Morgunblaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2010
✝ Hrafnkell Krist-jánsson, fæddist í
Reykjavík 18. janúar
1975. Hann lést á
gjörgæsludeild LSH í
Fossvogi 25. des.
2009 af afleiðingum
umferðarslyss. For-
eldrar hans eru
Bryndís Guðmunds-
dóttir, kennari og
kennsluráðgjafi, f.
1943 og Kristján
Ólafsson, lögmaður,
f. 1943. Síðari kona
Kristjáns, föður
Hrafnkels, er Helga Snorradóttir,
f. 1958. Bróðir Hrafnkels er Ólafur
Helgi Kristjánsson, f. 1968, sam-
býliskona Aldís Pála Arthúrsdóttir,
f. 1967.
Kona Hrafnkels er Guðríður
Hafnarfirði. Þaðan lá leiðin í MR
hvaðan hann lauk stúdentsprófi ár-
ið 1996. Eftir stúdentspróf hóf
hann nám við University of South
Alabama í Bandaríkjunum og lauk
þaðan BA prófi í sálarfræði árið
2002. Árið 2003 hóf Hrafnkell störf
á íþróttadeild Ríkisútvarpsins sem
íþróttafréttamaður og gegndi því
starfi alla tíð. Á skólaárunum
starfaði Hrafnkell m.a. við knatt-
spyrnuþjálfun barna og ungmenna,
umsjón á leikjanámskeiðum auk
þess að starfa í lögreglunni í Hafn-
arfirði tvö sumur. Hrafnkell var
vel liðtækur í íþróttum. Lék m.a.
handknattleik og knattspyrnu með
FH í Hafnarfirði. Varð nokkrum
sinnum Íslandsmeistari með í yngri
flokkum FH bæði í handknattleik
og knattspyrnu og lék allmarga
landsleiki með ungmennaliðum Ís-
lands í knattspyrnu auk þess að
leika um hríð með meistaraflokki
FH í sömu grein.
Útför Hrafnkels fer fram frá
Hallgrímskirkju í dag, mánudag-
inn 4. janúar, kl. 13.
Meira: mbl.is/minningar
Hjördís Bald-
ursdóttir, starfs-
mannastjóri NOR-
VIK, f. 16. júlí 1975.
Þeirra börn eru Atli,
f. 5. júní 2000 og
Þóra, f. 12. okt. 2006.
Foreldrar Guðríðar
Hjördísar eru Baldur
Gunnarsson, fv. stýri-
maður, f. 1942 og
Edda Karen Haralds-
dóttir, húsmóðir, f.
1943.
Hrafnkell flutti
með foreldrum sínum
til Hafnarfjarðar á fyrsta ári og
hefur átt þar heimili síðan utan
þann tíma sem hann og Guðríður
voru við námi í Bandaríkjunum á
árunum 1997-2002. Skólaganga
Hrafnkels hófst í Víðistaðaskóla í
Við þekktumst áður en við mund-
um eftir okkur. Bræðrasynir, jafn-
aldrar og bestu vinir. Við vorum sam-
ferða fyrstu ár ævi okkar, átum sama
sandinn á Kató, bekkjarbræður í Víð-
istaðaskóla, æfðum í FH og stigum
fyrstu skrefin saman í yngri lands-
liðum Íslands í fótbolta.
Það var gott að eiga frænda sem
var líka vinur minn og nágranni. Þú
áttir heima í Rauðu blokkinni og ég í
blokkinni á Miðvangi 14. Á milli okk-
ar var Kaupfélagið og bakaríið sem
við vorum sendir í daglega af mæðr-
um okkar til að kaupa 6 grófar kringl-
ur og einhver rúnstykki.
Ég man ekki til þess að við höfum
gert neitt annað en að vera í fótbolta,
handbolta eða körfubolta. Við vorum
heillaðir af boltanum, fórum út að
morgni og komum heim að kvöldi eft-
ir leiki dagsins. Við vorum heima-
gangar hvor hjá öðrum og fjölskyldur
okkar fóru saman í útilegur og sum-
arbústaði.
Þegar leið að unglingsárum þá
breyttist vinátta okkar eins og oft
gerist á þeim aldri. Ég átti minn vina-
hóp og þú þinn. En við vorum að sjálf-
sögðu ennþá góðir félagar, frændur
og samherjar í FH. Sterkasti streng-
urinn á milli okkar trosnaði þó þegar
ég veiktist sumarið eftir 10. bekk og
þurfti í kjölfarið að hætta í íþróttum.
Eftir það hittumst við ekki lengur á
hverjum degi á æfingum og í keppni,
en fram að því höfðum við verið sam-
an á hverri einustu æfingu, leikfimi-
tíma og bekkjarleikjum.
Með árunum fækkaði samveru-
stundum og við hittumst ekki oft. Ég
var innilega ánægður að þér vegnaði
vel, áttir frábæra konu, tvö mann-
vænleg börn og naust þín í starfi.
Hugur minn hefur verið hjá þér
síðustu daga. Þú varst kallaður af
velli þegar leikurinn stóð sem hæst.
Það hefði þér mislíkað enda varstu
keppnismaður og alltaf í fylkingar-
brjósti í þínu liði. Þú barðist hetju-
lega, annað hefði verið andstætt eðli
þínu. En ég sé þig alltaf sem hlæjandi
strák, með frekjuskarð, örlitlar
freknur og þú áttir ótrúlega auðvelt
með að roðna.
Ég man þegar við vorum nýbyrj-
aðir að lesa og lágum saman í her-
berginu þínu og lásum litla bók sem
mamma þín hafði gefið okkur um
Mæju býflugu. Eins þegar þú varst í
pössun heima þegar amma þín var
jarðsett vestur á Ísafirði, þú hefur
verið 6 eða 7 ára. Við vorum í eldhús-
inu og það var grjónagrautur og egg í
matinn. Allt í einu fórstu að gráta há-
stöfum með ekkasogum og sagðir að
þú vildir ekki egg og mamma hélt ut-
an um þig heillengi og huggaði. Ég
man að ég hugsaði mikið hlýtur
Hrafnkatli að þykja egg vond! Seinna
áttaði ég mig á að kannski var það
sorg og söknuður sem orsökuðu grát-
inn. En manstu þegar við tókum þátt
í Eyjamótinu í 6. flokki og ákváðum í
Herjólfi að við skyldum vera sam-
stíga þegar við kæmum til Vest-
mannaeyja í fyrsta skipti – og fætur
okkar snertu bryggjuna á Heimaey á
nákvæmlega sömu stundu.
Hrafnkell minn, þakka þér fyrir
leikina og allar góðu stundirnar. Við
áttum sameiginlegan fjársjóð æsk-
unnar og þú munt alltaf eiga stað í
mínu hjarta. Saknaðarkveðjur frá
pabba, mömmu, Gígju og Silju.
Farðu í friði kæri vinur og frændi.
Orri.
Í dag kveðjum við góðan vin,
Hrafnkel Kristjánsson. Ekki óraði
okkur fyrir því að það yrði í síðasta
skiptið sem við hittum Hrafnkel þeg-
ar við héldum okkar árlega jólahlað-
borð um miðjan desember þar sem
hann var eins og ævinlega hrókur alls
fagnaðar. En á svona stundu er mik-
ilvægt að muna allar þær góðu stund-
ir sem við höfum átt og eru þær ófáar
á þeim 17 árum sem Gurrý og Hrafn-
kell hafa verið saman eða sem nemur
helmingi af ævi þeirra. Farnar voru
margar skemmtilegar ferðir hvort
sem það var til útlanda, upp í sum-
arbústað eða í tjaldútilegu. Minnumst
við sérstaklega margra spilakvölda
þar sem við vinkonurnar höfðum ekki
mikið roð í strákana þar sem fróð-
leikur og vitneskja Hrafnkels hafði
oft úrslitaáhrif.
Alltaf var yndislegt að koma á
heimili þeirra þar sem þau voru ætíð
höfðingjar heim að sækja hvort sem
haldin voru afmæli barnanna, matar-
boð eða eftirmiðdagshittingur með
börnin. Sérstaklega er minnisstætt
síðasta boð
matarklúbbsins sem haldið var
heima hjá Gurrý og Hrafnkatli.
Óhætt er að segja að Bollywood-þem-
að hafi verið tekið með stæl og hús-
ráðendur búnir að dressa sig upp í
indverskum stíl og elda fjölbreyttan
og frábæran indverskan mat.
Áhugi Hrafnkels á íþróttum hefur
augljóslega smitast í soninn Atla þar
sem hann er gallharður FH-ingur
eins og pabbi hans og að sjálfsögðu
Liverpool-aðdáandi en það voru
margar ferðirnar sem þeir fóru sam-
an á knattspyrnuvöllinn að hvetja FH
áfram. Hrafnkell var börnum sínum,
Atla og Þóru, góður og áhugasamur
faðir og er missir þeirra mikill.
Elsku Gurrý, Atli, Þóra og fjöl-
skylda, við sendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur og megi guð vera
með ykkur og styrkja á þessum erf-
iðu tímum. Hvíldu í friði, góði vinur.
Þínir vinir,
Thelma, Ósk, Guðrún, Lára,
Guðbjörg, Júlíus, Róbert,
Hafþór og Þröstur.
Á fyrstu sex mánuðum ársins 1975
fæddust þrjú mannvænleg bræðra-
börn í fjölskyldu okkar. Nú er það
elsta þeirra, Hrafnkell, sonur Krist-
jáns bróður og Bryndísar, fyrri konu
hans, brottkallaður svo skyndilega og
á svo óvæginn hátt. Mitt í jólaund-
irbúningi og á hátíð ljóss og friðar
hafa þau ásamt Gurrý, sambýliskonu
Hrafnkels, bróður og nánustu ætt-
ingjum vakað yfir honum dag og nótt
á gjörgæslu LHS í Fossvogi, allt síð-
an hið hræðilega slys átti sér stað,
sem kostaði þrjú mannslíf. Margir
eiga um sárt að binda vegna þessa.
Sárt er að sjá á eftir ungum frænda
sem hrifinn er burtu frá Gurrý, Atla,
níu ára, og Þóru, þriggja ára. Ung
fjölskylda sem átti vonir og þrár er
brotin. Hrafnkell var einstaklega vel
gerður maður til líkama og sálar. Það
vita allir sem kynntust honum við leik
og störf. Ungur hóf hann knatt-
spyrnuiðkun hjá FH og spilaði með
meistaraflokki eins og eldri bróðir
hans Ólafur Helgi. Voru þeir mjög
samrýndir bræður. Eftir nám og
knattspyrnuiðkun í Bandaríkjunum
hóf Hrafnkell störf hjá RÚV og flutti
okkur fréttir af íþróttum og þar var
ekki komið að tómum kofunum. Ein-
staklega gaman var að hlusta á
Hrafnkel lýsa leikjum vegna þess að
hann hafði haldgóða þekkingu á
íþróttum almennt og svo var hann
spaugsamur og hafði næmt auga fyrir
því sem skondið var. Hann var fljótur
að átta sig á hlutunum og mörg gull-
korn hrukku af vörum hans í hraða
leiksins. Alltaf var notalegt að hitta
Hrafnkel. Þótt við byggjum í sama
bæ lágu leiðir okkar ekki oft saman í
dagsins önn. Síðast hittum við hann á
Ísafirði í sumar, þar sem hann dvaldi
með móður sinni á slóðum afa síns og
ömmu í móðurætt. Var hann þar í
góðu yfirlæti að kynna börnum sínum
og Gurrý uppruna sinn. Brosið alltaf
jafn einlægt og hlýjan streymdi frá
honum. Börnin okkar báru ávallt
hlýtt þel til Hrafnkels og sakna hans
sárt við þessi tímamót. Sárastur er
söknuður og harmur Gurrýjar, Atla
og Þóru og foreldranna, Bryndísar og
Kristjáns og eldri bróður, Ólafs
Helga. Að missa sambýlismann og
föður, að missa barnið sitt, að missa
bróður er nokkuð sem enginn óskar
sér. Það er sárt og það tekur á sálina.
Jólin eru hátíð ljóss og friðar og það
er einlæg ósk okkar í fjölskyldunni að
trúin á æðra máttarvald deyfi sárs-
aukann og viðhaldi því ljósi sem ávallt
skín hið innra með okkur í trú á hið
góða í tilverunni. Ég er sannfærður
um að móðuramma og föðurforeldrar
hafi tekið vel á móti frænda mínum og
hlúa að honum uns við sameinumst öll
í betri heimi. Far í friði og megi al-
mættið styrkja þá sem sárast sakna.
Páll, Guðjóna, börn og fjöl-
skyldur þeirra.
Meira að segja röddin í höfðinu á
mér brestur þegar að ég hugsa til þín.
Ég á eftir að sakna þín sárt. Ég trúi
því ekki ennþá að ég eigi aldrei eftir
að tala við þig aftur. Aldrei eftir að
spila með þér fótbolta aftur. Aldrei
eftir að fá skammir frá þér eftir að
hafa klúðrað dauðafæri aftur. Ég
verð alltaf þakklátur fyrir að hafa
fengið að eyða svona miklum tíma
með þér þetta síðasta ár þitt og fengið
að sjá þig þar sem að þú naust þín
hvað best, inni á fótboltavellinum.
Mér stekkur alltaf bros í gegnum
tárin þegar að ég hugsa til þess
þegar við sátum tveir saman inni í
eldhúsi hjá ömmu og afa og spiluðum
Íslenka knattspyrnu spurningaspilið.
Ég fékk bara að gera tvisvar sinnum
því að þú svaraðir öllu rétt. Og þegar
að þú fékkst spurningu um bróður
þinn fannst mér nóg komið og sagðist
aldrei ætla að spila þetta spil við þig
aftur, hvað ég gæfi ekki til að geta
það núna.
Ég mun aldrei gleyma þér.
Andri Haraldsson.
Elsku Hrafnkell.
Mikið er sárt að þurfa að setjast
niður og skrifa þessi kveðjuorð til þín,
allt, allt of snemma. Satt best að segja
eigum við ennþá bágt með að trúa því
að raunveruleikinn sé svona grimm-
ur. Ennþá bíðum við eftir að vakna af
þessum vonda draumi, líta yfir til
ykkar í næsta hús og sjá glitta í þig
þar. En það er víst hluti af lífinu að
sætta sig við það sem við fáum ekki
breytt.
Minningarnar um þig eru ljóslif-
andi og það eru ótal skemmtilegar
stundir sem við höfum eytt með ykk-
ur fjölskyldunni, bæði hér heima og
erlendis. Sérstaklega hugsum við
hlýtt til stundanna sem við áttum
saman þegar þið heimsóttuð okkur í
Þýskalandi, takk fyrir yndislegar
samverustundir þar. Svo eftir að við
fluttum í næsta hús við ykkur hefur
samgangurinn verið mikill og okkur
hefur þótt þið svo frábærir nágrann-
ar og vinir að við getum helst aldrei
hugsað okkur að búa neins staðar
annars staðar. Mest hafa Gurrý og
börnin þó misst. Þú hefur verið hluti
af lífi frænku minnar svo lengi sem
ég, litla frænka, man eftir og í mínum
huga eruð þið par, sem órjúfanleg
heild. Börnin hafa misst yndislegan
föður, föður sem talaði við þau af virð-
ingu og sem þau væru fullorðnir ein-
staklingar, óþreytandi að bera í þau
fróðleik um lífið og tilveruna.
Elsku Hrafnkell, við munum gera
okkar besta í að styrkja Gurrý og
börnin þín á þessum erfiðu tímum, við
lofum því. Foreldrum þínum og bróð-
ur vottum við einnig samúð okkar.
Guð geymi þig,
Edda Karen og Þórður.
Okkur langar með nokkrum orðum
að minnast elskulegs frænda okkar,
Hrafnkels Kristjánssonar. Það er
margt sem flýgur í gegnum hugann
þegar sest er niður og gamlar minn-
ingar rifjaðar upp.
Það sem stendur upp úr í minn-
ingum okkar um Hrafnkel er húm-
orinn og hvílíkur gleðigjafi hann var.
Alltaf var hann kátur og brandararn-
ir ultu upp úr honum án fyrirhafnar.
Við systrabörnin vorum greinilega
öll frá sömu plánetunni og skildum
húmor hvert annars því þegar við
hittumst voru ávallt endurteknir
óteljandi frasar úr gömlum áramóta-
skaupum og skemmtiþáttum, jafnvel
heilu atriðin orðrétt. Við hittumst
ekki mjög oft síðastliðin ár en alltaf
var rosalega gaman hjá okkur og
mikið hlegið.
Við erum þakklát fyrir þau ár sem
við fengum með Hrafnkatli þó svo að
þau hefðu mátt vera miklu fleiri.
Elsku Gurrý, Atli, Þóra, Bryndís,
Kristján, Helga, Óli og Dísa, megi al-
góður Guð styrkja ykkur á þessum
erfiðu tímum.
Guðmundur Stefán, Ragnheið-
ur, Davíð Þór og Margrét.
Elsku Hrafnkell.
Minningarnar um þig eru svo
margar. Öll skiptin sem ég gisti hjá
ömmu og afa svo ég gæti komið með
út á flugvöll að sækja ykkur Gurrý
þegar þið bjugguð úti, spilagaldrarnir
og þegar þú þóttist láta braka í nefinu
á þér og við horfðum á heilluð en samt
með hryllingssvip. Flórídaferðin er
líka eftirminnileg. Eftir að ég varð
fullorðin urðu samskipti okkar á
meiri jafnréttisgrundvelli og var
gaman að heyra þína hlið á málum þó
að við værum alls ekki alltaf sam-
mála. Þegar Gummi kom inn í fjöl-
skylduna náðuð þið vel saman í gegn-
um sameiginleg áhugamál. Enginn
var jafn spenntur fyrir veiðiferðinni
síðasta sumar og þú og ranghvolfdum
við Gurrý augunum hvor til annarrar
þegar við heyrðum ykkur strákana
skipuleggja hana út í hið óendanlega.
Jólaboðið var tómlegt án þín og
óvenjulegt að taka ekki í spil enda var
alltaf jafn gaman að vinna þig í Pic-
tionary. Leyndardómurinn um
hreinu jógúrtina mun lifa þangað til
við hittumst aftur. Við vorum svo viss
um að þú myndir ná þér og Gummi
ætlaði að segja við þig að hann væri
ekki enn búinn að fyrirgefa þér víta-
spyrnuna. Þá hefðir þú eflaust komið
með fast skot til baka enda alltaf með
hnitmiðuð svör og tilbúinn í rökræð-
ur.
Elsku Gurrý, Atli, Þóra og fjöl-
skylda,
við munum gera okkar besta til að
hugga ykkur í þessari miklu sorg og
vitum að Hrafnkell mun fylgjast með
ykkur.
Hjördís og Guðmundur S.
Kveðja frá Ríkisútvarpinu
Það var stórt skarð höggvið í raðir
starfsmanna Ríkisútvarpsins þegar
Hrafnkell Kristjánsson íþróttafrétta-
maður lést á jóladag eftir að hafa lent
í hörmulegu slysi skömmu áður. Og
það er þyngra en tárum tekur að
hugsa til þeirra sem þannig sjá á eftir
föður, maka, bróður og syni.
Þótt Hrafnkell væri ungur að árum
– og ætti nánast allt ævistarfið sitt
eftir – náði hann sannarlega að setja
jákvætt mark sitt á vinnustaðinn.
Hann var ekki bara duglegur og sam-
viskusamur starfsmaður heldur ríkti
alltaf í kringum hann þessi uppbyggi-
lega og hvetjandi glaðværð, sem er
hverjum vinnustað svo ótrúlega verð-
mæt og mikilvæg.
Ég vil fyrir hönd Ríkisútvarpsins
og starfsmanna þess kveðja Hrafnkel
með kæru þakklæti og virðingu. Fjöl-
skyldu hans og ástvinum votta ég
okkar dýpstu samúð.
Páll Magnússon.
Kveðja frá Fréttastofu RÚV
Lífið er dýrmæt gjöf sem við eigum
að njóta. Því gleymum við stundum
og látum einhverja smámuni spilla
góðum degi, eitthvað sem engu máli
skiptir. Nú höfum við harkalega verið
minnt á hversu brothætt lífið er –
gjöfin sem okkur er gefin. Hrafnkell
Kristjánsson, vinur okkar og félagi,
var hrifinn burt í blóma lífsins, þessi
hlýi, gjafmildi og lífsglaði drengur.
Það er erfitt að sætta sig við þvílíkan
missi og halda áfram. En það verðum
við að gera, það hefði Hrafnkell viljað
að við gerðum. Oftast er mikill erill á
Fréttastofunni, fólkið þar vinnur náið
og mikið saman langan vinnudag.
Fréttamannsstarfið gerir miklar
kröfur til þeirra sem það inna af
hendi og aðstæðurnar á vinnustaðn-
um reyna auðvitað á margvíslega eig-
inleika og hæfni. Hrafnkell var gædd-
ur öllum helstu eiginleikum góðra
fréttamanna, heiðarlegur, þolgóður
og jákvæður – og svona dæmalaust
bjartur, broshýr og glæsilegur á velli.
Hann var flinkur fagmaður, sem óx af
verkum sínum, var í fremstu röð ís-
lenskra íþróttafréttamanna fyrr og
síðar – og framtíðin brosti við honum.
Það er vandfyllt skarðið sem
Hrafnkell skilur eftir sig á Frétta-
stofu RÚV og í húsinu í Efstaleiti 1.
Hann var heill í samskiptum og setti
hagsmuni hópsins ávallt framar sín-
um eigin. Íþróttafréttamenn RÚV og
við öll höfum misst góðan félaga sem
var rausnarlegur á hæfileika sína og
lagði rækt við það skemmtilega í til-
verunni. Öll hlógum við einhvern tím-
ann og nutum dýrmætra augnablika
hversdagsins með Kela. En hvað ger-
um við nú? Verður einhvern tímann
hlegið aftur? Jöfnum við okkur eftir
þetta þunga högg? Jú, auðvitað held-
ur lífið áfram og aftur kvikna hlátrar
á göngunum. Öll erum við ríkari af
sárri reynslu þessara dimmu og
köldu daga um jólin en líka af
skemmtilegum minningum sem hafa
yljað okkur. Og þessar góðu og hlýju
minningar hjálpa okkur öllum í gegn-
um erfiðan vetur og gefa vonir um að
með hækkandi sól styrkjumst við og
eflumst. Það er í anda Kela að við
göngum glöð til verka, gleymum ekki
að hafa svolítið gaman af öllu saman.
Hugur okkar allra er hjá Guðríði
Hjördísi, Atla og Þóru, foreldrum,
bróður og öðrum nákomnum í fjöl-
skyldunni. Þeirra missir er sár. En
allt þetta góða fólk, sem Hrafnkell
elskaði og hlúði að í lifanda lífi, getur
sótt styrk í fallegar minningar um
bjartan og góðan dreng.
Óðinn Jónsson.
Ég hafði séð dálítið til hans hér
heima og heyrt af honum í knatt-
spyrnu vestur í Ameríku þar sem
hann gekk í háskóla. Kallaður til
fundar kom hann, hreinn og beinn,
skýrmæltur og yfirvegaður, viss um
Hrafnkell
Kristjánsson