Morgunblaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2010 Á ÞÍN REKSTRAR- HUGMYND HEIMA Í HÖRPU? EFNT ER TIL FORVALS Á VERSLUNAR- OG VEITINGAÞJÓNUSTU Í HÖRPU, TÓNLISTAR- OG RÁÐSTEFNUHÚSINU Í REYKJAVÍK Ago, dótturfélag Portusar, leitar að áhugasömum rekstraraðilum í húsið sem verður opnað vorið 2011. Við val á þeim verður styrkleiki vöru og þjónustu, þekking, reynsla, geta og nýbreytni lögð til grundvallar. Forvalsgögn munu liggja frammi á skrifstofu Portusar, Austurstræti 17, 5. hæð, 101 Reykjavík frá og með föstudeginum 8. janúar. Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skila á sama stað, eigi síðar en kl. 16:00, föstudaginn 29. janúar, merktum: Ago – viðskiptatækifæri: FORVAL. Sérstök athygli er vakin á kynningarfundi sem verður haldinn á Grand Hóteli, fimmtudaginn 7. janúar kl. 15. Þar verða veittar nánari upplýsingar um forvalið og forvalsgögnum dreift. Almennar upplýsingar á: www.portusgroup.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /P O R 48 60 7 12 /0 9 FYLGI Samfylkingarinnar minnkar um 2% á milli mánaða og mældist 24% í síðasta Þjóðarpúlsi Gallups. Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar lítið eitt á sama tímabili, frá nóvember til desember, og fer úr 47% í 46%. Bendir það til að óvinsæl- ar skattahækkanir og afgreiðsla Ice- save, mál sem voru í brennidepli á tímabilinu, hafi haft óveruleg áhrif á stuðninginn við stjórnina, að minnsta kosti enn sem komið er. Um þriðjungur kjósenda, eða 33%, kveðst styðja Sjálfstæðisflokk- inn sem bætir við sig prósentustigi á milli kannana. Fylgi við Vinstri- hreyfinguna – grænt framboð er hins vegar óbreytt og mælist 23%. Framsókn missir fylgi Um sjöttungur kjósenda eða tæp- lega 15% styðja Framsóknarflokk- inn, prósentustigi minna en síðast, og einn af hverjum hundrað, eða 1%, Hreyfinguna, klofningsbrot Borgarahreyfingarinnnar. Um 4% kjósenda lýsa yfir stuðn- ingi við önnur framboð í könnuninni sem byggð er á netkönnun Capacent Gallup dagana 30. nóvember til 28. desember 2009. Svarhlutfall var 70,4% og úrtaksstærð 3.659 manns. Vikmörk eru áætluð 0,5-2,1% og eru breytingar á fylgi flokkanna því innan skekkjumarka. Tæp 12% svarenda tóku ekki af- stöðu eða neituðu að gefa hana upp og um 14% sögðust myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði nú. Lítil hreyfing á fylgi stjórn- málaflokka FERÐAFÉLAG Ísland hefur hrundið af stað verkefninu Eitt fjall á viku, sem hefst strax á nýju ári. Sett hefur verið upp skipulögð dag- skrá þar sem til stendur að ganga á eitt fjall í viku hverri allt næst ár. Helgafell við Hafnarfjörð er fyrst fjalla á dagskránni, þangað verður gengið sunnudaginn 9. janúar. Viku síðar verður arkað á Úlfarsfell. „Við ætlum til að byrja með að kemba öll fjöll sem sjást af Reykja- víkursvæðinu. Þegar líður á árið færum við okkur út á land, ætlum þá að ganga á Heklu, Hvannadags- hnjúk og Snæfellsjökul. Herðubreið tökum við síðla sumars,“ segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Páll verður leiðangursstjóri í öll- um þessum ferðum þar sem í hverj- um hóp verða að hámarki 52 þátt- takendur. Reynist áhuginn mikill verða myndaðir fleiri hópar með sama hámarksfjölda þar sem einn fararstjóri verður jafnan í fylking- arbrjósti. „Hugsun okkar með þessu er að hvetja fólk til útiveru og ferðalaga. Ein fjallaferð á viku sem er tveggja til fjögurra stunda löng er góður lífsstíll sem við viljum vekja athygli á,“ segir Páll. Ferðafélagsfólk held- ur fræðslufund um verkefnið á fimmtudag í næstu viku og þá eru aðeins fáeinir dagar uns gengið verður á fyrsta fjallið. sbs@mbl.is Ætla að ganga á 52 fjöll á árinu Morgunblaðið/Eyþór ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi tíu Íslendinga heið- ursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum á nýársdag. Þeir sem fengu fálkaorðuna eru: Áshildur Haraldsdóttir tónlist- armaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskrar tón- listar. Einar Kárason rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir ritstörf og framlag til íslenskra bókmennta. Geir Jón Þórisson yfirlög- regluþjónn, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu löggæslu og félags- mála. Helgi Seljan, fyrrverandi al- þingismaður, Reykjavík, ridd- arakross fyrir störf á opinberum vettvangi og í þágu bindindis- og vel- ferðarmála. Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræð- ingur, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir í fiskifræði og hafvís- indum. Högna Sigurðardóttir arki- tekt, Frakklandi, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar húsagerðarlistar. Pétur Ágústsson framkvæmdastjóri og skipstjóri, Stykkishólmi, riddarakross fyrir frumkvæði í ferðaþjónustu. Ragn- hildur Guðrún Guðmundsdóttir, for- maður Mæðrastyrksnefndar Reykja- víkur, riddarakross fyrir störf í þágu samfélagshjálpar. Sigríður Jóna Kristjánsdóttir útskurðarmeistari, Tíu Íslendingar sæmdir fálkaorðu Grund II, Flóahreppi, riddarakross fyrir framlag til þjóðlegrar listar. Sólveig Guðlaugsdóttir, geðhjúkr- unarfræðingur á barna- og unglinga- geðdeild Landspítala, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðismála og umönnunar ungmenna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.