Morgunblaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 6
6 Spegill ársins MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009 Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is Kannski fjölgar risaveldunum næstuáratugina, Indland verður senn fjöl-mennasta ríki heims og þar er mikillhagvöxtur eins og í Kína. Bras- ilíumenn eru nær 200 milljónir og miklar olíu- lindir hafa fundist í lögsögunni. En Kína hefur þegar stigið fram á sviðið og aldrei hefur það verið jafn ljóst og á árinu sem er að líða. Tví- póla heimur tveggja risavelda er að fæðast á ný, hversu lengi sem hann varir. Kínverjar hafa jafnt og þétt styrkt stöðu sína, þeir stóðu betur af sér fjármálakreppuna alþjóðlegu en Vesturveldin, amk. í bili, hag- vöxtur er aftur kominn á skrið og þeir eiga gríðarlegan forða af dollurum og bandarískum ríkisskuldabréfum. Risaveldin tvö eru því háð hvort öðru, ef hrun yrði í efnahag annars myndi það lenda með braki og brestum á hinu. Nýja heimsveldið reynir að tryggja sér olíu og ýmis hráefni í Afríku með stefnu sem um margt minnir á gamla nýlendustefnu Evrópu- ríkjanna. Hvað verður gengið langt til að vernda þessa hagsmuni? Kína er ekki lýðræðis- ríki og margs konar óánægja fær ekki útrás í kosningum eins og á Indlandi eða í vestrænum ríkjum. Mörg þjóðarbrot una illa sínum hag, á hverju ári er einnig efnt til tugþúsunda ólög- legra verkfalla og mótmæla, víða fara hroka- fullir embættismenn sínu fram og hunsa fyrir- mæli frá Peking. Hu Jintao forseti og menn hans lifa í stöðugum ótta við að ókyrrðin breið- ist út og þeir missi stjórn á atburðarásinni. Vandi lýðræðisríkja er að þau vilja fórna miklu til að fá Kínverja og Rússa í lið með sér í baráttu gegn ögrunum Norður-Kóreumanna, kjarnorkudraumum Írana, kreppu og loftslags- vanda en hafa um leið áhyggjur af stöðu mann- réttindamála. Þau vilja líka, hvert um sig, vera viss um að fá aðgang að kínverskum mörk- uðum. Ráðamenn í Peking nota hiklaust við- skiptalegar refsingar gegn ríkjum sem ekki makka rétt, stefnan ber árangur og þess vegna halda þeir að sjálfsögðu áfram á sömu braut. Búrma og Simbabve eru réttilega fordæmd en Bandaríkin segja nú að tekið verði á brotum Kínverja og Rússa með „lágværum samræð- um“ sem merkir m.a. að mál Tíbeta og Uighura verða að mestu hundsuð. Danir og Frakkar létu á árinu undan kröfum Kínastjórnar um að draga ekki taum Dalai Lama, hann fær varla að hitta oftar ráðherra á ferðum sínum til land- anna. Obama og loforðin Margir biðu spenntir eftir því að sjá hvernig Barack Obama fylgdi eftir kosningaloforðum sínum á sviði utanríkismála. Fyrsta aðgerðin, strax eftir embættiseiðinn 20. janúar, var að gefa fyrirheit um lokun Guantanamobúðanna. Forsetinn hefur lagt sig fram um að nýta sér vel þann mikla meðbyr sem hann hafði á al- þjóðavettvangi vegna litarhaftsins og þess að hann var ekki George W. Bush. Í ræðu í Kaíró reyndi forsetinn að fá múslíma til að hætta að líta á Bandaríkin sem óvin. Mýktin réði ríkjum, hann bauðst til að ræða beint við leiðtoga Írans og hætti við að að reisa gagnflaugakerfi í Aust- ur-Evrópu vegna harðrar gagnrýni Rússa sem álítu að flaugunum væri beint gegn sér. En um leið uppskar Obama gagnrýni vina- þjóða í Austur-Evrópu sem fannst að verið væri að fórna þeim eins og peði til að blíðka rússneska björninn. Og margir urðu fyrir áfalli þegar forsetinn tók við friðarverðlaunum Nób- els og notaði tækifærið til að segja að stundum væru stríð réttlát. Enn er óljóst hvort Obama tekst að bæta stöðuna en sem stendur dvína vinsældir hans stöðugt heima fyrir. Hér hefur aðeins verið fjallað um stjórn- málavafstur. En í fyrsta skipti í sögunni sigldu vöruflutningaskip frá Austur-Asíu til Evrópu norðausturleiðina svonefndu, þ. e. norðan við Síberíu. Ef spár um hlýnun rætast gætu orðið straumhvörf í siglingum vegna þess að það er svo mikla styttra (og því ódýrara) að fara um norðurhjara en Súesskurð eða suður fyrir Afr- íku. Og byltingarkenndar tækniframfarir gætu á augabragði gerbreytt umræðum um gróður- húsaáhrif, baráttu gegn hryðjuverkum og hungur í heiminum. Spádómar um heimsendi rætast enn sjaldnar en hinir. Þvingað faðmlag  Bandaríkin og Kína eru risaveldi næstu áratuga  Liðið ár sýnir að ríkin tvö eru svo háð hvort öðru um margt að slagsmál yrðu banabiti beggja AP Mælskur Barack Obama forseti þykir hafa persónutöfra og vera afar snjall ræðumaður. Skóverksmiðja í Hefei Kínverjar hafa víða lagt undir sig alþjóðamarkaði fyrir fatnað og leikföng. Reuters Vinsælt á Horuð eða falleg? Beit framan afeigin lim Munnmök engin fyrirstaða Rihanna nakin á netinu? Ísland komið áfram Svaf uppí hjá mömmu til fimmtán ára aldurs Helstu fréttir ársins 2009 11. Sjálfstæðisflokkurinn logar vegna styrkjanna Fundað í hverju horni Sjálf- stæðisflokksins vegna hárra styrkja Landsbankans og FL Group 15. Skuld RÚVbreytt í hlutafé Ríkisstjórnin hefur samþykkt að breyta ríflega 562 milljóna kr. skuld Ríkisútvarpsins ohf. við ríkissjóð í hlutafé 18. MP banki hættir við að kaupa útibú SPRON Allt að 40 fyrrum starfsmenn SPRON fá því ekki vinnu á ný í útibúum sjóðsins 20. 109 kíló af hörðum efnum finnast • Stærsta fíkniefnamál sem komið hefur upp á Íslandi • Efnin sótt á skútu langt á haf út 27. Þingmeirihluti fyrir aðildarumsókn að ESB Niðurstaða þingkosninganna söguleg og stendur upp úr að vinstriflokkarnir náðu hreinum meirihluta 27. Eldri hjónum haldið í gíslingu heima Tveirmenn réðust inn áheimili eldrihjónavopnaðirhnífum,stálu verðmætumoghótuðu lífláti 28. Ósætti um ESB Steingrímur J. Sigfússon segist hafa lægt öldurnar en Atli Gíslason lofar engu um stuðning við stjórn 30. Illa leikin eftir árás Stúlknahópur réðst á 15 ára stúlku í Heiðmörk Maí 5. ESB-málið til Alþingis Lending hefur náðst milli ríkisstjórnarflokkanna um nálgunina að ESB-aðild 5. Öllum 50 starfsmönnum Nesprýði sagt upp 11. Ný stjórn mynduð í skugga kreppu Fyrsta hreina vinstristjórnin tekin við völdum 12. Teymi tók yfir skuldir stjórnenda félagsins 13. Nýskráningumútlendinga fækkar úr 1.339 í 58 Atvinnurekendur þurfa ekki lengur að tilkynna ráðningar til Vinnumálastofnunar 13. Erfiður niðurskurður í grunnskólum Hagrætt í grunnskólum Reykja- víkur um 7% á þessu ári 14. Vantar minnst 10 milljarða til að tryggja stöðu Sjóvár 15. Formenn undrandi á tillögu um aðildar- viðræður við ESB Fundað með utanríkisráðherra sem freistar þess að ná breiðri samstöðu ummálið 16. Mál Milestone og Sjóvár til rannsóknar Fjármálaeftirlitið hefur vísað um 10 málum til opinberrar rannsóknar 18. Íslenska lagið Is It True hafnaði í öðru sæti í Evróvisjón JóhannaGuðrún jafnaði tíu ára gamaltmet SelmuBjörnsdóttur 22. Ríkisbankarnir reknir með tapi Lækka á innlánsvexti, draga úr kostnaði og minnka umsvif 23. Nokkrir grunaðir um auðgunarbrot • Kaup sjeiksins á hlut í Kaupþingi til rannsóknar • Leitað heima hjá fyrrverandi stjórnendum Þráteflið vegna kjarnorku- tilrauna Írana heldur áfram. Óstöðugleikinn á svæðinu er svo mikill að menn óttast að kjarnorkustríð gæti brot- ist út, hugsanlega fyrir slysni, ef Íran yrði kjarn- orkuveldi. En hve traust er stjórnin í Teheran? Íranar eru sjálfir aðeins um helmingur lands- manna, enginn veit hvenær önnur þjóðarbrot fara að heimta meiri réttindi eða jafnvel sjálfstæði. Íran gæti klofnað. Og mótmælendur í Teheran nota nú sömu slag- orðin og þegar keisaranum var velt 1979 og hrópa „Harðstjórinn deyi!“ og snúa út úr öðru „Sjálfstæði, frelsi, íslamskt lýðveldi!“, hrópa nú á íranskt en ekki íslamskt lýðveldi. Ofbeldið sem liðsmenn Mahmouds Ahmadinejads for- seta hafa beitt gegn stjórnarandstæðingum hafa fengið suma Írana til að fyllast efasemd- um um sjálfan grundvöll ríkisins: íslam. Ríki og trú eru eitt, trúnni er því kennt að hluta til um vandamál eins og atvinnuleysi, spillingu, fíkni- efnaneyslu og vændi. Hinn virti ajatollah Hossein Ali Montazeri, sem lést rétt fyrir jól, fordæmdi forsetann og stjórn hans í sumar. Valdaklíkan er því klofin og þótt voldugasti maður landsins, ajatollah Ali Khamenei, styðji forsetann tortryggja margir klerkar Ahmadinejad. Hann er í afar ofstækis- fullum sértrúarsöfnuði sem hefur ímugust á klerkum og segir þá munu gjalda á efsta degi fyrir spillingu sína og pólitískt pot. Ef aftur verður bylting í Íran er ljóst að trúin verður enn á dagskrá, en ekki á sama hátt og 1979. Verður íslam sökudólgur? Mahmoud Ahmadinejad Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál í Kaupmannahöfn átti að tryggja að haldið yrði áfram á brautinni sem mörkuð var í Kýóto fyrir 12 árum og í þetta sinn gerðu margir sér vonir um að Bandaríkin tækju foryst- una. En raunverulega um- ræðuefnið varð ekki hlýnun vegna loftslags- breytinga heldur beinharðir peningar, deilur um réttláta skiptingu kostnaðar af aðgerð- unum. Svo fór að fjallið tók jóðsótt en fæddi mús. Skýringin sem blasir við er að mörg voldug ríki vildu af ýmsum ástæðum aldrei neinn bindandi alþjóðasamning um samdrátt í losun koldíoxíðs. Erfitt efnahagsástand á sinn þátt í tregðunni til að taka á sig dýrar skuldbind- ingar, ekki bætti úr skák að efasemdir um við- varanir vísindamanna hafa fengið byr í seglin síðustu vikurnar. Og ótti almennings við hlýn- un fer víða minnkandi, þrátt fyrir áróðurs- herferð stjórnmálamanna og fjölmiðla. Bandaríkjamenn voru árum saman einir um að bera því við að það myndi valda miklu tjóni á efnahag þeirra ef samdráttur í losun yrði ekki látinn ná einnig til vaxandi iðnvelda eins og Kína sem losar meira af gróðurhúsa- lofttegundum en nokkurt annað ríki. En nú viðurkenna margir Evrópumenn að sams kon- ar rök gildi um þá; evrópsk fyrirtæki yrðu undir í samkeppninni ef þau tækju á sig álög- ur en Kínverjar, Indverjar og fleiri þjóðir slyppu. Beinharðir hagsmunir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.