Morgunblaðið - 13.01.2010, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÚTREIÐAR eru vinsælt áhugamál og þeir kunna
efalítið vel að meta það hestamennirnir að hafa
aðgang að 800 reiðslóða gagnasafni á vef Jón-
asar Kristjánssonar sem aukið hefur verið og
endurbætt. Kannski slóðin við Rauðavatn, sem
hér er þeyst eftir, leynist í safninu.
Á FÁKUM FRÁUM FRAM UM VEG
Morgunblaðið/Heiddi
EKKERT opinbert eldvarnareftirlit
fer fram í íbúðarhúsum eftir að þau
hafa verið tekin í notkun. Björn
Karlsson brunamálastjóri segir að
það sé í samræmi við reglur í ná-
grannalöndunum og byggist á virð-
ingu fyrir friðhelgi einkalífs fólks.
Lögreglan rannsakar upptök elds
sem kom upp um nótt í gömlu húsi
við Hverfisgötu í síðustu viku. Þar
var fimm íbúum bjargað en maður á
þrítugsaldri lést af völdum brunans.
Talið er að eldurinn hafi kviknað út
frá ljósi á baðherbergi á fyrstu hæð
og farið skjótt innan þilja upp á
þriðju hæð þar sem mesti eldurinn
varð. Sá sem lést bjó á efstu hæðinni.
Björn Karlsson segir um helming
eldsvoða í íbúðarhúsum stafa af raf-
magni eða rangri notkun raftækja.
Þar kemur eldavélin mest við sögu.
Fram kom í fréttum Útvarps í gær
að enginn reykskynjari var í húsinu
við Hverfisgötu. Björn segir mikil-
vægt að vera með reykskynjara í lagi
í öllum íbúðum og gæta þess að
skipta reglulega um rafhlöðu. „Það
er ódýrt öryggistæki en ákaflega
virkt,“ segir Björn.
Hann segir að alltaf geti kviknað í
út frá rafmagni. Því sé vissara fyrir
eigendur gamalla húsa þar sem eldri
rafmagnstöflur eru í notkun, og íbúa,
að láta löggilta rafverktaka fara
reglulega yfir töflurnar.
helgi@mbl.is
Ekkert eldvarnareftirlit
í gömlum íbúðarhúsum
Morgunblaðið/Júlíus
Eldur Maður lést í eldsvoða við
Hverfisgötu í síðustu viku.
Eldavél algengasti
orsakavaldurinn
LJÓST er að
væntanleg lög
um persónukjör
munu ekki verða
afgreidd í tæka
tíð fyrir sveitar-
stjórnarkosning-
arnar í maí, að
sögn Steinunnar
Valdísar Óskars-
dóttur, for-
manns alls-
herjarnefndar Alþingis. Málið
verður að vísu tekið upp á ný þeg-
ar þing kemur saman en sveit-
arfélögin þurfa lengri undirbún-
ingstíma en svo að hægt verði að
notast við lögin í næstu kosn-
ingum, jafnvel þótt þau verði sam-
þykkt á þinginu.
Samband íslenskra sveitarfélaga
taldi í umsögn sinni um frum-
varpið upp kosti við frumvarpið
um persónukjör og einnig ýmsa
ókosti, m.a. að jafnræði kynjanna
yrði ekki tryggt og hætta yrði á
innbyrðis átökum innan framboðs-
lista í aðdraganda kosninga.
Fram kom að sú hugmynd nyti
töluverðs stuðnings að að þessu
sinni yrði aðeins kveðið á um
heimild til að viðhafa persónukjör
fremur en að skylda sveitarfélög
til þess. Með því móti mætti gera
tilraun með persónukjör í nokkr-
um sveitarfélögum við næstu
sveitarstjórnarkosningar og meta í
framhaldinu hvort ástæða væri til
að lögfesta slíkt fyrirkomulag við
sveitarstjórnar- og alþingiskosn-
ingar. kjon@mbl.is
Persónu-
kjör ekki
notað í vor
Steinunn Valdís
Óskarsdóttir
Sveitarfélög myndu
þurfa meiri tíma
EKKI verður efnt til almennra
kosninga um nýjan prest við Sel-
fosskirkju. Frestur til að óska eftir
kosningum leið án þess að óskað
væri eftir þeim. Væntanlegar um-
sóknir fara því fyrir valnefnd.
Um 1.800 sóknarbörn á Selfossi
óskuðu eftir að efnt yrði til al-
mennra kosninga um ráðningu
sóknarprests í nýju Selfosspresta-
kalli sem varð til undir lok síðasta
árs eftir ákvörðun kirkjuþings um
sameiningu Hraungerðis- og Sel-
fossprestakalla. Kirkjan svaraði því
til að samkvæmt starfsreglum henn-
ar héldi starfandi sóknarprestur í
prestakallinu starfinu. Í þessu til-
felli Kristinn Ág. Friðfinnsson sem
var sóknarprestur í gamla Hraun-
gerðisprestakalli. Sóknarprestur-
inn á Selfossi hefur verið þar í
afleysingum.
Biskup Íslands ákvað í staðinn að
auglýsa eftir presti til starfa í Sel-
fossprestakalli „með sérstakar
skyldur við Selfosskirkju“, eins og
það var orðað í auglýsingu. Emb-
ættið var auglýst fyrir jól og höfðu
sóknarbörn hálfan mánuð til að
óska eftir kosningum frá því auglýs-
ing var birt. Sá frestur er nú liðinn.
Umsóknarfrestur um embættið
rennur út 25. janúar nk. Kosin hefur
verið níu manna valnefnd undir for-
ystu prófasts sem mun reyna að ná
samstöðu um ráðningu prests.
Ekki efnt til prests-
kosningar á Selfossi
Engar óskir bárust um kosningu
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
VONAST er til þess að unnt verði að
taka bráðabirgðafangelsi í Bitru
íHraungerðishreppi í gagnið í síðari
hluta febrúarmánaðar, gangi allt eft-
ir, en það er nú til skoðunar í að-
alskipulagsbreytingu.
Íslensk fangelsi hafa fyrir löngu
sprengt utan af sér og mun bráða-
birgðalausnin í Bitru slá á brýnustu
þörfina en gert er ráð fyrir að þar
muni bætast við um 20 klefar í opnu
fangelsi, svipuðu Kvíabryggju.
Helmingur á lögreglustöðvum
„Það eina sem dregur þetta núna
er aðalskipulagsbreytingin, þegar
því ferli lýkur getum við farið að und-
irbúa okkur,“
segir Páll Winkel
fangelsismála-
stjóri. Þessu úr-
ræði sé tekið
fagnandi, það
leysi sannarlega
til bráðabirgða
þann vanda sem
snýr að afplánun-
arplássum en
hins vegar standi eftir brýn þörf fyr-
ir fleiri gæsluvarðhaldspláss.
Allt að helmingur gæsluvarðhalds-
fanga, eða á bilinu fimm til átta fang-
ar að jafnaði, hefur undanfarið verið
hýstur í klefum á lögreglustöðvum
þar sem ekki eru nógu mörg ein-
angrunarpláss til. „Þetta er í raun
hefðbundið ástand hvað þetta varð-
ar, en það sem er óvenjulegt er hátt
hlutfall útlendinga í gæsluvarðhaldi.
Um það bil 70% þeirra sem úrskurð-
aðir eru í gæsluvarðhald eru útlend-
ingar.“
Til samanburðar bendir Páll á að
af dæmdum föngum í landinu séu út-
lendingar um 26%. Gæsluvarðhald
gefi hins vegar innsýn í framtíðina og
gefur þetta því til kynna að hlutfall
erlendra fanga muni fara hækkandi.
Erlendu fangarnir sitja inni fyrir
allar mögulegar gerðir af brotum að
sögn Páls, s.s. fíkniefnabrot og man-
sal, ofbeldisbrot o.fl.
Um áramótin rann starfsleyfi
Hegningarhússins við Skólavörðu-
stíg út og hefur enn einu sinni verið
óskað eftir starfsleyfi á undanþágu.
„Við vonumst til að það komi jákvætt
út, en þetta fangelsi er ekki hægt að
nota í hið óendanlega. Þetta eru
bráðabirgðalausnir á vanda sem þarf
að leysa til framtíðar.“
Fangelsið opnað í febrúar
Vonast er til að um 20 fangaklefar verði teknir í notkun í Bitru í næsta mánuði
Bráðabirgðalausn á vanda sem þarf að leysa til framtíðar Pláss ekki fyrir hendi
» Fangelsi og gæsluvarðhaldsklefar eru yfirfull
» Um 70% gæsluvarðhaldsfanga eru útlendingar
» Bitra hefur áður verið nýtt sem opið fangelsi
Páll Winkel
MAÐURINN sem lést af slysför-
um þegar hann féll útbyrðis af
báti í Noregi í fyrradag hét Hálf-
dán Björn Guðmundsson. Hann
var 61 árs að aldri, fæddur 4.
ágúst 1948.
Hálfdán var íslenskur ríkisborg-
ari en með lögheimili í Noregi.
Hann var einn þriggja skipverja
á bátnum Martin Senior, sem var
á leið til hafnar eftir veiðiferð.
Björgunarþyrla fann Hálfdán í
sjónum um hálftíma eftir að til-
kynnt var um slysið. Hann var úr-
skurðaður látinn þegar komið var
í land.
Drukknaði
í Noregi