Morgunblaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 29
29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009
WHO, Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, lýsti því yfir í júní að
svínaflensan, eða H1N1, væri orðin að heimsfaraldri og
færði viðbúnaðinn upp í sex eða efsta stig. Var þetta
ákveðið á fundi WHO í aðalstöðvum stofnunarinnar í Genf
eftir að sóttin hafði komið upp í fjölmörgum löndum. 40
ár voru liðin síðan WHO lýsti síðast yfir heimsfaraldri.
Stúlka er hér bólusett gegn H1N1 á sjúkrahúsi í Sichu-
an-héraði í Kína í nóvember.
Svínaflensan að heimsfaraldri
Reuters
Flugstjórinn Chesley Sullenberger var hylltur sem hetja í Bandaríkjunum
eftir að honum tókst að nauðlenda farþegaþotu US Airways á Hudson-
fljótinu við suðvesturenda Manhattan-eyjar í New York 15. janúar. Hann
þótti hafa sýnt dæmalaust snarræði. Um borð í vélinni, sem er af gerðinni
Airbus A320, voru alls 155 manns og komust allir af. Þotan hafði verið á
lofti í fáeinar mínútur en talið er að hún hafi flogið inn í hóp af Kan-
adagæsum sem hafi sogast inn í báða hreyflana og mun hafa kviknað í öðr-
um þeirra.
Flugstjóri hylltur fyrir hugrekki
Stjórnarherinn á Srí Lanka lýsti því
yfir í maí að honum hefði tekist að
sigra Tamíl-Tígrana eftir blóðuga
baráttu í 26 ár. Barátta Tígranna
fyrir sjálfstæðu ríki þjóðarbrots
Tamíla í norðausturhlutanum hefur
kostað um 70.000 manns lífið og
grimmdin hefur verið skelfileg á
báða bóga.
Stuðningsmenn Tamíla takast
hér á við lögreglumenn eftir að
hafa lokað götu við þinghúsið í
London 18. maí til að mótmæla
hernaði stjórnarhers Srí Lanka.
26 ára stríði á Srí Lanka lokið
Tugir þúsunda manna söfnuðust saman í Berlín 9. nóvember til að minn-
ast þess að 20 ár voru liðin frá því að Berlínarmúrinn féll. Leiðtogar
nokkurra erlendra ríkja heimsóttu borgina til að minnast þessa
tímamótaatburðar sem leiddi til falls kommúnistastjórnarinnar í Austur-
Þýskalandi, sameiningar Þýskalands og endaloka kalda stríðsins.
Flugeldar lýsa hér upp Brandenborgarhliðið í Berlín á afmælishátíð-
inni.
20 ár frá hruni Berlínarmúrsins
Mikil mótmæli blossuðu upp í Íran í júní eftir að þar-
lend yfirvöld lýstu því yfir að Mahmoud Ahmadinejad
hefði verið endurkjörinn forseti landsins í umdeildum
kosningum. Stuðningsmenn forsetans voru sakaðir
um stórfelld kosningasvik.
Að minnsta kosti 30 manns biðu bana í óeirðum eft-
ir kosningarnar og hundruð særðust. Endurkjör Ah-
madinejads olli klofningi meðal hátt settra klerka og
nokkrir þeirra tóku málstað andstæðinga forsetans.
Gamall maður otar hér staf sínum að liggjandi
konu sem tók þátt í mótmælum í miðborg Teheran 14.
júní.
Óeirðir í Íran eftir umdeildar kosningar
Mikil ólga hefur verið í Hondúras
síðan Manuel Zelaya, forseta lands-
ins, var steypt af stóli forseta 28.
júní. Zelaya sefur hér í sendiráði
Brasilíu í Tegucigalpa eftir að hann
sneri aftur til Hondúras 21. sept-
ember. Hann leitaði athvarfs í
sendiráðinu til að komast hjá hand-
töku.
Íhaldsmaðurinn Porfirio Lobo
Sosa sigraði í umdeildum forseta-
kosningum í Hondúras í lok nóv-
ember. Lobo hét því að koma á sátt-
um og binda enda á stjórnar-
kreppuna sem hófst þegar Zelaya
var steypt af stóli.
Zelaya steypt af
stóli forseta