Skólablaðið - 01.02.1961, Qupperneq 28
132 -
þættir í starfsemi félagsins ná aðeins til
þeirra, sem hafa mestan skilning á list
og þurfa því ekki á listkynningu að halda."
"Hvernig lízt þér á rekstur félags-
heimilisins? "
"Hann er kominn 'í það horf, sem
hann á að vera. Nefndin á að skaffahus-
pláss, en ekki verameð starfsemi, sem
er samkeppni við önnur félög í skólanum.
Það er nefnilega þroskandi, að starf hvíli
á sem allra flestum herðum. "
"Þér lízt auðvitað vel á SKÓLA-
BLAÐIÐ ? "
"Ju, mikil ósköp, en mér finnst að
greinar um löngu liðin skáld megi missa
sig, það hlaupa allir yfir þær nema e.t.v.
höfundurinn. "
"Hver er skoðun þín á náminu? "
"Námið er leiðinlegt. Það hefur
engan praktískan tilgang. Svo vantar
kennslu í ýmsu verklegu. Menn fjarlægj-
ast það, sem þeir eiga að vinna við.
Menntaskólinn er vísindalegur skóli, ekki
neinn Verzlunarskóli, þar sem menn læra
prósentureikning og dönsku. "
"Hvað viltu svo segja um félagslífið
og þín eigin áhugamál? "
"Ja - söngur er mér ekkert sérstakt áhugamál, ég er a.m.k. enginn hugsjona-
maður. Ég vil leggja áherzlu á, að sumir hafa alls ekki valið rétt um hinar mörgu
greinar, sem bjóðast í félags- og skemmtanalífi. Á ég hér við drykkjuskap, sem
er að verða einkenni á Menntaskólanum, og yfirleitt áhugaleysi á tilverunni. -
Ég vil stuðla að félagslífi á þroskandi og skemmtilegan hátt, og ég er viss um, að
skálinn mun verða til þess, auk þess sém hann treystir böndin við skólann. "
"Hvað finnst þér um móral menntlinga? "
"Ja, hann er ekki upp á það bezta. Að vísu bætir Iþaka mikið úr, en mér
finnst, að það vanti einhvern þátt í félagslífinu, sem allir hafa áhuga á og er ekkert
torskilinn, engin háfleyg list eða neitt svoleiðis. Klúbbar Framtíðarinnar eru að
mínu áliti spor í rétta átt til að skapa sérstaka stemningu, sem allir geta tekið þatt
í. Félagslífið er ekki nógu almennt og þá fer mórallinn út á villigötur.
RITDÓMUR , frh. afbls. 130. "Gott er að sofa í morgunmund."
þökkum því höfundum þessarar sögu af heitum hug fyrir þann ríka og ómetan- lega skerf, er þeir hafa lagt fram I þágu menningarinnar. Reykjavík, í jan. 1961. Sverrir Tomasson Það var snemma morguns og nem- endur V.-Y hlýddu hálfsofandi á lang- dregnar útskýringar kennarans. Skyndilega var barið harkalega á dyrnar. Þá reis Lúkki upp við dogg, horfði ringl- aður í kringum sig og kallaði stundarhatt: " Kom inn. "