Morgunblaðið - 04.01.2010, Síða 8

Morgunblaðið - 04.01.2010, Síða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2010 Hrólfur Ölvisson hefur verið ráð- inn fram- kvæmdastjóri Framsóknar- flokksins og tók hann formlega til starfa 1. jan- úar. Hrólfur hefur verið virkur fé- lagi í Framsóknarflokknum sl. 30 ár og verið fulltrúi í miðstjórn flokksins um árabil og var á árum áður m.a. framkvæmdastjóri Sam- bands ungra framsóknarmanna. Hrólfur hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Framsókn- arflokkinn. Hann var fram- kvæmdastjóri dagblaðsins Tímans frá 1988-1993 og sat sem fulltrúi flokksins í bankaráði Búnaðar- banka Íslands frá 1998-2001. Jafn- framt hefur Hrólfur gegnt fjöl- mörgum trúnaðarstörfum og var m.a. fyrsti formaður stjórnar Vinnumálastofnunar frá 1998- 2007. Nýr framkvæmda- stjóri Framsóknar- flokksins Hrólfur Ölvisson Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is „BRUNI Krýsuvíkurkirkju er miss- ir fyrir þjóðminjavörsluna í landinu, enda ein af elstu timburkirkjum landsins í húsa- safni okkar. Kirkjan var hluti af menningar- sögu þjóðarinnar ekki síður en hún hafði í margra vitund trúar- og tilfinningalegt gildi,“ segir Mar- grét Hallgríms- dóttir þjóðminja- vörður. Lögreglan rannsakar hvað olli því að Krýsuvíkurkirkja brann til kaldra kola aðfaranótt 2. janúar. Rannsókn er á frumstigi. Slökkvilið Grindavík- ur var kallað út laust eftir klukkan tvö um nóttina. Þegar komið var á vettvang var kirkjan fallin. Íbúðarhús um skeið Krýsuvíkurkirkja var byggð árið 1857 og var notuð sem sóknarkirkja til 1910. Var aflögð sem guðshús 1917 og notuð til íbúðar frá 1929 en síðan aftur breytt í kirkju fyrir til- stuðlan bæjaryfirvalda í Hafnarfirði sem færðu Þjóðminjasafninu húsið til varðveislu haustið 1964. Kirkjan var úr timbri og af eldri gerð turn- lausra kirkna. Viðamiklar viðgerðir fóru fram á húsinu árið 1986 sem þá var fært til upprunalegrar gerðar. „Það eru mikil verðmæti fólgin í hinum lágstemmda menningararfi okkar en þjóðin hefur á síðustu mán- uðum eða eftir efnahagshrunið verið að vakna til vitundar um hvaða verð- mæti felast í þessari arfleifð,“ segir Margrét sem ekki vill trúa öðru en slys fremur en ásetningur sé orsök eldsvoðans. Að svo komnu máli vilji hún ekki gera neinum upp að hafa vísvitandi borið eld að kirkjunni. Mælt og myndað Hugmyndir um endurreisn kirkj- unnar í Krýsuvík hafa þegar verið nefndar í fjölmiðlum. Margrét Hall- grímsdóttir segir hins vegar að skaðinn sé skeður og verði kirkjan endurreist verði það ekki á for- sendum minjavörslu. Hins vegar sé bót í máli að fræðimenn á vegum Þjóðminjasafns og Húsafriðunar- nefndar hafi bæði myndað og mælt kirkjuna mjög nákvæmlega sem auðveldi uppbyggingu verði í hana farið. Kirkjubruninn er mikill missir Endurreisnin verður ekki á forsendum minjavörslu, segir þjóðminjavörður Ljósmynd/Ómar Smári Rústir Kirkjan í Krýsuvík var rústir einar þegar slökkvilið kom á vettvang. Kirkjan var rúmlega 150 ára og hafði sögulegt gildi og tilfinningalegt. Margrét Hallgrímsdóttir „FLUGELDASÖLUNNI er ekki lokið því þrettándinn er ennþá eft- ir,“ segir Ólöf Snæhólm Baldurs- dóttir, upplýsingafulltrúi Slysa- varnarfélagsins Landsbjargar innt eftir því hvernig flugeldasalan fyrir áramótin gekk hjá björgunar- sveitunum. „En salan gekk nokkuð vel fyrir áramótin og það er mjög gott hljóð í fólkinu á sölustöð- unum.“ Hún segir björgunarsveitirnar fjárhagslega sjálfstæðar einingar og því sé ekki vitað hvenær endan- legar sölutölur liggi fyrir. „Ég hef heyrt að salan hafi gengið betur en í fyrra, og að aukningin nemi kannski um 10 prósentum. Það er í rauninni framar okkar vonum.“ Hún segist ekki vita hvort salan hafi verið svona góð vegna þess að almennt hafi verið keypt meira af flugeldum nú en í fyrra eða vegna þess að fólk hafi frekar beint við- skiptum sínum til hjálparsveitanna fremur en annarra. „Við finnum þó vel fyrir því að fólk vill styðja björgunarsveitirnar.“ Ekki liggja sölutölur fyrir hjá þeim íþróttafélögum sem haft var samband við. Kristinn R. Jónsson framkvæmdastjóri Fram segir þó að heldur hafi selst minna af flug- eldum í ár en áður. Jónas Kristins- son, framkvæmdastjóri KR, segir söluna hafa gengið þokkalega og hún hafi verið svipuð og á síðasta ári. „Við erum bara ánægðir með að fólk skuli skila sér til íþrótta- félaganna líka því sumir fá meira pláss en aðrir í þessari umfjöllun.“ Morgunblaðið/Ómar Flugeldar Fólk naut ljósadýrðar- innar um áramótin. Flugelda- sala gekk misvel Landsbjörg segir söl- una betri en í fyrra FROSTIÐ hefur sennilega bitið hressilega í kinnar feðganna Ágústs Jóels Magnússonar flug- stjóra og Magnúsar, sonar hans, þar sem þeir voru á flugi yfir Hafnarfirði á laugardag í 10 gráða frosti á um 100 kílómetra hraða. Vindkæl- ingin hefur því verið töluverð og sennilega ekki heppilegt að hafa dyrnar á farkostinum opnar mjög lengi í senn þannig að Kári næði að blása á óvarin andlit. Þótt vélin, sem er af gerðinni Pip- er Cub hafi borið þá feðga yfir lönd og strönd er hún hálfgerður forngripur því hún nær 64 ára aldri á árinu. Hún var smíðuð árið 1946 og á mörg þúsund flugtíma að baki svo óhætt er að segja að hún hafi þjónað flugmönnum og farþeg- um vel í gegnum tíðina. Stillur og fallegt veður á höfuðborgarsvæðinu yfir áramótin Morgunblaðið/RAX Feðgar á flugi í vetrarfrostinu EKKI eru nýjar rekstrarheimildir fyrir hjúkrun- arheimili á gildandi fjárlögum, þrátt fyrir áform um að opna hjúkrunarheimili með a.m.k. 154 rým- um á árinu. Nýju plássin verða því fyrst og fremst nýtt til að bæta aðstöðu og fækka fjölbýlum á hjúkrunarheimilum. Félags- og tryggingamálaráðuneytið tilkynnti á miðvikudag að hjúkrunarheimilunum á Vífilsstöð- um og í Víðinesi yrði lokað 1. september næst- komandi og heimilisfólk yrði flutt á nýtt hjúkr- unarheimili við Suðurlandsbraut. Að sögn Vilborgar Ingólfsdóttur, skrifstofu- stjóra í félagsmálaráðuneytinu, verða 110 rými á nýja heimilinu en 88 pláss eru nú á Vífilstöðum og í Víðinesi. Hjúkrunarrýmum mun þó ekki fjölga um þau 22 pláss sem umfram eru á nýja heimilinu. „Það eru engar nýjar rekstarheimildir á fjárlög- um núna svo ekki er um neina raunfjölgun að ræða. Verið er að flytja heimildir til, bæta aðstöðu og fækka fjölbýlum.“ Auk heimilisins við Suður- landsbraut verður nýtt heimili með 44 rýmum opnað við Boðaþing í vor, að sögn Vilborgar. Síðastliðið sumar lýsti ríkisstjórnin því yfir að til stæði að halda í áætlanir um uppbyggingu 400 nýrra hjúkrunarrýma fram til ársins 2012, þrátt fyrir að mun færri séu á biðlistum eftir rýmum. Biðlistarnir hafa raunar styst verulega undanfarin misseri; úr 464 í árslok 2007 og í 60 – 70 um mán- aðarmót nóvember/desember sl. skv. vistunar- matsskrá. Að sögn Önnu Bjargar Aradóttur, sviðsstjóra hjá Landslæknisembættinu sem heldur utan um vistunarmatsskrána, er skýringuna að finna í strangara vistunarmati nú en áður og betri nýtingu annarra úrræða en stofnanavistun. Rekstur heimilanna í Víðinesi og á Vífilsstöðum hefur verið í höndum Hrafnistu en samningar þar um renna út í lok ágúst. Að sögn Vilborgar verður auglýst eftir rekstaraðila að nýja heimilinu á Suðurlandsbraut á næstu vikum. Engar nýjar rekstrarheimildir  A.m.k. 154 ný hjúkrunarrými opnuð á árinu  Plássin nýtt til að bæta aðstöðu í stað þess að stytta biðlista  Milli 60 og 70 í bið í nóvember sl. í stað 464 árið 2007 Í HNOTSKURN »Í maí sl. voru um 240 manns á bið eftirhjúkrunarrými en aukin áhersla á heimahjúkrun og dagvistunarúrræði hefur stytt biðlista til muna. »Hjúkrunarheimilið í Víðinesi var end-urnýjað árið 1999 en gagngerar end- urbætur voru gerðar á Vífilsstöðum árið 2004, sem kostuðu um 300 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.