Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.02.1961, Page 23

Skólablaðið - 01.02.1961, Page 23
127 - HITT sinn lét ég svo um mælt, að Skólablaðið leegi í kör, þó að hálffertugt væri. Þetta var í ritstjórnart'íð Þráins Eggerts- Isonar húmorista og sálfræð- ings. NÚ hafa nýir menn tekið stjórnar- taumana, og bregður þá svo við, að nokk- uð bráir af því, þótt enn hafi blaðið ekki risið úr rekkju. Þriðja tölublað 36. árg. er vandað að ytra frágangi, skreytingar eru góðar og spódrættir allsæmilega uppdregnir. Blaðið er efnismikið, grein- ar margar og yfirleitt skilmerkilegar. En það vekur furðu mína, að aðeins þrír menn í þessum skóla fitli við skáldskap að nokkru ráði og þá aðallega Ijóðagerð. Af þessum þrem mönnum er ein stúlka. Hún birtir fjögur ljóð eftir sig, kvæði, er fjalla um fornar ástir, sorg og gleði I tíma og rúmi. Ötl eru Ijóð þessi snotur og lyrisk, en þar ekkert sagt, sem hafði ekki áður verið mælt á annan máta. Skáldkonan er full lífsleiða, stundum um of, svo að hún er sem göm- ul vonsvikin piparmey, er telur upp raunir sínar við rokldnn sinn. Hinsveg- ar leikur varla nokkur vafi á því, að hér er mjög gott skáldefni á ferðinni. - Maður er nefndur Sverrir Holmars- son, ungur piltur og áræðinn. Er hann af sumum talinn séní, en af öðrum bara meðalmenni á grænni grein, sem gaman er að hlusta á, en heldur ekkert meira. Sverrir þessi yrkir mikið og berst mik- ið á, þótt kvæði hans séu ekki að sama skapi fögur og þau eru mikil að vöxtum. Skáldið langar til þess að segja eitthvað krassandi, eitthvað, sem situr eftir I hugum manna. Honum hættir því til að verða of margmáll og láta allt vaða, sem honum dettur I hug. Gott dæmi um þetta er kvæðið Myndir í myrkri, mynd- ir, sem verða riss í höndum Sverris. Höfuðgalli á Ijóða^erð Sverrir er sá, að hann lætur allt fjuka. Þessve^na stang- ast þar. allt'á, eitt rekdr sig a annars horn eins og graðpening hendir vorri. Sverrir Hólmarsson er þó ekki gjör- sneyddur skáldlegu skyni, hann hefur góða ldmnigáfu og tekst því stundum vel upp I stælingum. En hann brennir sig á sama soðinu og svo margir á undan honum, hann heldur, að það, sem stór- skáldum er leyfilegt, geti hann leyft sér líka. Sverrir Holmarsson mun ef til vill, er fram líða stundir, geta sér mik- inn orðstír á bragabekk, ef hann temur sér hér eftir öllu vandaðri vinnubrögð og gætir hófs I hvívetna. Rímur hafa sjaldan birzt I Skóla- blaðinu, enda lítt ortar nú á dögum, nema I skopi. Ungur maður, allvel hag- mæltur, Böðvar Guðmundsson að nafni sýnir okkur, að þessi gamla list er ekki alveg útdauð með íslendingum. Ríman er a.llvel ort á köflum í lettum og gam- ansömum tón, enda þótt yrkisefnið sé heldur ómerkilegt. Um leið og höfund- ur hendir gaman að hinum gömlu og úreltu kenningum rímnanna.skopast hann að yrkisefninu, Ólafi hinum rauða og Þorleifi nokkrum Haukssyni og baráttu hins síðarnefnda við listagyðjuna. En gamni fylgir ávallt nokkur alvara, sumar vísur rímunnar er tær skáld- skapur eins og t. d. mansöngur fjórðu rímu. Mega þeir Þorleifr ’ vel una við rímu þessa, enda hlutur þeirra I engu geröur minni en Odds sterka af Skagan- um. Lífið og Eggert heitir viðtat eitt við Eggert Stefánsson. Viðtal þetta er af- bragðsgott, fyndið og skemmtilegt og bregður upp skyrri mynd af heimsmann- inum Eggerti Stefánssyni. Fer vel á því að ritnefnd, leiti efnis I blaðið utan skólans , þvl að hitt er heldur einhlítt, þegar til lengdar læ tur. Sú er tlzka meðal vlCförulla manna, að þeir riti I ýmis blöð eitthvað um ferðir sínar. Hefur Skólablaðið birt nokkra af þáttum þessum. Sumir ferðalangar lýsa menningu og listum þjóða þeirra, sem þeir sækja heim, en aðrir næturlífi og Frh. á bls. 130.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.