Morgunblaðið - 04.01.2010, Page 39
Menning 39FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2010
gítar
skóli ólafs gauks
Gítargaman
Innritun hefst í dag, mánudaginn 4. janúar!
Sláið á þráðinn í síma 588 3730, sendið tölvupóst, ol-gaukur@islandia.is
eða komið við í skólanum Síðumúla 17, kl. 14-17 virka daga
Kennsla hefst 25. janúar
FRÍSTUNDAKORT Í FULLU GILDI
• Skemmtilegt tónlistarnám, gulli betra
• Ævilöng inneign sem aldrei rýrnar
• Byrjun, framhald, plokk, þvergrip,
rythmagítar, sólógítar 1 og 2
• Gítarar á staðnum, allt kennsluefni innifalið,
Geisladiskar með undirleik fylgja öllum
námsbrautum.
• Lauflétt og lifandi gítarnám fyrir alla, yngri sem
eldri, byrjendur eða lengra komna
Lögum okkur tímabundið að aðstæðum og
LÆKKUM VERÐIÐ VERULEGA
hjá þeim sem innritast og ganga frá greiðslu fyrir 15. janúar
• Lánum gítara til heimaæfinga endurgjaldlaust meðan birgðir endast
• Glænýtt byrjendanámskeið er í boði. Það
heitir LÉTT OG LEIKANDI vegna þess
hve auðvelt og skemmtilegt það er!
ATH! Ný vefsíða: www.gitarskoliolafsgauks.com • Gítarskóli Ólafs Gauks er á Facebook
ÞAÐ var við hæfi að fjörugustu tónleikasveitir norðan Alpafjalla
slitu erfiðu ári með taumlausri gleði og fölskvalausu fjöri. Stuðsveit-
irnar FM Belfast og Retro Stefson troðfylltu Nasa miðvikudags-
kvöldið 30. desember og sendu þá sem viðstaddir voru með sælubros
á vör og bjartsýni í brjósti á vit nýs árs.
Sælu bundið svitakóf
Jíhaa! Unnsteinn er
maður fólksins.
Gleði Færri komust að en vildu á sviðinu um tíma.
Morgunblaðið/Eggert
Fjöldi Eins og sjá má vantaði ekki upp á mannfjöldann.
Hress Unnsteinn Manuel leiddi
Retro Stefson af festu.
Í FYRRA var alþjóðlega hljóm-
sveitakeppnin Wacken Metal
Battle haldin í fyrsta sinn hér-
lendis. Sjö íslenskar hljómsveitir
kepptu þá um sæti á Wacken-
hátíðinni í Þýskalandi, stærstu
þungarokkshátíð heims, og fór
dauðarokkssveitin Benath utan og
lék á hátíðinni, atti þar kappi við
önnur erlend bönd. Það þykir mik-
ill og stór rokkplús í kladdann að
spila á þessari virtu hátíð og lönd-
uðu Beneath t.a.m. samningi við
erlent fyrirtæki í kjölfarið, kali-
fornísku útgáfuna Mordbrann og
kemur stuttskífan Hollow Empty
Void út á hennar vegum nú í jan-
úar.
Skráning hljómsveita fyrir Me-
tal Battle 2010 er hafin en um-
sóknarfrestur rennur út 20. janúar
2010. Keppnin fer svo fram 13.
mars á Sódóma Reykjavík.
Á Wacken 2010 koma nokkur af
stærstu nöfnum þungarokksins
fram, þ. á m. Iron Maiden, Slayer,
Mötley Crüe, Alice Cooper,
W.A.S.P og Immortal. Færeysku
frændur vorir í sveitinni Týr
munu einnig leika og jafnframt
hin íslenska Sólstafir. Allar nánari
upplýsingar um keppnina hér-
lendis gefur Þorsteinn Kolbeins-
son í gegnum netfangið
thorsteinnk@hive.is
Dauðarokk Beneath.
Wacken
hljómsveita-
keppnin