Morgunblaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 12
áskattlagni Breytingar Breytingar á árinu 2010 Staðgreiðsla Staðgreiðsla skatta verður nú reiknuð í þremur þrepum. Útreikningur fyrir mánaðartekjur verður sem hér segir: Af fyrstu 200.000 kr......................................................................... 37,22% Af næstu 450.000 kr. ...................................................................... 40,12% Af fjárhæð umfram 650.000 kr. .................................................. 46,12% Frá reiknuðum skatti dregst persónuafsláttur, sem er 44.205 kr. Sjómannaafsláttur er óbreyttur, 987 kr. á dag, á árinu 2010. Laun frá fleiri en einum launagreiðanda Þeir sem hafa laun frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa að passa að rétt hlutfall sé notað við útreikning á staðgreiðslu. Fari laun yfir 200.000 kr. hjá einum launagreiðanda þarf að reikna 40,12% staðgreiðslu af launum hjá öðrum launagreiðendum, eða eftir atvikum 46,12%. Nánari upplýsingar um þetta er að finna á www.rsk.is. Endurreikningur við álagningu Ef annað hjóna/samskattaðra er með tekjur í efsta þrepi en hitt ekki, er gerð leiðrétting til lækkunar við álagningu, í fyrsta skipti 2011. Ekki þarf að sækja um leiðréttingu, hún er gerð þegar skattframtal er afgreitt. Sjá nánar á www.rsk.is um færslu milli þrepa, umsókn um endurgreiðslu og fleira. Tryggingagjald Tryggingagjald verður 8,65%, frá 1. janúar 2010. Fjármagnstekjuskattur Frá 1. janúar 2010 verður skattur á fjármagnstekjur 18%. Virðisaukaskattur Virðisaukaskattur verður 25,5% í almennu þrepi (var 24,5% áður). Virðisaukaskattur í lægra þrepi er óbreyttur, verður áfram 7%. Álagning opinberra gjalda 2010 Fjármagnstekjuskattur Lagður er 10% tekjuskattur á allar fjármagnstekjur ársins 2009. Til viðbótar er lagður 5% skattur á fjármagnstekjur tímabilsins júlí-desember, sem eru umfram kr. 250.000 á mann. Frítekjumark manna vegna leigutekna er 30%.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.