Morgunblaðið - 04.01.2010, Page 13

Morgunblaðið - 04.01.2010, Page 13
ngu Barnabætur Ekki er heimilt að skuldajafna barnabótum á móti opinberum gjöldum. Vaxtatekjur koma nú inn í tekjustofn til útreiknings á barnabótum, en voru undanþegnar áður. Fjárhæðir barnabóta eru að öðru leyti óbreyttar frá fyrra ári. Vaxtabætur Allar fjárhæðir og reglur um vaxtabætur eru óbreyttar frá fyrra ári. Auðlegðarskattur Á nettóeign einhleypings umfram 90 milljónir kr. og nettóeign hjóna umfram 120 milljónir kr. er lagður 1,25% auðlegðarskattur. Auðlegðarskattur er ekki lagður á félög. Sjá nánar á www.rsk.is um hvernig telja skal fram hlutabréf vegna auðlegðarskatts. Tryggingagjald Tryggingagjald er 5,34% vegna launa sem greidd voru janúar-júní 2009, en 7% vegna launa sem greidd voru júlí-desember. Álagning opinberra gjalda 2011 Fjármagnstekjuskattur Frítekjumark vegna vaxtatekna er 100.000 kr. á mann. Frítekjumark vegna leigutekna manna af íbúðahúsnæði er 30% af leigutekjum. Frítekjumark gildir ekki um arð, söluhagnað og leigutekjur af öðru en íbúðarhúsnæði. Skattlagning lögaðila Tekjuskattur hlutafélaga og einkahlutafélaga verður 18%. Tekjuskattur annarra lögaðila verður 32,7%. Gildir það m.a. um sameignar- og samvinnufélög, þrotabú og dánarbú. Nánari upplýsingar um skattalagabreytingarnar er að finna á www.rsk.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.