Morgunblaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 30
Plötur ársins
2009
Segja má að árið 2009 hafi verið merkileg músíkár og þá að-
allega fyrir það sem kemur músíkinni ekki beint við því mikl-
ar sviptingar urðu í útgáfumálum og til varð nýtt fyrirtæki
sem hefur heldur en ekki náð góðum árangri fyrir þessi jól.
Einyrkjarnir voru líka öflugri en nokkru sinni og svo komið
að um tvöfalt fleiri plötur berast frá einstaklings- og hljóm-
sveitaútgáfum en frá hefðbundnum útgáfufyrirtækjum.
Tónlistin var líka fjölbreyttari er nokkru sinni og gaman að
heyra gamlar hugmyndir / gömul hljóð ganga aftur í raf-
tónlist og rokki, en líka að heyra sitthvað glænýtt og spenn-
andi – svo frumlegt að maður stendur á öndinni - sjá til að
mynda Bibio eða Ben Frost; ólíkir pólar en báðir að skapa
eitthvað nýtt og spennandi.
Árið 2009 var merkilegt músíkár að mati
Árna Matthíassonar sem tínir hér til þær
plötur sem honum þótti skara framúr.
Bestir Kimono hefur gengið í gegnum sitthvað en stendur sterkari eftir og Easy Music for Difficult People er plata ársins.
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009
múm – Sing Along to Songs You Don’t Know
Þó maður þykist þekkja
„múmhljóminn“ þá hafa
plötu sveitarinnar verið
býsna ólíkar um margt.
Aldrei hefur sveitin þó
tekið eins stórt skref út í
óvissuna og með þessari
plötu, enda hlutu svo
miklar mannabreytingar
að hafa sitt að segja. Af-
raksturinn er því ekki al-
veg eins og áður, en ekki
síðri – meiri söngur og
meiri ævintýri.
Anna Guðný Guðmundsdóttir – Tuttugu tillit
Það þarf mikinn metnað
til að glíma við annað
eins verkefni og þetta og
ekki bara metnað heldur
líka ríkulegt listfengi og
næman skilning. Þessi
útgáfa Önnu Guðnýjar
stenst fyllilega sam-
jöfnuð við það besta sem
menn hafa gert á þessu
sviði ytra og það eykur
enn ánægjuna af að
hlusta hve hljómur er
góður.
The Deathmetal Supersquad – Dead Zeppelin
Það er óneitanlega nokk-
uð til trafala við að hlusta
á þessa skífu hvað hljóm-
ur á henni er daufur, vant-
ar í hann hita og snerpu.
Nái maður að líta framhjá
því birtist mögnuð rokk-
skífa með frábærri
keyrslu. Hún hefði þó
gjarna mátt vera lengri,
en það kemur væntanlega
á næstu plötu. Bendi sér-
staklega á lokalag skíf-
unnar sem er snilld.
Björk – Voltaic
Þeir sem séð hafa Björk
Guðmundsdóttur á tón-
leikum vita að hverjir tón-
leikar birta nýja sýn á lög
hennar. Það var því vel til
fundið að taka saman tón-
leikaupptökur frá Volta-
tónleikaferðinni og eins að
krydda með myndefni þar
sem hún blandar saman
hefðbundnum tónleika-
upptökum, stúdíótón-
leikum og tónleikum í
Langholtskirkju.
Lady & Bird – La Ballade of Lady & Bird
Samstarf Barða Jóhanns-
sonar og Kerenar Ann Zei-
del hefur skilað ríkulegum
ávexti sem sönnun þess er
platan La Ballade of Lady
& Bird. Hún er upptökur
frá tónleikum þar sem Sin-
fóníuhljómsveitin flutti
lög þeirra í snilldarútsetn-
ingum Þorvalds Bjarna
Þorvaldssonar, en á tón-
leikunum voru lög sem
þau hafa samið saman og
úrval sólólaga.
Egill Sæbjörnsson – Egill S
Egill Sæbjörnsson er eng-
um líkur, svo mikið er
víst. Ekki er bara að hann
er frumlegur og skemmti-
legur myndlistarmaður
heldur standa fáir honum
á sporði í popplagasmíði
og súrum textum sem
sannast eftirminnilega í
þremur fyrstu lögunum á
þessari mögnuðu skífu.
Vonandi þurfum við ekki
að bíða jafn lengi eftir
næstu plötu.
Innlendar plötur
Bloodgroup – Dry Land
Fyrsta plata þessarar
ágætu sveitar var
skemmtileg fyrir ung-
æðishátt og fjör, en nú
stígur Bloodgroup fram
fullvaxin. Þó ekki sé
verið að finna upp hjól-
ið er platan bæði frum-
leg og spennandi og
umtalsvert betri en
fyrri skífan enda mikið í
hana lagt. Eins og mað-
urinn sagði: Retró er
kúl.
Hjaltalín – Terminal
Fáar hljómsveitir hafa
verið eins duglegar við
spilamennsku og Hjalta-
lín sem skilar sér í beittri
og drífandi plötu. Á plöt-
unni eru grípandi popp-
stemmur í bland við
íburðarmiklar útsetn-
ingar og allt flutt af
miklum krafti. Fyrsta
skífa Hjaltalín var óvænt
innlegg í íslenska popp-
músík en Terminal er
miklu, miklu betri.
Sigríður Thorlacius – Á Ljúflingshól
Sigríður Thorlacius
stendur í ströngu með
Hjaltalín en gaf sér þó
tíma til að taka upp
þessa skífu sem bygg-
ist á lögum eftir þá
bræður Jónas og Jón
Múla Árnasyni. Á skíf-
unni tekst henni og
Heiðurspiltunum frá-
bæru að endurvekja
gamla stemmningu
með frábærum ár-
angri.
Kimono – Easy Music for Difficult People
Stundum þurfa hljóm-
sveitir að ganga í gegnum
erfiðleika og þrengingar til
þess að átta sig almenni-
lega á því hvað þær vilja
gera. Flestar leysast þær
reyndar upp þegar á móti
blæs, en þær þrauka sem
ná að finna neistann sem
leiddi menn saman í upp-
hafi og standa sterkari fyr-
ir vikið. Kimono er dæmi
um slíka sveit, því ekki er
langt síðan að menn héldu
að hún væri búin að syngja
sitt síðasta. Kimono-menn voru á öðru máli, löguðu sig að breytt-
um mannskap og birtast svo með þessa frábæru skífu – plötu
ársins.