Morgunblaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 18
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Staðsetjið ekki kerti
þar sem börn
eða dýr geta
auðveldlega rekið
sig í þau og velt
þeim um koll
Munið að
slökkva á
kertunum
Nína María, 8 ára
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2010
„ÞETTA skapar alveg nýjan mark-
að fyrir handverksfólk, getur náð
til allra þeirra sem eru tölvuvæddir
en það er víst megnið af þjóðinni,“
segir Ragnheiður Jóhannsdóttir,
handverkskona í Mosfellsbæ, einn
framleiðendanna sem selur fram-
leiðslu sína í vefverslun Litlu búð-
anna.
Ragnheiður framleiðir ull-
arvörur, prjónar og þæfir töskur og
álfaskó. „Lítil vinkona mín bað mig
um skó eða sokka, þeir máttu ekki
vera háir en bjalla þurfti að vera á
þeim af því að hún ætlaði að leika
við köttinn. Ég gerði skó með upp-
brettri tá með bjöllu,“ segir Ragn-
heiður um álfaskóna sem hún byrj-
aði að framleiða í sumar.
Hún starfar sem kennsluráðgjafi
á skólaskrifstofu Mosfellsbæjar og
vinnur við handverkið í tóm-
stundum. Hún er þátttakandi í Ull-
arselinu á Hvanneyri og hefur selt
vörurnar í Álafossbúðinni í Mos-
fellsbæ. „Framleiðslugetan er ekki
óþrjótandi. Ég tel mig góða þegar
ég næ einu pari á kvöldi,“ segir
hún.
„Ég er ekki í vafa um að það er
nýr heimur að opnast fyrir hand-
verksfólk, ekki síst þegar búið
verður að þýða síðuna á erlend
tungumál. Þetta þarf þó tíma til að
þróast, við verðum að gera okkur
grein fyrir því,“ segir Ragnheiður.
helgi@mbl.is
Nýr heimur fyrir álfaskó
Handverkskona Ragnheiður Jóhannsdóttir hefur fengist við handverk af ýmstu tagi í þrjá áratugi.
Álfaskór Skórnir sem Ragnheiður prjónar og þæfir eru litríkir og bjöll-
urnar gera það að verkum að þeir hljóma líka fallega þegar gengið er.
Á vegum Atvinnuþróunarfélags
Þingeyinga hf., Atvinnuþróunar-
félags Eyjarfjarðar bs, og Icelandic
Gaming Industry (IGI), verða veitt
sérstök aukaverðlaun í keppni IGI á
sviði hönnunar og smíði tölvuleikja,
IGI Awards. Verðlaun þessi eru í
formi 6 mánaða aðgengis að einni
skrifstofu/vinnustöð á vegum at-
vinnuþróunarfélaganna ásamt að-
gangi að ráðgjöfum og þjónustu
þeirra. Er það skilyrði að sá sem
verðlaunin hlýtur sé búsettur eða
með lögheimili á starfssvæði at-
vinnuþróunarfélaganna og/eða fram-
tíðarstarfsemi sú sem kunni að
spretta úr þessari vinnu fari fram á
svæði annars hvors atvinnuþróunar-
félagsins eftir að verðlaunin hafa
verið nýtt. Þátttaka er öllum opin að
kostnaðarlausu og er skráning opin
þar til keppni lýkur í lok mars.
Verðlaun fyrir tölvuleiki
Morgunblaðið/Heiddi
Verðlaunin Eru í formi 6 mánaða aðgengis að einni skrifstofu/vinnustöð á
vegum atvinnuþróunarfélaganna ásamt aðgangi að ráðgjöfum og þjónustu.
Sérstök aukaverðlaun á sviði hönnunar og smíði tölvuleikja
Skráning öllum opin þar til keppni lýkur í lok mars