Morgunblaðið - 04.01.2010, Page 12
áskattlagni
Breytingar
Breytingar á árinu 2010
Staðgreiðsla
Staðgreiðsla skatta verður nú reiknuð í þremur þrepum.
Útreikningur fyrir mánaðartekjur verður sem hér segir:
Af fyrstu 200.000 kr......................................................................... 37,22%
Af næstu 450.000 kr. ...................................................................... 40,12%
Af fjárhæð umfram 650.000 kr. .................................................. 46,12%
Frá reiknuðum skatti dregst persónuafsláttur, sem er 44.205 kr.
Sjómannaafsláttur er óbreyttur, 987 kr. á dag, á árinu 2010.
Laun frá fleiri en einum launagreiðanda
Þeir sem hafa laun frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa að passa að rétt hlutfall sé notað
við útreikning á staðgreiðslu. Fari laun yfir 200.000 kr. hjá einum launagreiðanda þarf að reikna
40,12% staðgreiðslu af launum hjá öðrum launagreiðendum, eða eftir atvikum 46,12%. Nánari
upplýsingar um þetta er að finna á www.rsk.is.
Endurreikningur við álagningu
Ef annað hjóna/samskattaðra er með tekjur í efsta þrepi en hitt ekki, er gerð leiðrétting
til lækkunar við álagningu, í fyrsta skipti 2011. Ekki þarf að sækja um leiðréttingu,
hún er gerð þegar skattframtal er afgreitt.
Sjá nánar á www.rsk.is um færslu milli þrepa, umsókn um endurgreiðslu og fleira.
Tryggingagjald
Tryggingagjald verður 8,65%, frá 1. janúar 2010.
Fjármagnstekjuskattur
Frá 1. janúar 2010 verður skattur á fjármagnstekjur 18%.
Virðisaukaskattur
Virðisaukaskattur verður 25,5% í almennu þrepi (var 24,5% áður).
Virðisaukaskattur í lægra þrepi er óbreyttur, verður áfram 7%.
Álagning opinberra gjalda 2010
Fjármagnstekjuskattur
Lagður er 10% tekjuskattur á allar fjármagnstekjur ársins 2009. Til viðbótar er lagður 5% skattur
á fjármagnstekjur tímabilsins júlí-desember, sem eru umfram kr. 250.000 á mann.
Frítekjumark manna vegna leigutekna er 30%.