Morgunblaðið - 30.12.2009, Side 14
14 Spegill ársins
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég neita að láta kreppuna brjóta migniður! Ég ætla ekki að leggjast í böl-móð og gefast upp!“Á því ári sem nú er að kveðja hafa
sem betur fer setningar í þessum dúr hrotið af
vörum margra þeirra sem byggja þessa litlu
eyju hér í norðrinu. Að kjósa það að standa upp
og berjast frekar en að leggjast í kör, er hugar-
far sem við þurfum á að halda til að mæta því
mótlæti sem lagst hefur yfir mörlandann
undanfarið.
Vissulega komum við misvel undan þessu
fyrsta ári erfiðleikanna eftir hið margumrædda
hrun sem litað hefur líf okkar Íslendinga á öll-
um sviðum. En þegar horft er til baka er aðdá-
unarvert hversu fólk hefur verið fljótt að til-
einka sér sjálfsbjargarviðleitni.
Fjöldi fólks hefur rokið til og plægt garða
sína til að rækta eigin matvörur, hvort sem það
eru kartöflur, grænmeti eða annað kjarnfóður
til manneldis. Sumir hafa jafnvel smíðað
hænsnakofa og fengið sér nokkrar pútur sem
skaffa egg í bakstur, því bakstur hefur líka stór-
aukist. Nú reiða margir fram heitt og dásam-
legt daglegt brauð úr ofninum heima og eru
stoltir af. Og mega líka vera það.
Allir sem vettlingi geta valdið tóku slátur í
haust og fylltu frystikistur af ódýrum mat fyrir
harðan vetur. Sviðakjammar, innmatur,
lifrarpylsa og blóðmör eru járnrík og orkumikil
fæða sem sést nú oftar á borðum ólíklegustu
heimila.
Prjónar og saumavélar tifa sem aldrei fyrr á
íslenskum heimilum, sumir dusta rykið af gam-
alli kunnáttu, aðrir yngri taka sig til og læra
lykkjusmíðina og hanna jafnvel sín eigin munst-
ur. Lopapeysur og aðrar prjónavörur spretta
frá skapandi höndum í svo miklum mæli að
eftirspurn eftir lopa hefur aukist um þúsundir
tonna og ullarvaran selst eins og heitar lumm-
ur. Útlendingarnir elska þessi rammíslensku og
þjóðlegu klæði.
Enn og aftur hefur blessuð sauðkindin sann-
að sig. Ullin af henni er gull.
Jólagjafir og aðrar gjafir eru föndraðar
heima. Aðrir taka þetta skrefinu lengra og setja
heimagerðar vörur sínar á markað, hvort sem
það eru matvörur eða eitthvað annað.
Ótal fyrirtæki hafa orðið til þar sem sköp-
unarkrafturinn ræður för. Íslensk hönnun
blómstrar sem aldrei fyrr. Nú er landinn líka
meira en tilbúinn að styðja íslenska framleiðslu.
Við erum meðvituð um að við spörum gjaldeyri
með því að kaupa frekar það sem búið er til hér
heima en það sem flutt er inn.
Við stöndum nefnilega saman þegar á reynir
og við kunnum að bjarga okkur.
Við ræktum okkar eigið korn og framleiðum
meira að segja geitaís.
Og fólk nýtur gleðinnar sem fylgir því að
finna leiðir til að spara og búa til sjálft.
Það er gaman að vera saman við sláturgerð,
brytja mör, sauma keppi og hakka lifur. Það er
eitthvað fallegt við það að hjálpast að við að búa
til mat ofan í sína nánustu. Og það er góð til-
finning sem fylgir því að klæða barnið sitt í flík
sem við prjónuðum eða saumuðum sjálf.
Við verslum stolt í Góða hirðinum og við höf-
um ferðast meira um landið okkar undanfarið
ár en áður, í stað þess að fara til útlanda. Lítil
kaffihús spretta upp á ólíklegustu stöðum og
ferðaþjónustan eflist með hverjum deginum.
Ný gildi hafa fest sig í sessi.
Andleg verðmæti hafa verið sett ofar þeim
efnislegu. Margir eru dauðfegnir að losna und-
an tómleika veraldlega hjómsins.
Á undaförnu ári hefur samvera með fólki
skipt meira máli en það að geta stært sig af húsi
sem samanstendur af hundruðum rúmmetra af
steinsteypu. Núna er hallærislegt að aka um á
svörtum Range Rover, ganga í rándýrri
merkjavöru eða berast á með yfirborðslegum
hætti á einhvern annan hátt. Aftur á móti er
flottast að vera í heimasaumuðu og endurnýttu.
Fólk gramsar í fataskápunum og finnur þar
margt gullið. Ömmu- og afaföt eru dregin fram
og það er notalegt að tengja þannig saman kyn-
slóðir. Við getum meira að segja tengt okkur
inn í heimsbókmenntirnar með því að skapa
klæði úr óvæntum efniviði. Saumaði Scarlett
O’Hara sér ekki kjól úr gardínum þar sem hún
háði harða lífsbaráttu í Á hverfanda hveli?
Sjálfsbjargarviðleitni
Fólk ræktar sínar eigin kartöflur og grænmeti, prjónar og saumar
Flestir kjósa að leggjast ekki í kör heldur rísa upp til nýrra dáða
Lopapeysan Hún stendur fyrir sínu og vart
finnst sá Íslendingur sem ekki á eina slíka.
Safnað í sarpinn Landinn
tók slátur af miklum móð
síðastliðið haust, enda
bæði ódýr og holl fæða.
Morgunblaðið/Kristinn
Vinsælt á Hluti af starfinu að
sofa hjá Jagger
Fegurðardrottning
deyr eftir lýtaaðgerð
Tekur c-strengur
við af g-streng?
Konu og 2 ára syni
hennar vísað úr flugvél
Dýrt næturævintýri
Íslendings í Sviss
Woods flúði reiða
eiginkonu
Helstu fréttir ársins 2009
20. Rikið ber mikla gengis-
áhættu vegna Icesave
Kostnaður getur aukist um
hundruð milljarða
22. „Tilviljun að þær flugu
ekki saman“
Talið að aðeins um 56 fet hafi
verið á milli flugvéla við Viðey
23. Eigið fé Byrs alltof lítið
Lengri tíma hefur tekið að
endurskipuleggja sjóðinn en
reiknað var með
28. Afskrifa líklegamilljarða
vegna lánaJötunsHolding
Fékk 17 milljarða að láni þegar
valdabaráttan í Glitni banka
stóð sem hæst
29. Nota forðann í
afborganir lána
Andvirði 100 ma.kr. bættist í
gjaldeyrisforða Seðlabankans
31. Högum ætlað að standa
undir 60 milljarða skuld
Stjórnarmenn í Nýja Kaupþingi
neita allir að tjá sig um
mögulegar afskriftir
Nóvember
2. Tugmilljarða afskriftir?
Forsvarsmenn Nýja Kaupþings
játa hvorki né neita því að tugir
milljarða verði afskrifaðir hjá
eigendum Haga
4. 620 milljarðar gætu
fallið á ríkið
Hár reikningur ef neyðarlög-
unum verður hnekkt fyrir dómi
6. Ný 139 milljarða krafa
Skuldabréf upp á 139 milljarða
voru ekki færð sem skuld í
bókhaldi Glitnis
7. Skulda milljarð eftir
jarðakaup á Mýrum
Sex stjórnendur Kaupþings
lögðu fram 100 þúsund og
fengu 400milljónir að láni
9. Áhersla á auðlindirnar
Fyrsti fundur samninganefndar
Íslands við ESB framundan
10. Tugmilljarða hækkanir á
sköttum eru í pípunum
• Leggst misjafnlega á hjón
• Reynt að hlífa tekjulágum
• „Þetta er allt á floti“
12. Lánshæfiseinkunn OR er
komin í ruslflokk
„Áttum aldrei séns,“ segir
stjórnarformaður OR
13. Ríkustu fjölskyldurnar
skera sig úr hópnum
Tölur embættis ríkisskatt-
stjóra sýna að á Íslandi er
hópur fólks sem er mjög vel
efnum búinn
14. Hætta á greiðslufalli OR
Orkuveitan má ekki við því að
íslenska króna falli mikið meira
í verði
18. Ráðherrar fyrir dóm?
Þeirri spurningu velt upp í
nýrri bók hvort aðgerðir eða
aðgerðaleysi fyrri ríkisstjórnar
varði við lög
19. 50 milljarða króna
skattahækkanir
Skattar hækka á laun yfir 270
þúsund krónum
23. Gæti sparað Íslendingum
185 milljarða
Daniel Gros spyr hvort Bretum
og Hollendingum beri að veita
Íslandi lán á sömu vöxtum og
eigin tryggingarsjóðum
25. Tryggingabótasvik
mikið vandamál
Margra barna faðir skráði
lögheimili hjá fyrrverandi
tengdaforeldrum sínum
27. Stórhætta skapaðist
Bensínleki varð í dælustöð í
olíubirgðastöðinni í Örfirisey
Mörg ung íslensk fyrir-
tæki hafa blómstrað á
árinu og má þar sér-
staklega nefna þau sem
tengjast íslenskri hönn-
un. Kærustuparið Hug-
rún Dögg Árnadóttir og
Magni Þorsteinsson
eiga verslanirnar Kron
og Kronkron, en þau eru
gott dæmi um ungt fólk
á uppleið með hugvit,
frumleika og sköpun að
vopni. Þau hafa unnið ötullega að fyrirtæki
sínu undanfarin níu ár, eða frá því þau
stofnuðu Kron. Fyrir fimm árum bættist svo
Kronkron við og haustið 2008 komu þau
sterk inn með skólínu sína sem heitir Kron
by Kronkron. Þetta var einmitt þegar krepp-
an skall á og einhver hefði kannski haldið
að ekki væri nokkurt vit í því að blása í
lúðra og reyna að selja fólki sérhannaða
gæðaskó. En þeim Hugrúnu Dögg og Magna
hefur gengið mjög vel, bæði hér heima og
erlendis. Skórnir þeirra hafa heldur betur
slegið í gegn og fást nú í nokkrum tugum
verslana um víða veröld. Þau hafa verið í
öllum helstu tískublöðum heims, eins og til
dæmis Vogue og Elle og einnig voru þau val-
in inn í væntanlega bók um bestu skólín-
urnar frá árinu 1950 til samtímans, en út-
gefandi þeirrar bókar er einn virtasti
listabókaútgefandi heims, bókaútgáfan Tha-
mes & Hudson.
Skórnir þeirra eru nú líka komnir á Asíu-
markað, en ótrúlegur fjöldi fóta tilheyrir
þeim heimshluta. Þetta unga par er sannar-
lega góð fyrirmynd og á framtíðina fyrir sér.
Íslenskir skór
um allan heim
Hugrún Dögg og
Magni.
Þegar harðnar á dalnum
verður fólk sólgið í andleg
verðmæti.
Við buddukreppu kreppir
líka að sálinni. Við finnum
áþreifanlega fyrir því að við
lifum ekki á brauðinu einu
saman. Við þurfum eitthvað
meira, eitthvað sem snertir
okkur djúpt. Lætur okkur
finna til, líka með öðrum.
Við þörfnumst samhljómsins sem gerir okkur
að manneskjum.
Eitt merki um mikla þörf fyrir andleg verð-
mæti á þessum síðustu og verstu tímum, er
þorsti fólks eftir ljóðum.
Ljóðum um það sem skiptir máli.
Ingunn Snædal, metsöluskáldið af Jökuldal,
er eitt þeirra skálda sem hefur gengið ein-
staklega vel undanfarið. Hún nær til fólksins í
landinu með ljóðum sínum þar sem fjallað er
um innstu tilfinningar af miklu hispursleysi.
Sífellt er verið að spá dauða ljóðsins en viti
menn, það lifir fjarska góðu lífi, öðlast vængi
með nýju fólki, til dæmis þessari ungu konu
sem situr heima hjá sér í Brúarási á Fljótsdals-
héraði og yrkir ljóð af holdi og blóði.
Þriðja og nýjasta ljóðabókin hennar, Komin
til að vera, nóttin; flaug enn hærra en síðustu
bækur hennar, sem þó flugu hátt.
Hún er vaxandi skáld á umbrotatímum, gott
dæmi um að það sem kemur frá hjartanu ratar
til sinna.
Ingunn er gott dæmi um að auðurinn býr í
okkur sjálfum.
Auðurinn býr í
okkur sjálfum
Ingunn Snædal