Morgunblaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2010
Össur Skarphéðinsson utanrík-isráðherra telur að nú hafi Ís-
lendingar aðeins örfáa daga til að
leita á ný samninga við Breta og
Hollendinga. Ráðherrann er ör-
væntingarfullur og telur að nú hafi
ef til vill um örskamma hríð opn-
ast örmjó rifa á örlitlum glugga.
Hefur nokkurheyrt þenn-
an söng áður?
Kannast nokkur
við að hafa heyrt
það áður að við
séum alveg að
falla á tíma í Ice-
save-málinu? Að
nú blasi hyldýpið
við ef við leggj-
um ekki þegar
niður vopn.
Eftir ítrekaða lokafresti allt síð-asta ár voru nýliðin áramót
hinn mikli lokafrestur. Þess vegna
varð þingið að hamast á milli jóla
og nýárs og þingforseti ákvað að
loka á allar frekari upplýsingar
um málið, enda gætu þær frestað
því fram yfir frestinn mikla.
Svo liðu áramótin án þess aðnokkuð gerðist og sama er að
segja um fyrstu daga ársins.
Heimsendir lætur enn á sér
standa.
Hvernig væri að taka nú góðantíma og hugsa málið upp á
nýtt? Eitt sem mælir til að mynda
mjög með því að bíða er að kosn-
ingar eru framundan bæði í Bret-
landi og Hollandi.
Ástæða er til að ætla að nú,skömmu fyrir kosningar, séu
stjórnmálamenn í þessum löndum
lítið sveigjanlegir í viðræðum af
þessu tagi. Eftir kosningar má
ætla að viðhorfið geti verið tölu-
vert breytt og þá muni jafnvel nú-
verandi stjórnvöld hér á landi
treysta sér til að útskýra fyrir
þeim málstað Íslands.
Össur
Skarphéðinsson
Engin ástæða til að örvænta
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 3 heiðskírt Lúxemborg -2 þoka Algarve 14 skúrir
Bolungarvík -2 heiðskírt Brussel 0 skýjað Madríd 1 súld
Akureyri -5 heiðskírt Dublin 3 skúrir Barcelona 9 léttskýjað
Egilsstaðir 1 slydda Glasgow 3 skýjað Mallorca 12 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 3 skýjað London 1 skýjað Róm 8 léttskýjað
Nuuk 0 skýjað París 0 skýjað Aþena 12 léttskýjað
Þórshöfn 6 skýjað Amsterdam -2 heiðskírt Winnipeg -9 alskýjað
Ósló -10 heiðskírt Hamborg -3 skýjað Montreal -9 snjókoma
Kaupmannahöfn 0 snjókoma Berlín -3 þoka New York -1 skýjað
Stokkhólmur -8 þoka Vín -3 þoka Chicago -3 alskýjað
Helsinki -3 þoka Moskva -14 heiðskírt Orlando 9 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
13. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 1.37 0,1 7.51 4,5 14.12 0,1 20.18 4,0 10:59 16:14
ÍSAFJÖRÐUR 3.43 0,1 9.44 2,4 16.22 0,0 22.17 2,0 11:33 15:51
SIGLUFJÖRÐUR 0.12 1,2 5.53 0,1 12.14 1,4 18.37 -0,1 11:17 15:33
DJÚPIVOGUR 5.06 2,3 11.22 0,2 17.17 1,9 23.27 -0,1 10:36 15:37
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á fimmtudag
Suðaustan 8-13 m/s og rigning
S- og SA-lands, en annars skýj-
að með köflum og þurrt að
kalla. Hiti 1 til 7 stig, en kring-
um frostmark fyrir norðan.
Á föstudag
Suðaustan 5-10 m/s og rign-
ing, en lengst af þurrt á N- og
A-landi. Hiti breytist lítið.
Á laugardag
Útlit fyrir stífa suðaustlæga átt
með rigningu í flestum lands-
hlutum, mest úrkoma suðaust-
anlands. Hiti víða 3 til 9 stig.
Á sunnudag og mánudag
Suðlægar áttir og úrkomusamt,
en þurrt að mestu á NA-landi.
Kólnar heldur í veðri.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Hvessir smám saman, suð-
austan 10-18 síðdegis, hvassast
með suðvesturströndinni og
bætir í úrkomu. Hiti 0 til 5 stig
S-lands og við A-ströndina, en
um eða undir frostmarki ann-
ars staðar.
ÞRETTÁN bjóða sig fram í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins á Ak-
ureyri fyrir komandi sveit-
arstjórnarkosningar sem fer
fram laugardaginn 13. febrúar
nk.
Sigrún Björk Jakobsdóttir,
fyrrverandi bæjarstjóri og Elín
Margrét Hallgrímsdóttir bæj-
arfulltrúi eru í þeirra hópi.
Frambjóðendur eru: Anna
Guðný Guðmundsdóttir, iðjuþjálfi
og háskólanemi, Björn Ingimars-
son hagfræðingur, Elín Margrét
Hallgrímsdóttir, símennt-
unarstjóri og bæjarfulltrúi, Huld
S. Ringsted verslunarrekandi,
Kolbrún Sigurgeirsdóttir grunn-
skólakennari, Kristinn Frímann
Árnason bústjóri, Njáll Trausti
Friðbertsson, flugumferðarstjóri
og viðskiptafræðingur, Ólafur
Jónsson héraðsdýralæknir, Ragn-
ar Sigurðsson, laganemi og for-
maður Félags stúdenta við Há-
skólann á Akureyri, Sigrún Björk
Jakobsdóttir bæjarfulltrúi, Sig-
urður Guðmundsson versl-
unarmaður, Svavar Hannesson
vátryggingaráðgjafi og
Unnsteinn Jónsson verksmiðju-
stjóri.
Þrettán gefa kost á sér á Akureyri
„ÞAU voru með
mjög málefnaleg
rök sem mér
finnst eðlilegt að
taka tillit til og
skoða,“ segir Ás-
gerður Halldórs-
dóttir, bæj-
arstjóri
Seltjarnarness,
en hún átti í
fyrrakvöld fund
með formönnum foreldrafélaga í
leikskólum bæjarfélagsins.
Töluverð óánægja hefur ríkt með
hækkanir á gjaldskrá bæjarins hvað
viðkemur dagvistar- og leikskóla-
gjöldum. Ásgerður hefur nú óskað
eftir tækifæri til að kynna sjónarmið
foreldrafélaganna fyrir bæj-
arfulltrúum áður en hún fundar aft-
ur með foreldrum. Hún segir ekki
útilokað að breytingar verði gerðar í
ljósi athugasemdanna, en hins vegar
sé svigrúm til hækkunar á gjald-
skrá.
„Við stóðum frammi fyrir því
núna við fjárhagsáætlanagerð fyrir
2010 að ná endum saman. Það var
búið að taka hér ákvörðun um að við
ætluðum ekki að hækka útsvar og
við höfum ekki hækkað gjaldskrá
síðan 2002.“ Gjaldskráin á leik-
skólum Seltjarnarness hækkaði um
7,5% en fæðiskostnaður var hækk-
aður meira til að standa undir að-
fangakaupum, að sögn Ásgerðar.
„Systkinaafsláttur var færður aftur
til ársins 2006 og formenn foreldra-
félaganna bentu á að það kæmi nið-
ur á barnafjölskyldum og mér finnst
eðlilegt að það sé skoðað. Þess
vegna munum við hitta þau aftur á
fimmtudag.“ una@mbl.is
Athugasemdir for-
eldra til skoðunar
Ásgerður
Halldórsdóttir
www.noatun.is
LAXAFLÖK
BEINHREINSUÐ
KR./KG
1498
Nóatún
ferskir
í fiski
1798
F
ÚRFISKBOR
ÐI
ÚR
FISKBORÐI
ERSKIR
Í FISKI