn er það ekki lengur.
Málfundir um sjónvarp og æskuna
og stjórnmálin tókst nokkuð sæmilega.
Ólafur R. flutti skrúðmikla ræðu um æsk-
una og stjórnmálin, en Haukur Henderson
flutti hiklaust beztu ræður kvöldsins.
Einn fundarmanna sagði oft deilt um, hvort
Lenin hefði sagt X eða Y. Haukur sagði:
"En ég segi, að Lenin hafi bæði sagt
X o£ Y.
- b -