Morgunblaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Fyrirsögnin er fengin úr dramatískrigrein sem höfundur ritaði stuttu eft-ir Hrunið ógurlega í október, 2008.Greinin var ósköp venjulegur pistill um poppklassík, í þessu tilefni plötu írsku þjóðlagasveitarinnar Mellow Candle frá 1972, Swaddling Songs. En hugurinn, eins og hjá svo mörgum öðrum, var einhvers staðar allt annars staðar. Við niðurlagið var maður kom- inn í undarlega meyrt skap og þá spratt þessi hending fram: „Því á meðan allt er að fara til helvítis, og það á fullu stími, eigum við þó alltaf tónlistina. Hvað sem á bjátar. Guði sé lof fyrir það.“ Það kom enda glögglega í ljós á árinu sem er að líða að þrátt fyrir gerningaveður í efnahags- lífinu; linnulausar „vondar“ fréttir og nánast lamandi andrúmsloft sem var vita vonlaust á köflum hélt tónlistin áfram að óma – eiginlega eins og ekkert væri. Menn héldu sínu striki, óhaggaðir. Og manni finnst eins og iðkun þeirrar eðlu listar hafi jafnvel verið af ríkari þörf en áður. Kannski er maður að ímynda sér þetta, orðinn meyr og ringlaður eftir vægast sagt erfitt árferði, en þannig er að minnsta kosti tilfinningin. Þegar forsendur fyrir efnis- legum hlutum bresta, hlutum sem hafa ekki raunverulegt gildi (Range Rover, Bang & Olufsen o.s.frv) blasir hitt skýrar við en nokkru sinni áður. Öryggið, gleðin, upplifunin og sálarnæringin sem felst í fallegri tónlist, flutt af heiðarleika og ástríðu hefur sann- anlega raunverulegt gildi fyrir mannlífið. Og reyndi ekki á þann sannleik sem aldrei fyrr á þessu ári? Klisjan segir að í kreppunni blómstri list- irnar en það er nú einu sinni svo að það er jafn- an fótur fyrir svona margtuggðum setningum. Segja má að innflutningur á erlendum hljóm- sveitum af stærri gerðinni hafi lagst af með öllu, en slík starfsemi var orðin að sæmileg- ustu atvinnugrein, með nokkur fyrirtæki í virkri samkeppni. Þær sveitir sem hingað komu voru sænska dauðarokkssveitin Entom- bed og Jethro Tull! En meðfram þessu höm- uðust íslenskar hljómsveitir við að spila á tón- leikum sem mest þær máttu. Í hverri viku mátti snuðra uppi fjölda tónleika með ung- sveitum af öllu tagi; lífið í grasrótinni hefur sjaldan verið á jafn miklu iði og einmitt nú. Í ár sáum við svo ungt hugsjónafólk færa sig inn á útgáfumarkaðinn og var útgáfufyrirtækið Borgin standsett. Einhverjum hefur ugglaust þótt tiltækið óðs manns æði, sé mið tekið af stemningunni í þjóðfélaginu en Borgin hefur þvert á móti verið á sigurbraut, nærfellt frá stofnun. Á þess vegum komu út plötur Hjaltal- ín og Hjálma, sem seldust vel. Þá er rétt að til- taka sérstaklega útgáfuna Brak, útgáfu sem er undirmerki Kima ehf, sem er rekið af hinum andríka og innblásna Baldvini Esra sem hefur verið mikill kraftaverkamaður í íslensku tón- listarlífi og blásið nýju og annars konar lífi í út- gáfumál á jaðrinum. Brak er bona fide kreppu- merki og svínvirkar sem slíkt. Á þess vegum kom út plata mánaðarlega, með tiltölulega óþekktum sveitum sem báru hins vegar með sér tónlistarlega dýpt; fersk- jafnt sem frum- leika. Umslög voru í heimabruggsstíl; útfærsla og hugmyndavinna ofar efnislegum þáttum. Svona starfsemi er ómetanleg fyrir grasrót- artónlistarlífið; þarna er fram komin ákveðin fyrirmynd og það verður spennandi að sjá hvort fleiri eigi eftir að feta í þessi fótspor á næsta ári. En hvar er krepputónlistin? Hvar eru hljómsveitirnar og söngvaskáldin sem mót- mæla ruglinu, sinnuleysinu og bara grámygl- uðum hversdagsleikanum í sand og ösku í reffilegum lagasmíðum sem eru samin af raun- verulegri innri þörf? Við þurfum líklega að bíða í nokkur ár eftir slíkri bylgju en hún mun koma, sanniði til. Þangað til verður í öllu falli spennandi að fylgjast með þróun mála í ís- lensku tónlistarlífi, sjá hvernig tónlistin tekur á gjörbreyttum aðstæðum þessarar fyrrver- andi ríkustu þjóðar heims. Jamm …við eigum þó alltaf tónlistina. Og Guði sé lof fyrir það. Tónlist …er tónlist  Þegar efnislegir þættir hverfa úr höndum okkar leggst áherslan á eitthvað sem ekki er hægt að verðleggja  Tónlistin lifði góðu lífi á ömurlegu ári Fjör Endalausar fréttir af sökkvandi efnahagslífi stöðv- uðu ekki undursamlega heima hljómlistarinnar. Hér má sjá Loga Pedro úr Retro Stefson, borinn um af gestum liðinnar Airwaveshátíðar. Morgunblaðið/Eggert Vinsælt á Forstöðuhjón Krossins að skilja Kynlíf fyrir heimilisfriðinn Guðrún fallegust á EM McDonald’s hættir - Metro tekur við Flosi Ólafsson er látinn Enginn vill sjá þrýstnar konur 12. Gegn markmiðum Seðlabanka Bankaráðsmaður Seðlabanka Íslands hafði samband við útflutningsfyrirtæki til að koma á aflandsviðskiptum með gjaldeyri 14. Róttækari aðgerðir til handa heimilum Tekjutenging afborgana af lánum eftir fyrirmynd náms- lánakerfisins meðal hugmynda 16. Stærsti álframleiðandi Kína spáir í Þeistareyki Ríkisstjórnin reynir að ná saman um orkumálin 17. Vanskil aukast hratt Nærri tuttugu þúsund ein- staklingar eru á vanskilaskrá 21. Kreppan dregur mikið úr umferð Helmingur landsmanna notar einkabílinn minna en fyrir efnahagshrunið 22. Söluverð Haga nýtt til að kaupa bréf af eigendum Jón Ásgeir segir þetta hafa verið gert að kröfu stærstu veðhafa Baugs Group 24. FME rannsakar allsherjar markaðsmisnotkun banka Beinist að því að kerfisbundið hafi verið reynt að hafa áhrif á verð hlutabréfa 25. Holskefla uppboða verði frestur ekki framlengdur 128 fasteignir höfðu í lok ágúst farið á nauðungarsölu hjá sýslumanninum í Reykjavík 26. Gersemum bjargað úr Höfða Betur fór en á horfðist þegar mikill eldur kom upp í Höfða 28. 25% lækkun höfuðstóls gengislánanna Gæti skipt sköpum fyrir marga skuldara 29. Bræðurnir seldu sjálfum sér Lyf og heilsu Moderna lánaði Werners- sonum fyrir kaupunum Október 1. Ekki samstaða um leiðir Ögmundur Jónasson sagði af sér ráðherradómi 2. Stórtækir auðlindaskattar Hugmynd um 16 milljarða orkuskatta ekki sögð ganga upp á neinn hátt 5. Flatur niðurskurður á Landspítala hættulegur Uppsagnir á 450-500 manns taldar skerða öryggisnetið 7. Ríkið á mis við milljarða Fyrirtæki frestuðu skattgreiðsl- um vegna hagnaðar af sölu hlutabréfa án heimildar 8. Tveir bankar afskrifa 50 milljarða Landsbankinn tapar 40 milljörðum vegna peninga- markaðssjóða 9. Icesave-mál hafa ekki haggast neitt Ljóst þykir að Icesave-málið stefnir aftur inn á Alþingi 13. Útlit fyrir að íslenska ríkið leggi til munminna fé Endurreisn bankanna verður líklega formlega lokið um næstu mánaðamót 16. Fleiri fá fjárhagsaðstoð á höfuðborgarsvæðinu Sprenging í sumum bæjar- félaganna 17. Meint allsherjarmisnotkun Kaupþings til saksóknara Markaðsmisnotkun getur varðað allt að sex ára fangelsi 19. Ekki lengra komist með Icesave-málið Búist við endurskoðun AGS innan tveggja vikna Helstu fréttir ársins 2009 „Mér fannst árið ekki mjög hressandi, sem er kannski ekki að marka því ég er gamall fauskur. Ég reyndi að vera á tánum varðandi erlenda músík, en þótt margt væri fínt – eins og plötur Micachu & The Shap- es, The XX og Green Day í meginstraumsrokkinu – var ekkert sem beinlínis gerði útslagið. Á Íslandi komu Hjaltalín og Bloodgroup með frábærar plötur og margar mjög góðar komu að auki eins og Morðingj- arnir, Hjálmar og Hank & Tank. Það er ágæt stemning í tónleikalífi og alltaf fullt af efni- legu dóti í gangi. Þegar engar erlendar stór- stjörnur láta sjá sig verða heimamenn bara að sjá um stuðið. Útgáfubransinn breyttist mikið, Kimi og Borgin og fleiri komu inn á meðan Smekkleysa og 12 tónar nánast hurfu. Sena er svo enn að og mér fannst ánægjulegt að tón- listarbókaútgáfa þeirra fyrir jólin gekk vel.“ Heimamenn verða að sjá um stuðið Dr. Gunni Töff Hank og Tank féllu í kramið hjá Dr. Gunna. „Mig langar til að sirka ís- lenska tónleikaárið sér- staklega út. Þótt vissulega hefði verið gaman að fá stór erlend nöfn til landsins hefur fjarvera þeirra leyft íslenskum hljómsveitum að eiga tónleikasviðið alveg fyrir sig. Mín upplifun var líka svolítið þannig að fleira fólk mætti á tónleika í ár en oft áður. Hvort sem um var að ræða Alice in Chains tribute-tónleika eða Jólagesti Björg- vins var troðið út úr dyrum og bæta þurfti við tónleikum. Umgjörð tónleika virðist líka hafa farið fram – hljómgæði hafa almennt aukist og meira að segja tímasetningar eru farnar að standast – nokkuð sem hefur verið einn stærsti galli íslenskrar tónleikamenningar undanfarin ár. Heilt yfir fannst mér þetta þess vegna gott tónleikaár þar sem minni spámenn fengu að njóta sín og fólk mætti tímanlega á tónleika enda virðist fólk loksins í meira mæli vera á mætt á tónleika til að hlusta á tónlist en ekki bara til þess að hafa einhvern hávaða í bakgrunninum á meðan það dettur í það. Framfarir eru þess vegna orðið sem mér finnst best lýsa tónleikaárinu 2009.“ Tónleikamenn- ingin er að batna Ágúst Bogason Baldvin Esra, stofnandi Brak, hafði þetta að segja um eðli og inntak merk- isins í stuttu spjalli sem við hann var tekið í upphafi árs. „Þetta er nokkurs konar kreppuút- gáfa. Nei, meira svona listamannsvæn útgáfa og sköpunarhvetjandi. Þetta verður ógeðslega kúl útgáfa sem skeytir ekkert um boð og bönn. Við ætlum að gefa þar út óhljóðalist, spunadjass, kór- verk, bara hvað sem er …Málið er fyrst og fremst að koma sem mest af tónlist út. Umslagshönnun verður mjög einföld og stöðluð …Þá rissuðum við upp logo fyrir útgáfuna yfir bjórglasi í gær. Það er allt að gerast.“ Græðlar grasrótarinnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.