Morgunblaðið - 30.12.2009, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009
1 Ísland og Noregur gerðu jafn-tefli, 1:1, í hörkuleik í undan-
keppni heimsmeistaramótsins í
knattspyrnu karla á Laugardalsvelli
5. september, en íslenska liðið var
mun sterkari aðilinn.
Hver skoraði mark Íslands?
a) Eiður Smári Guðjohnsen
b) Heiðar Helguson
c) Veigar Páll Gunnarsson
d) Emil Hallfreðsson
2 Íraskur blaðamaður fékkþriggja ára fangelsisdóm í mars
fyrir að móðga George W. Bush, þá-
verandi Bandaríkjaforseta, árið
2008.
Hvað gerði maðurinn af sér?
a) Sneri berum afturendanum
að Bush í þingsal
b) Fleygði skónum sínum að
Bush
c) Sagði í blaðagrein að Bush
væri liðónýtur kúreki
d) Nefndi grís í höfuðið á Bush
3 Leikfélag Kvennaskólans íReykjavík, Fúría, setti upp leik-
rit sem olli deilum.
Hvað hét það?
a) Pínku píkuleikrit
b) Karlaskammir
c) Kvenhetjur
d) Fallið
4 Hver sendi frá sér mannasiðabókfyrir jólin?
a) Geir Ólafsson
b) Bergþór Pálsson
c) Egill, Gillzenegger, Einarsson
d) Páll Óskar Hjálmtýsson
5 Íslensku knattspyrnumennirnirGunnleifur Gunnleifsson, Guð-
mundur Steinarsson og Stefán Þór
Þórðarson léku fyrri hluta ársins
með Vaduz í svissnesku A-
deildinni.
Vaduz er samt ekki frá Sviss en frá
hvaða landi er félagið?
a) Þýskalandi
b) Austurríki
c) Liechtenstein
d) Ítalíu
6 Bandaríski poppsöngvarinnMichael Jackson dó í júní, að
sögn vegna hjartaáfalls.
Hvað varð hann gamall?
a) 50 ára
b) 39 ára
c) 45 ára
d) 40 ára
7 Mikilvæg stofnun lokaði útibúisínu í Flatey á Breiðafirði í sparn-
aðarskyni.
Hvaða stofnun?
a) Glitnir
b) Embætti ríkisskattstjóra
c) Bifreiðaeftirlitið
d) Íslandspóstur
8 16 ára stelpa sendi frá sér skáld-söguna Galdrasteinn fyrir jólin.
Hvað heitir rithöfundurinn ungi?
a) Hanna Birna Halldórsdóttir
b) Harpa Dís Hákonardóttir
c) Dís Hannesdóttir
d) Viktoría Mjöll Aronsdóttir
9 Samtök íslenskra tölvuleikja-framleiðenda voru stofnuð á árinu
og bera enskt heiti.
Hvert er heiti samtakanna?
a) Icelandic Game Companies
b) Icelandic Computer Games
c) Association of Icelandic Gaming
d) Icelandic Gaming Industry
10 Þrír íslenskir landsliðsmennspila með einu af sterkustu
handboltaliðum Þýskalands.
Hvaða lið er það?
a) Kiel
b) Lemgo
c) Gummersbach
d) Rhein-Neckar Löwen
11 Ákveðið var í desember að fjölgaum 30.000 manns í herliði
Bandaríkjanna í Afganistan.
Hvað heitir öflugasta uppreisnar-
hreyfingin í Afganistan?
a) Talíbanar
b) Tamíl-tígrar
c) Mongólar
d) Úsbekar
12 Erlent fyrirtæki keypti á árinustóran hlut í HS Orku.
Hvað heitir það?
a) Multinational United
b) Magma Energy
c) Venture Industries
d) Umbrella Corporation
13 Pascal Pinon er:
a) Bíómynd
b) Hljómsveit
c) Jógúrttegund
d) Snyrtivörulína
14 Merki skyndibitakeðjunnarMcDonald’s hvarf héðan af
landi á árinu.
Hvað vörumerki tók við?
a) Metro
b) Motor
c) Marco
d) Polo
15 Guðmundur E. Stephensenvarð Íslandsmeistari karla í
borðtennis 16. árið í röð. Hann
samdi seint á árinu við sænskt úr-
valsdeildarlið.
Hvað heitir það?
a) Warta
b) Djurgården
c) Malmö
d) Eslövs
16 Kolkrabbar í Asíu reyndustvera þróaðri en menn höfðu
talið og birtust af þeim myndir í des-
ember sem sönnuðu það.
Hvaða snilld sýndu þeir?
a) Stálu mat úr lest frystitogara
b) Drápu hákarl með því að
troða grjóti í tálknopin
c) Gerðu sér skýli úr kókos-
hnetuskurn
d) Ræktuðu ýsuseiði í ryðguðu
fuglabúri á hafsbotni
17 Sagt var í sumar frá óvenju-legum gæludýrum skálavarða í
Langadal í Þórsmörk.
Hvaða dýrum?
a) Risakóngulóm
b) Minkum
c) Yrðlingum
d) Moskusuxum
18 Hvaða hljómsveit vann Músík-tilraunir í ár?
a) Spelkur
b) Agent Fresco
c) Greifarnir
d) Bróðir Svartúlfs
19 Hvað mun íslenska ríkið eigastóran hlut í Nýja Landsbank-
anum eftir endurskipulagningu?
a) 60%
b) 70%
c) 80%
d) 93%
20 Íslenskur knattspyrnumaðurlék á árinu sinn 300. leik í
ensku úrvalsdeildinni.
Hver er það?
a) Grétar Rafn Steinsson
b) Hermann Hreiðarsson
c) Ívar Ingimarsson
d) Brynjar Björn Gunnarsson
21 Ný farþegaþota Boeing-verksmiðjanna í Bandaríkj-
unum fór í sitt fyrsta reynsluflug í
desember.
Hvað heitir vélin?
a) Darthvader
b) Skymaster
c) Airbuster
d) Dreamliner
22 Jón Gunnar Benjamínsson fórí langferð á fjórhjóli frá Mý-
vatni yfir hálendið suður til Þing-
valla og loks til Reykjavíkur.
Hvað var það í fari Jóns sem vakti
einkum athygli fjölmiðla?
a) Hann er 228 cm á hæð
b) Hann klæddist eingöngu
sundskýlu alla ferðina
c) Hann er lamaður fyrir neðan
mitti
d) Hann villtist aldrei í ferðinni
2009 | 2010
Unglingagetraun
12-18 ára
Verðlaun
1. Þvílík vika eftir Guðmund Brynjólfsson (útgefandi Forlagið)
2. Þjófadrengurinn Lee Raven eftir Zizou Corder (útgefandi Bjartur)
3. Nýtt tungl eftir Stephenie Meyer (útgefandi Forlagið)
Svör sendist í Hádegismóa 2, 110 Reykjavík, merkt Morgunblaðið, Barnagetraun. Skilafrestur til 11. janúar 2010
Nafn:
Aldur:
Heimili:
Staður:
Sími:
38
23
22