Morgunblaðið - 13.01.2010, Side 19
Umræðan 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2010
Í OPNU bréfi til
alþingismanna, sem
birtist í Morg-
unblaðinu 15. júlí
2009, skoraði ég á al-
þingismenn að segja
nei við Icesave og
hafna frumvarpi því
sem þá lá fyrir Al-
þingi um það efni.
Þetta gerði ég vegna
sannfæringar minnar
um að illa hefði verið staðið að
samningunum af okkar hálfu og að
hann væri bæði ósanngjarn og
rangur. Það mátti öllum vera ljóst
að þar fóru viðsemjendur okkar
fram með miklu offorsi og yfir-
gangi í krafti stærðar sinnar. Ég
sagði þá og segi enn að þessar
þjóðir koma fram við okkur eins
og við séum vanmáttug nýlendu-
þjóð þeirra. Þessa framkomu á
ekki að líða og ber að stöðva.
Allt frá 8. október 2008 er Bret-
ar beittu hryðjuverkalögunum á
Landsbanka Íslands og gerðu í
raun efnahagslega hryðjuverka-
árás á Íslendinga hef-
ur mikillar hræðslu
og ringulreiðar gætt
meðal landsmanna.
Verst hefur mér þótt
að þessi mikli ótti og
oft vonleysi hefur
einnig gætt meðal
margra ráðherra,
stjórnarþingmanna og
ráðgjafa þeirra sem
þjóðin hefur þurft að
leggja allt sitt hald og
traust á.
Margir af okkar
færustu lögfræðingum og aðrir
hafa unnið mikið og óeigingjarnt
starf við að greina réttarstöðu
okkar og benda á hverjar laga-
legar skyldur okkar séu. Svo virð-
ist sem lengi vel hafi þeir talað
fyrir daufum eyrum, enda er það
gömul sannindi og ný að enginn er
spámaður í sínu föðurlandi. Sem
betur fer virðist sem friðsamleg
mótmæli um 60 þúsund Íslendinga
og aðgerðir forseta Íslands með
synjun staðfestingar á Icesave
lögunum hafi vakið umheiminn til
vitundar um það mikla óréttlæti
sem við höfum verið beitt af við-
semjendum okkar og í raun valdið
straumhvörfum í þessu máli.
Því blöskraði mér uppgjöfin og
vonleysið sem lesa mátti úr bréfi
því sem forsætisráðherra sendi
forseta Íslands áður en hann synj-
aði Icesave-lögunum. Að lýsa
áhyggjum sínum er eitt en að
gera slíkar hugleiðingar opinberar
sýnir dómgreindarleysi og veikir
bara samningsstöðu okkar. Vera
kann að slíkar bréfaskriftir hafi
haft þann eina tilgang að draga
þrótt úr landsmönnum vegna
væntanlegrar þjóðar-
atkvæðagreiðslu eða að forsætis-
ráðherra hafi fyrst og fremst ver-
ið að hugsa um afleiðingar slíkrar
synjunar á viðræður Íslands um
aðild að ESB. Ríkisstjórn Íslands
verður að taka sér tak og svara
Bretum og Hollendingum af fullri
hörku. Ríkisstjórnin verður að
hafa forustu í þessu máli til að
hægt sé að lenda því gagnvart
viðsemjendum sínum. Hún verður
að laga vígstöðu sína og sýna fulla
samstöðu útávið. Í grein minni
síðastliðið sumar lýsti ég þeirri
skoðun minni að þetta væri svo
mikið hagsmunamál fyrir okkur
Íslendinga að málið væri hafið yf-
ir alla flokkspólitík og þingmönn-
um bæri að verja hagsmuni okkar
sem einn maður óháð fyrri yfirlýs-
ingum. Því er það lofsvert ef sam-
staða næst um þetta mál á Al-
þingi. Það breytir því ekki að
ríkisstjórnin verður að taka af
skarið og fella Icesave lögin úr
gildi og senda þannig Bretum og
Hollendingum skýr skilaboð. Það
þýðir ekkert að fást um það þó
mikill tími og fyrirhöfn hafi verið
eitt í samningaviðræður við and-
stæðinga okkar. Kannski var það
það eina sem við gátum gert í
stöðunni þegar við ofurefli var að
etja.
Það má öllum vera ljóst að um-
ræðan erlendis er að snúast okkur
í hag. Ríkisstjórninni ber að nýta
sér þann meðbyr og fara með
þetta mál aftur á byrjunarreit.
Hún á að fara fram á það við við-
semjendur sína að látið verði
reyna á lög nr. 98/1999 um inni-
stæðutryggingar og tryggingar-
kerfi fyrir fjárfesta. Ríkisstjórnin
þarf að gera viðsemjendum sínum
og umheiminum það ljóst að Ís-
lendingar munu standa við skuld-
bindingar sínar, en það er ekki
það sama og ganga að órétt-
mætum kröfum og kúgunum and-
stæðinga sinna sem mun hneppa
þjóðina í skuldafangelsi um ókom-
in ár.
Icesave á byrjunarreit
Eftir Eggert Árna
Gíslason »…ríkisstjórnin verð-
ur að taka af skarið
og fella Icesave lögin úr
gildi og senda þannig
Bretum og Hollend-
ingum skýr skilaboð.
Eggert Árni Gíslason
Höfundur er atvinnurekandi.
MORGUNBLAÐIÐ hefur
tekið upp nýtt fyrirkomulag við
afgreiðslu greina frá frambjóð-
endum í
prófkjörum
sem fram-
undan eru.
Svo efn-
inu verði
sem best
fyrir komið
og til að
liðka fyrir
birtingu
þess fer Morgunblaðið þess á
leit að frambjóðendur stytti
mál sitt þannig að hver grein
verði ekki lengri en 2.000 tölvu-
slög með bilum.
Samhliða birtingu greina í
blaðinu verður boðið upp á birt-
ingu greina í ótakmarkaðri
lengd á kosningavef mbl.is.
Greinar til stuðnings frambjóð-
endum verða aðeins birtar á
kosningavef mbl.is.
Hægt er að fara á kosn-
ingavefinn beint af forsíðu
mbl.is og verða þar ferskar
upplýsingar og fréttir af því
sem hæst ber vegna komandi
kosninga.
Meira: mbl.is/kosningar
Framboðs-
greinar í
prófkjörum
GÓÐ þátttaka var í áramóta-
getraun Morgunblaðsins að vanda
og bárust flest svör við barnaget-
rauninni. Gefnir voru upp fjórir
svarmöguleikar með hverri spurn-
ingu; a), b), c) og d) og hér koma
bókstafirnir með réttu svörunum
fyrir hverja spurningu.
Fullorðinsgetraun
1. c 2. d 3. b
4. a 5. d 6. c
7. b 8. b 9. c
10. a 11. b 12. d
13. d 14. b 15. c
16. a 17. a 18. a
19. d 20. b 21. d
22. b 23. a 24. a
25. c 26. c 27. a
28. c 29. b 30. b
31. b 32. d 33. b
34. c 35. ógild 36. b
37. c 38. c 39. d
40. a 41. d 42. b
43. a
Unglingagetraun
1. a 2. b 3. a
4. c 5. c 6. a
7. d 8. b 9. d
10. d 11. a 12. a
13. b 14. a 15. a
16. c 17. c 18. d
19. c 20. b 21. d
22. c 23. c 24. c
25. b 26. b 27. d
28. a 29. a 30. d
31. b 32. b 33. d
34. b 35. a 36. d
37. b 38. c 39. b
41. c
Barnagetraun
1. d 2. d 3. a
4. b 5. a 6. c
7. d 8. b 9. b
10. c 11. a 12. c
13. d 14. b 15. a
Verðlaunahafar
Einn þátttakandi svaraði öllu
rétt í fullorðinsgetrauninni. Þor-
steinn Barðason, Sóltúni 30, 105
Reykjavík, hlýtur bókina Harmur
englanna eftir Jón Kalman Stef-
ánsson. Fimm voru með eitt rangt
svar og var dregið úr þeim. Rósa
Björg Jónsdóttir, Öldugranda 7,
107 Reykjavík, hlýtur bókina
Karlsvagninn eftir Kristínu Marju
Baldursdóttur. Svala Sigurð-
ardóttir, Háaleitisbraut 97, 108
Reykjavík, hlýtur bókina Svörtu-
loft eftir Arnald Indriðason.
Aðeins einn þátttakandi hafði
allar spurningarnar réttar í ung-
lingagetrauninni, Margrét Jó-
hannsdóttir, 14 ára, Stekkjarflöt
25, 210 Garðabæ og hlýtur hún
bókina Þvílík vika eftir Guðmund
Brynjólfsson. Sex voru með eitt
rangt svar og úr þeim drógust Ei-
ríkur Eiríksson, 13 ára, Fram-
nesvegi 55, 101 Reykjavík, og Ing-
heiður Brá Mánadóttir, 15 ára,
Valdasteinsstöðum, 500 Stað. Ei-
ríkur hlýtur bókina Þjófadreng-
urinn Lee Raven eftir Zizou Cord-
er og Ingheiður bókina Nýtt tungl
eftir Stephenie Meyer.
Fjölmargir þátttakendur höfðu
öll svörin rétt í barnagetrauninni.
Jökull Ársælsson, 10 ára, Háaleit-
isbraut 97, 110 Reykjavík, hlýtur
bókina Bókasafn ömmu Huldar
eftir Þórarin Leifsson. Júlíana
Karitas, 6 ára, Stekkjarflöt 25, 210
Garðabæ, hlýtur bókina Mjall-
hvítur eftir Önnu Ingólfsdóttur.
Viktor Snær Sigurðsson, 10 ára,
Jóruseli 18, 109 Reykjavík, hlýtur
Aþenu (ekki höfuðborgin í Grikk-
landi) eftir Margréti Örnólfs-
dóttur.
Ein mistök voru gerð við samn-
ingu spurninganna. Í 35. spurn-
ingu í fullorðinsgetrauninni var
spurt hver væri stjórnarformaður
Haga. Rétt svar við spurningunni
er Jóhannes Jónsson, en nafn hans
var ekki á meðal möguleikanna.
Þessi spurning telst því ógild.
Verðlaunahafar geta vitjað bóka
sinna í afgreiðslu Morgunblaðsins í
Hádegismóum 2 eða haft samband
með óskum um að fá þær sendar í
pósti.
Svör við áramóta-
getraunum
Morgunblaðið/Golli
WWW.OPERA.IS MIDASALA@OPERA.IS S. 511 4200
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR!
FÖSTUDAGINN 15. OG LAUGARDAGINN 23. JANÚAR
Fimm stjörnu sýning – „Sigur í Óperunni“ – JVJ, DV
„…Söng- og leiktúlkun ofan af sviði færðist í æðra veldi.“ – RÖP, Mbl.
„Ótrúlega gaman – Hvílíkir söngvarar og túlkendur“ – SA, tmm.is
„Skemmtileg kvöldstund“ – PBB, Fbl.
„Hrífandi og bragðgóður drykkur“ – PÁÁ, eyjan.is