Morgunblaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009 Hótel Valhöll á Þingvöllum eyðilagðist í eldsvoða í júlí. Ekki urðu slys á fólki. Þar með lauk rúmlega aldar gömlum rekstri gisti- og veitingastaðar innan þing- helginnar. Þegar eldurinn kom upp í eldhúsi hótelsins, síðdegis á föstudegi, voru flestir gesta hótelsins úti í góða veðrinu en þeim sem voru inni tókst að komast fljótt út. Starfsfólkið náði ekki að slökkva eldinn og þegar slökkvilið kom á staðinn varð ekki við neitt ráðið og húsið brann til grunna. Leifarnar voru fjarlægðar næstu daga og tyrft yfir. Ljósmynd/Guðmundur Karl Hótel Valhöll brennur til grunna Svínainflúensan lék einstök byggð- arlög, skóla og vinnustaði grátt í haust þegar faraldur náði hámarki hér á landi. Alls hafa liðlega 700 einstaklingar greinst með inflúens- una A(H1N1) og tæplega tíu þúsund með inflúensulík einkenni. Það þýð- ir að tugir þúsunda Íslendinga hafa fengið flensuna. Fjöldi fólks hefur þurft að leggjast inn á spítala og sumir á gjörgæslu. Tveir Íslend- ingar hafa látist af völdum sýking- arinnar eða fylgikvilla. Hátt í átta- tíu þúsund höfðu látið bólusetja sig um miðjan desember og fjölmargir fengu einnig bólusetningu við ár- legu flensunni eins og Tryggvi Þór Herbertsson alþingismaður. Svínainflúensa gengur yfir landið Morgunblaðið/Ómar Lögreglan lagði hald á um 109 kíló af fíkniefnum sem reynt var að smygla til landsins með belgísku skútunni Sirtaki í apríl. Þar af voru 55 kíló af am- fetamíni sem er mesta magn sem reynt hefur verið að smygla til landsins. Skútan fannst austur af landinu eftir víðtæka leit skipa og flugvéla Land- helgisgæslunnar. Fíkniefnin voru flutt úr skútunni til Djúpavogs með hrað- skreiðum slöngubát og skipað þar upp í bíl sem lögreglan stöðvaði við Höfn í Hornafirði. Tveir karlmenn voru dæmdir til tíu ára fangelsisvistar fyrir skipulagningu og innflutning fíkniefnanna og fjórir til viðbótar í þriggja til níu ára fangelsi fyrir að taka þátt í innflutningnum. Varðskipið Týr fylgdi skútunni Sirtaki til hafnar á Eskifirði eftir að áhöfn hennar hafði verið handtekin. Morgunblaðið/Árni Sæberg Reynt að smygla 109 kg með skútu Hvalskip Hvals hf. veiddu 125 lang- reyðar í sumar. Þá voru leyfðar magnveiðar á hval hér við land á ný, eftir 26 ára hlé. Eina und- antekningin var 7 langreyðar sem veiddar voru árið 2006. Fyrrver- andi sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra heimilaði veiðar á 150 skepnum en þær sem ekki náð- ust í sumar færast til næsta árs. Hvalur 9 var á leiðinni til Hval- fjarðar með tvær langreyðar á síð- unni. Morgunblaðið/RAX Hvalveiðar hafnar á ný MBL.IS | FLEIRI MYNDIR Á MBL.IS Morgunblaðið/Golli Litlu munaði að illa færi þegar ísinn á Reykjavík- urtjörn gaf sig undan þyngd tólf hrossa og jafn margra knapa sem féllu ofan í kalt vatnið svo aðeins höfuðið stóð upp úr. Tilefnið var blaðamannafundur til kynn- ingar hestamóti en slysið gerðist í lokin þegar hross- unum var stillt upp í breiðfylkingu. Eftir hálftíma bar- áttu hafði tekist að koma öllum hrossunum á fast land en þau voru þá orðin þrekuð. Óvænt sundreið í Tjörninni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.