Morgunblaðið - 04.01.2010, Síða 31

Morgunblaðið - 04.01.2010, Síða 31
Góð Nicole Vala Cariglia Það er gömul og ný saga aðjólin séu árviss tónlistar-hátíð og framboðið af tón-leikum og tónlistarflutningi feikimikið. Hefðin í vali tónlistar er oft vana- bundin, en tónleikarnir sem hér eru til umfjöllunar brugðu af viðtekinni leið jólahefðar á ýmsa lund. Þar var ungt fólk að flytja nýja tónlist í nýja og glæsilega menning- arhúsinu Bergi á Dalvík. Berg býður mann strax velkominn og rammar þá viðburði með glæstri umgjörð, sem stillti bæði önd og hönd vel inn á það sem í vændum var. Ég varð strax bergnuminn af hús- inu, og Nicole Vala auðveldaði áheyr- endum aðgengi að tónverkum með einstaklega greinargóðum munn- legum skýringum. Endurhljómur í salnum var full- mikill og bitnaði það á framsögn texta og eins stundum í hraðari leik- runum. Þetta er örugglega stillingaratriði og hægt að laga með fullkomnum hljómburðarbúnaði salarins. Einleiksverkin á tónleikunum hrifu mig mest og sér í lagi Sept Pa- pillions eftir Saariaho. Þar fór saman glæsilegt verk flutt af glæsilegum sellóleikara á einkar glæsilegan máta. Þar voru þolrif bæði hljóðfæris og áheyrenda reynd í þaula, með fulln- aðarsigri verks og flytjanda í lokin. Tónverkið: „The Grain of Voiced Silence “ eftir David Cucchiara var frumflutt degi fyrr í Laugarborg og var nú flutt að öðru sinni. Verkið er ljóðrænt og býr yfir áhrifamætti í andstæðum stefja og hljóðfalls. Það naut sín mjög vel í ein- lægum og hrífandi flutningi Nicole Völu. Ég var ekki eins ánægður með flutninginn á verkum Chopin og Bach. Næturljóðið er upphaflega samið fyrir píanó og mér fannst skorta meiri undiröldu og tilfinningaspennu í þessari útfærslu. Sónata Bach naut sín ekki sem skyldi þar sem píanóið er ekki nógu gott, þ.e. ekki er kominn í Berg sá góði flygill sem þar á að vera. Þessir annmarkar skyggðu ekki á það að tónleikarnir í heild sinni gripu mann sterkum tökum. Menningarhúsið Berg er og verð- ur gersemi! Til hamingju Dalvíkingar! Bergnuminn Tónlist Sellótónleikar í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík bbbbn Á efnisskrá: Einleiksverk fyrir selló eftir Judith Weir, David Cucchiara og Kaiju Saariaho, Chopin og Jóhann Sebastian Bach. Flytjendur: Nicole Vala Cariglia á selló og David Cucchiara á píanó. Mánudag- inn 28. des. kl. 20.30. JÓN HLÖÐVER ÁSKELSSON TÓNLIST Menning 31FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2010 Í HOLLYWOOD er nú búið að smíða kvikmynd eftir löngu gleymdu handriti Tennessee Willi- ams. Williams er hvað þekktastur fyrir leikrit sitt Sporvagninn Girnd, en kvik- mynd gerð eftir því, með þeim Vivien Leigh og Mar- lon Brando hlaut tólf óskarstilnefn- ingar og fern Óskarsverðlaun árið 1951. Nýja verkið heitir The Loss of a Teardrop Diamond og með aðal- hlutverk fer Bryce Dallas Howard dóttir leikstjórans Ron Howard og þekkt úr myndum eins og Spider- man III og The Village. „Mér fannst næstum óhugsandi að ég gæti fengið slíkt tækifæri,“ hefur Los Angeles Times eftir leik- konunni. „Sú staðreynd að þarna er um að ræða áður óflutt en fullgert verk eftir Tennesse Williams, og að ég yrði partur áf því fimmtíu árum eftir að það var samið … það krefst gríðarlegrar ábyrgðar. Tennessee Williams er látinn og ég fann til þess að þessari vinnu þyrfti að sinna af al- úð og ábyrgð.“ Sögusviðið er Memphisborg í Tennessee ríki á þriðja áratug síð- ustu aldar. Fisher Willow, sem How- ard leikur er frökk og uppreisn- argjörn ung Suðurríkjakona og erfingi veldis föður síns. Hún á í sál- arkreppu þegar hún snýr aftur til Memphis eftir dvöl í Evrópu og þarf að takast á við syndir feðranna. Mótleikari hennar í myndinni er Chris Evans en leikstjórinn er ný- græðingur í kvikmyndabransanum, Jodie Markell. Myndin var frumsýnd vestra um áramótin. Hvarf dropalaga demantsins Ný mynd eftir gleymdu verki Tennessee Williams Suðurríkjadama Bryce Howard dá- ist að sérstæðum demantseyrnalokki sem leikur lykilhlutverk í myndinni. Tennessee Williams FYRIR skömmu hlaut Hákon Bjarnason píanó- leikari styrk að fjárhæð 1.500.000 kr. úr Minn- ingarsjóði um Birgi Ein- arsson apótekara. Þetta er 16. styrkurinn sem veittur er úr sjóðnum frá því ekkja Birgis, Anna Egilsdóttir Einarsson, stofnaði sjóðinn 28. apríl 1995, tæpum mánuði fyrir andlát sitt, en Birgir lést 30. nóvember 1994. Vegna styrkveit- ingarinnar leikur Hákon Bjarnason á tónleikum í Selinu á Stokkalæk á þrettándanum, 6. janúar, kl. 20. Þar leikur hann verk eftir Joseph Haydn, Hanns Eisler, Rachmaninoff og Johann Sebastian Bach. Aðgangur er ókeypis. Tónlist Hákon Bjarnason leikur á Stokkalæk Hákon Bjarnason SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands byrjar nýtt ár að vanda með Vínartónleikum. Fernir tónleikar eru á dagskrá, þeir fyrstu á miðvikudagskvöld kl. 19.30, svo á fimmtudags- og föstudagskvöld á sama tíma og þeir síðustu á laugardag kl. 17. Í ár eru það Finnur Bjarnason og Þóra Einarsdóttir sem stíga á svið með hljómsveitinni á þessum vinsælustu tónleikum og segir í frétt frá hljómsveitinni að ferna tónleika þurfi til að allir komist að sem vilji og ráð sé að tryggja sér miða í tíma. Á efnisskrá verða sígildar Vínarperlur eftir Strauss-feðga og fleiri, þar á meðal Dónárvalsinn og Radetzky-marsinn. Tónlist Vínartónleikar Sinfó að hefjast Þóra Einarsdóttir EINS og sést er lítið um að vera í skipulagðri menningar- starfsemi svona í upphafi árs – nú nema í tónlistinni. Þannig er fyrsti viðburðurinn á Bóka- safni Seltjarnarness árið 2010 tónleikar í röðinni Te og tón- list. Þeir verða haldnir í dag, mánudaginn 4. janúar kl. 17.30. Á tónleikunum er boðið upp á samleik Sólrúnar Gunn- arsdóttur á fiðlu og Sólveigar Thoroddsen á hörpu. Allir eru velkomnir. Að- gangur ókeypis. Te og tónlist er í samstarfi við Tónlistarskóla Seltjarnarness en eftir um mánuð eða svo eru aðrir tónleikar raðarinnar og mun Hinrik Bjarnason þá leika á gítar. Tónlist Te og tónlist á Seltjarnarnesi Sólrún Gunnarsdóttir Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is MELODIA, plata Kammerkórsins Carmina er ein besta plata síðasta árs að mati Gramophone, stærsta og virtasta tónlistarblaðs Evrópu. Melodia kom út á Íslandi 2007 og fékk þá íslensku tónlistarverðlaunin en var ekki dreift í Englandi fyrr en á nýliðnu ári og tímarit eins og Gramophone fjalla ekki um diska fyrr en þeir fara í dreifingu ytra. „Við áttum ekki von á að enn myndi aukast við upphefð okkar á þessu ári en það er alltaf skemmti- legt að fá góða dóma. Þetta er mjög óvæntur en ánægjulegur heiður,“ sagði Árni Heimir Ingólfsson tón- listarfræðingur kórstjóri í samtali við Morgunblaðið rétt fyrir áramót. „Allur diskurinn er stórsigur“ Í umsögninni í Gramophone skrif- ar David Fallows að diskurinn bæti miklu við þekkingu manna á tónlist þjóðar sem hafi hingað til verið kunnari fyrir bókmenntaarf sinn. Hann hrósar sérstaklega sópran- söngkonunum Kirstínu Ernu Blön- dal og Mörtu Guðrúnu Halldórs- dóttur fyrir „stórfenglega tærar raddir sínar“ og bendir jafnframt á þátt Árna Heimis, sem hafi útsett nokkur laganna, stjórni kórnum og ritað ítarlegan inngang að diskinum. „Þetta er stórmerkt söngvasafn, framsett af kunnáttu og fullkomnu músíkalíteti. Allur diskurinn er stór- sigur“, skrifar Fallows. „Diskurinn hefur selst mjög vel í Bretlandi og á Amazon [á netinu], og önnur mjög virt tímarit hafa sett sig í samband við okkur og vilja fjalla um diskinn og starfsemi okkar,“ seg- ir Árni Heimir, spurður um áhrif umfjöllunarinnar í Gramophone. Á diskinum flytur Carmina tónlist úr íslensku handriti frá 17. öld. Kórinn Carmina varð til sumarið 2004 „eiginlega bæði til þess að flytja fyrir Íslendinga eitthvað af gullald- artónlist Evrópu frá endurreisnar- tímanum og ekki síður að kynna fyrir Íslendingum og umheiminum gömlu tónlistina sem við eigum sjálf.“ Nýr diskur er væntanlegur í vor þar sem kórinn flytur tónlist úr ís- lensku handriti frá miðri 18. öld og næstu tónleikar á Íslandi verða á Listahátíð í Reykjavík í maí, í Kristskirkju. Þar verður boðið upp á tónlist eftir meistara endurreisnar- innar, Josquin, Tallis og fleiri Starf Carmina er aukabúgrein hjá öllum sem í kórnum eru; hann skipa atvinnumenn í söng og því er starfið stopult. „Við höldum fáa tónleika. Komum saman í mesta lagi tvisvar á ári en tökum þá góðar skorpur,“ seg- ir Árni Heimir. Gramophone segir plötu Kammerkórsins Carmina eina þá bestu á síðasta ári „Mjög óvænt en ánægjulegt“ Morgunblaðið/ÞÖK Meðbyr „Einstaklega ánægjulegt að uppskera svona ríkulega fyrir það sem maður er að gera. Það gefur manni aukinn kraft og meðbyr inn í nýtt ár,“ segir Árni Heimir Ingólfsson kórstjóri Carminu. „Þetta var ótrúlega skemmtilegt ár og einstaklega ánægjulegt að uppskera svona ríkulega fyrir það sem maður er að gera. Það gefur manni aukinn kraft og meðbyr inn í nýtt ár,“ segir Árni Heimir. Ekki er vitað hvort kórinn komi fram erlendis í framhaldi hinnar lofsamlegu umfjöllunar í Gra- mophone en það sé ekki úti- lokað. „Það er óljóst hvernig tíma mínum verður varið á næst- unni og svo er þetta ekki heppi- legasti tíminn, vegna gengis- þróunar, að fara með 15 manna hóp í víking. Við eigum þó inni boð um að koma fram sem gestakór í Westminster Abbey,“ segir Árni Heimir. „Það boð kom fyrir nokkru en okkur hefur skort fjármagn til að fara. En koma tíma og koma ráð,“ segir hann um möguleikann á því að kórinn syngi í þessari frægu kirkju í London. Þá hefur Árna Heimi ver- ið boðið að halda fyrirlestra um handritið og umhverfið sem það er sprottið úr, t.d. í Harvard í október sl. og í New York í mars í vetur. Boðið að syngja í Westminster Abbey „ …Ég þarf frið. Al- geran frið. Tóma dagbók og núll áreiti.“38 »

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.