Morgunblaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 18
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2010 ÞAU rök hafa komið fram að inni- stæðueigendur í erlendum útibúum íslenskra banka hafi verið beittir mismunun sem eigi að leiða til greiðsluskyldu. Þetta teljum við ekki rétt og er sú skoðun okkar byggð á eftirfarandi atvikum og sjón- armiðum: Fólst mismunun í forgangsrétti innistæðueigenda innan „gömlu“ bankanna? Með 6. gr. laga nr. 125/2008 (neyð- arlögin) var kveðið á um að við skipti á búi fjármálafyrirtækis skyldu kröfur vegna innstæðna samkvæmt lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta njóta rétthæðar samkvæmt 1. mgr. 112. gr. gjaldþrotalaga. Þetta þýðir að kröfur innstæðu- eigenda í fjármálafyrirtækjum fá forgang og verða greiddar áður en kemur til greiðslu á kröfum al- mennra lánadrottna úr búum þeirra. Umræddar reglur um forgang hafa almennt gildi þannig að þær gilda jafnt fyrir innistæðueigendur hér á landi og í útibúum erlendis. Ákvæðið felur því ekki í sér mis- munun gagnvart erlendum inn- stæðueigendum því að þeir sitja við sama borð og þeir íslensku sé tekið mið af réttarstöðunni innan ,,gömlu bankanna“. Fólst mismunun í stjórnsýslu- ákvörðuninni um yfirtöku banka? Með 3. mgr. 1. gr. neyðarlaganna var gert ráð fyrir því í að ríkið geti stofnað „hlutafélag“ til að taka við rekstri fjármálafyrirtækis. Sam- kvæmt þessari heimild tók íslenska ríkið yfir Glitni banka hf., Kaupþing banka hf. og Landsbanka Íslands hf. að öllu leyti á haustdögum 2008, samkvæmt ákvörðun Fjármálaeft- irlitsins. Með stjórnsýsluákvörðun Fjár- málaeftirlitsins var „innlend banka- starfsemi“ tekin út úr gömlu bönk- unum og stofnað um þau hlutafélög í opinberri eigu. Þar með fylgdu inni- stæður í bönkum hér á landi hvort sem þær tilheyrðu innlendum eða erlendum aðilum. Hér er um að ræða hlutafélög sem njóta ekki rík- isábyrgðar að neinu leyti. Fullt verð verður greitt fyrir þann hluta, sem tekinn var, þannig að nettóandvirði rennur inn í bú gömlu bankanna og kemur þar til úthlutunar með venju- legum hætti. Gera verður ráð fyrir því að inni- stæðueigendurnir í „nýju bönk- unum“ séu einkum persónur eða fyr- irtæki sem eiga heimili og stunda vinnu eða hafa starfsemi hér á landi. Það er forsenda fyrir tilvist hvers fullvalda ríkis að til séu bankastofn- anir sem eru tengdar ríkinu traust- um böndum og hafa það hlutverk að geyma, ávaxta og miðla peningum til verkefna innanlands. Fullvalda ríki verður tæpast byggt og rekið á ann- arri forsendu. Spyrja má hvort innistæðueigend- ur íslenskra bankaútibúa erlendis hafi með umræddri aðgerð verið beittir mismunun miðað við eig- endur innistæðna sömu banka hér á landi. Þess er þá fyrst að geta að ríki eru sjálfstæðir aðilar bæði að EES og ESB rétti og mynda raunar grund- völl eða stoðir samninganna um þau. Þannig er réttur og tilvist þjóðríkja sérstaklega varinn í samningunum um ESB og EES- samningurinn telst samningur milli sjálfstæðra ríkja og ESB. Sú grundvallarregla gildir að þær stofnanir sem starfa eftir samningunum um ESB eða EES geta ekki tekið sé neitt vald sem ekki er veitt þeim í samning- unum. Samkvæmt Maastrichtsamn- ingnum ber ESB að virða einkenni og stjórnkerfi aðildarríkjanna enda er þar gert ráð fyrir tilvist aðild- arríkjanna með margvíslegum hætti. Þessi sjónarmið eiga auðvitað enn frekar við um EFTA/EES ríki sem hafa ekki tekið þátt í þeim sam- runa sem ESB stefnir að. Af því leið- ir svo aftur að heimilt er og lögmætt að taka tillit til sjónarmiða sem varða brýna efnahagslega hagsmuni eins aðildarríkis án þess að taka tillit til efnahags annars aðildarríkis þar sem slík sjónarmið eiga ekki við að sama skapi. Það er því ljóst að hvert ríki hefur víðtækan rétt til að verja tilverurétt sinn hvort sem miðað er við samningana um ESB eða EES. Niðurstaðan af þessum hugleið- ingum er sú að fyrrgreindar aðgerð- ir stjórnvalda voru taldar nauðsyn- legar til að verja og viðhalda bankakerfi innanlands. Slíkt hefði ekki verið unnt að gera með því að tryggja innistæðueigendum í erlend- um útibúum sömu meðferð. Þeir sem þar áttu innistæður eru ekki í neinum sambærilegum hagsmuna- tengslum við Ísland og þeir sem eiga innistæður hér á landi. Verulegar líkur eru á því að innstæðueigendur erlendis hefðu einfaldlega tekið út allar innistæður sínar ef reglurnar hefðu verið látnar ná til þeirra og þar með gert innlenda banka- starfsemi að engu. Auðvitað er ekki hægt að ætlast til þess eigendur innistæðna erlendis hefðu leyst út ís- lenskar krónur og notað hér á landi með sama hætti og þeir sem áttu innistæður hérlendis. Meginatriðið er að innistæðu- eigendur útibúa t.d. í Bretlandi og Hollandi eru ekki tengdir íslenskum hagsmunum með sama hætti og menn og fyrirtæki með heimili hér á landi, t.d. með hliðsjón af fjár- festingum, félagslegri aðstoð, sköttum og fleiri atriðum. Af þessu má ráða að innistæðueigendur í erlendum útibúum íslenskra banka voru í annarri stöðu heldur en þeir sem áttu inn- eignir í sömu bönkum hér á landi. Réttarstaða þeirra var með öðrum orðum ekki sambærileg. Af því leiðir að ekki var um mis- munun að ræða við fyrrgreinda að- gerð. Þessu til viðbótar er rétt að koma því á framfæri að það er vel þekkt í Evrópurétti að ráðstafanir sem kunna að fela í sér mismunun en eru engu að síður óhjákvæmilegar vegna þjóðfélagsþarfa í almannaþágu fá staðist. Má nefna marga dóma dóm- stóls ESB því til sönnunar. Enginn vafi er á því að verði talið að efna- hagslegt hrun hafi blasað við hér á landi nægir það til að réttlæta frávik frá umræddri meginreglu. Skilyrðin fyrir frávikunum eru þó ávallt þau að gætt sé meðalhófs. Er erfitt að sjá að vægari kostur hafi verið í stöðunni. Þess ber einnig að gæta að samkvæmt dómafordæmum dómstóls EB hafa aðildarríkin sjálf talsvert mat um það hvort fyrr- greindum skilyrðum hafi verið full- nægt enda tæpast á færi dómstóls að meta aðgerðir til að koma í veg fyrir efnahagshrun heillar þjóðar. Fólst mismunun í yfirlýsingu stjórnvalda um ábyrgð ríkisins á greiðslu til innstæðueigenda? Forsætisráðherra gaf þá yfirlýs- ingu seint á árinu 2008 að íslenska ríkið myndi tryggja innlánseig- endum hér á landi fjárhæðir þeirra á innistæðureikningum. Yfirlýsingin mun hafa verið sett fram umfram skyldur íslenska ríkisins og vænt- anlega í þeim tilgangi að tryggja að unnt væri að starfrækja innlenda innlánastarfsemi í framtíðinni, reyna að viðhalda sparnaðarvilja al- mennings, tryggja efnahagslegan stöðugleika og koma í veg fyrir efna- hagslegt hrun. Þrátt fyrir þetta er hér aðalatriðið að yfirlýsing ráðherra af þessu tagi er óskuldbindandi því henni var aldrei fylgt eftir með lögum (hún krefst samþykkis í fjárlögum, fjár- aukalögum eða venjulegum lögum) né kom hún til framkvæmda á einn eða neinn hátt. Þvert á móti verða innistæðueigendur í „nýju bönk- unum“ að sætta sig við að bankarnir eru reknir í formi hlutafélaga og ábyrgðin í aðalatriðum takmörkuð við gjaldþol þeirra félaga. Af þessum sökum fellur umrædd yfirlýsing stjórnvalda hvorki undir 4. gr. EES- samningsins né önnur ákvæði hans um fjórfrelsið. Í fyrri skrifum okkar höfum við einnig talið að yfirlýsingar af þessu tagi féllu ekki undir gildissvið nefndra 4. gr. Verður sú umræða ekki endurtekin. Niðurstaða Af framangreindu má vera ljóst að þau sjónarmið, sem fram hafa kom- ið, um að „mismunun“ íslenskra stjórnvalda gagnvart eigendum inni- stæðna í útibúum íslensku bankanna erlendis hafi skapað greiðsluskyldu, fá ekki staðist. Gildir þetta hvort sem horft er til neyðarlaganna, stjórnvaldsákvarðana í tengslum við endurreisn bankakerfisins eða yf- irlýsingar ráðherra um ríkisábyrgð á innistæðum. Um mismunun á grundvelli þjóðernis Eftir Lárus L. Blöndal og Stefán Má Stefánsson Önnur grein af fjórum » Af þessu má ráða að innistæðueigendur í erlendum útibúum ís- lenskra banka voru í annarri stöðu heldur en þeir sem áttu inneignir í sömu bönkum hér á landi. Réttarstaða þeirra var með öðrum orðum ekki sambæri- leg. Lárus L. Blöndal Lárus L. Blöndal er hæstaréttar- lögmaður. Stefán Már Stefánsson er prófessor. Lagarök um Icesave Stefán Már Stefánsson Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík– meira fyrir áskrifendur Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16.00 mánudaginn 25. janúar. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Hvönn í síma 569-1134/692-1010 og sigridurh@mbl.is Netið skipar æ stærri sess í viðskiptalíf- inu. Ísland er fremst í flokki þjóða þegar kemur að netnotkun og ljóst að íslenskt atvinnulíf stendur vel að vígi til að grípa þau mörgu tækifæri sem internetið býður upp á. Viðskiptablað Morgunblaðsins kryfur möguleika netsins í veglegu sérblaði. Skoðuð verða spennandi sprotafyrirtæki, staðan tekin á verslun og þjónustu á netinu og rýnt í hvernig ná má því besta út úr vefnum. Meðal efnis verður: Hvar liggja sóknarfærin? Hverjir eru möguleikar netverslunar á Íslandi? Er sama hvernig vefsíður eru hannaðar? Er fyrirtæki þitt að nota netið rétt? Þetta og margt fleira í blaðauka Viðskiptablaðsins 28. janúar. Framtíðin er á netinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.