Morgunblaðið - 13.01.2010, Side 26

Morgunblaðið - 13.01.2010, Side 26
26 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2010 Hver þekkir fjölskylduna? ÉG vona að einhver geti hjálpað mér að þekkja fjölskylduna á þessari mynd, sem er líklega tekin í Vest- mannaeyjum. Þeir sem geta gefið mér einhverjar upplýs- ingar eru vinsamlega beðnir að hringja í síma 5617293 Með góðu þakklæti. Markús Hjálmarsson Skógarbæ, Reykjavík. Selásbúar ÞAÐ er grátlegt að ganga um hverfið og sjá allan sóðaskapinn eftir áramótaskoteldana, jafnvel á leiksvæðum barna og í sandkössum. hefur fólk skilið eftir sig sóðaskapinn, svo eru víða jólatré á göngustígum, enda þótt fólk viti að borgin lætur ekki hirða þau í ár. Ágætu Selásbúar, vaknið af dvalanum. Farið nú að þrífa, núna strax Selásbúi með metnað. Ást er… … að kikna í hnjánum þegar hann býður þér í dans. Velvakandi Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, vinnu- stofa kl. 9-16.30, postulín kl. 9, Granda- bíó, útskurður og postulín kl. 13. Skrán. í leikhús 23. jan. og á þorrablót 22. jan. Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa- vinna/smíði/útskurður kl. 9-16.30, heilsugæsla kl. 10, söngstund kl. 11. Bólstaðarhlíð 43 | Spilað, glerlist, handavinna, böðun. Þorrablót 29. jan. Breiðholtskirkja | Samvera kl. 13.30. Anna Sigurkarlsdóttir fjallar um bókina „Öll þau klukknaköll“. Bústaðakirkja | Samvera kl. 13-16.30, handavinna, spil, spjall. Dalbraut 18-20 | Vinnustofa kl. 9-16, leikfimi kl. 10, verslunarferð kl. 14.40. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8-16, vefnaður kl. 9-16, leikfimi kl. 11. Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði kl. 10, dans kl. 14, álfadans í kaffihléi. Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl. 9.30 og 10.30, glerlist kl. 9.30, leiðb. í handav. til kl. 17, félagsvist kl. 13, við- talst. FEBK kl. 15, bobb kl. 16.30, línu- dans kl. 18 og samkvæmisd. kl. 19. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist kl. 9, ganga kl. 10, leikfimi kl. 12.45, postulín og kvennabrids kl. 13, Sturlunga kl. 16, Arngrímur Ísberg les. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi í Sjálandi kl. 8 og 9 og kvennaleikfimi kl. 9.45, 10.30 og 11.15, brids og bútasaumur í Jónshúsi kl. 13. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl. 9-16.30, handavinna/tréútskurður, kl. 9.50 vatnsleikfimi, leikfimi kl. 10.30, spilasalur opinn frá hád., leiðsögn í myndlist fellur niður á morgun. Grensáskirkja | Samverustund kl. 14. Háteigskirkja | Brids í Setrinu kl. 13, hist upp úr kl. 10 í kaffi, bænaguðsþjón- usta kl. 11, brids kl. 13. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, út- skurður, matur og kaffi. Hraunsel | Rabb kl. 9, pútt/bókmennta/ sögu-klúbbur kl. 10, línudans kl. 11, handav., glerbræðsla og tréútsk. kl. 13, bingó kl. 13.30, Gaflarakórinn kl. 16.15, biljard kl. 9-16.30. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30 og 10.30, vinnustofa opnar kl. 9, sam- verustund kl. 10.30, lestur nýrrar bókar. Böðun fyrir hádegi. Hæðargarður 31 | Við hringborðið kl. 8.50, Stefánsganga kl. 9, listasmiðjan; postulínsm./handverk, framsögn kl. 9- 16, tölvuleiðb. kl. 13, hláturhópur kl. 13, gáfumannakaffi kl. 15. Myndlistarsýn. Geirharðs Þorsteinssonar 9-16. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Kópa- vogssk. kl. 15.30. Uppl. í 564-1490 og á www.glod.is Korpúlfar Grafarvogi | Pútt á morgun á Korpúlfsst. kl. 10 og listasmiðjan kl. 13, gleriðnað og tréútskurð. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr- unarfræðingur kl. 10.30, iðjustofa - nám- skeið í glermálun kl. 13, handverksstofa/ myndlistarnámsk. kl. 13. Leshópur FEBK Gullsmára | Arngrímur Ísberg les Sturlunga sögu í Gullsmára og flytur texta og söguskíringar kl. 16. Neskirkja | Opið hús kl. 15, Bjargey Ing- ólfsdóttir iðjuþjálfari og hönnuður ræðir um afrakstur hugmynda sinna. Norðurbrún 1 | Útskurður kl. 9-12, fé- lagsvist kl. 14. Vesturgata 7 | Sund kl. 10, mynd- mennt/postulínsm. kl. 9-16, Bónus kl. 12.10, tréskurður kl. 13. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, handavinna og bókband kl. 9, morg- unstund kl. 10, verslunarferð kl. 12.20, framh.saga kl. 12.30, dans kl. 14. Þorra- blót 29. jan. kl. 18. Skrán. í s. 411-9450. Jón Ingvar Jónsson veltir fyrirsér dómstólaleiðinni í Icesave- málinu, sem gæti falist í því að Bret- ar og Hollendingar höfðuðu mál gegn innstæðutryggingasjóði fyrir íslenskum dómstólum. Hann yrkir: Að aukast muni okkar sæmd eru talsvert miklar líkur verði hennar hátign dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur. Konráð Erlendsson bætir við: Óbilgirni Englendinga er alveg skýr og höfðingsskapur Hollendinga heldur rýr. Stefán Vilhjálmsson er í öðrum hugleiðingum fyrir norðan: Bleikur roði bólstrum á, bjarma skarta fjöllin há, dagsins boða dýrðir má, drullusmart er út að sjá! Nafn séra Hjálmars Jónssonar datt út við birtingu limru um það, er Ólafur G. Einarsson var gerður að heiðursborgara: Útnefndur ungur til valda, Ólafi rétt var að tjalda. Garðabæ hefur sá heiðraði refur stjórnað frá örófi alda. Són, 7. heftir tímaritsins um óð- fræði, er komið út. Þar má finna ljóð Hólmfríðar Bjartmarsdóttur um vorið: Lifandi er skógurinn að laufga sig á ný. Látlaus streyma skýin yfir tindinn. Lifandi er vatnið og leikurinn í því og léttar dansa starirnar við vindinn. Vísnahorn pebl@mbl.is Af drottningu og dýrðum Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand JÓN! ÞÚ MÁTT EKKI SKILJA ÞETTA EFTIR Á BORÐINU! ÉG GÆTI FENGIÐ MÉR EINN ENGAR ÁHYGGJUR. ÉG SKAL VERNDA ÞIG ÉG ER HRÆDD VIÐ LEIKSKÓLANNSÁLFRÆÐI-AÐSTOÐ ÉG VEIT EKKI AF HVERJU! ÉG FINN ENGA ÁSTÆÐU... ÉG ER BARA HRÆDD... ÉG HUGSA EKKI UM ANNAÐ... ÉG ER MJÖG HRÆDD... ÞÚ ERT ALVEG EINS OG ALLIR AÐRIR... FIMM KRÓNUR, TAKK EKKI VERA SVONA ÓÞOLINMÓÐUR, SONUR SÆLL RÓM VAR EKKI BYGGÐ Á EINUM DEGI EN ÉG VIL EKKI VERÐA IÐNAÐARMAÐUR, PABBI ÉG VIL VERÐA TANNLÆKNIR ÉG GEFST UPP! HVAÐ GET ÉG KALLAÐ HANN ÁN ÞESS AÐ VERA MÓÐGANDI? ÉG ER STOLT AF YKKUR. ÞIÐ FUNDUÐ BÆÐI EITTHVAÐ VERÐMÆTT OG SKILUÐUÐ ÞVÍ ÞIÐ ÆTTUÐ AÐ VERASTOLT AF YKKUR. ÞIÐ BREYTTUÐ RÉTT SKIPTIR MÁLI AÐ VIÐ VILDUM EKKI GERA ÞAÐ? MAÐUR GETUR ALLTAF BÆTT SIG ÉG ER BÚINN AÐ FÁ NÓG AF VULTURE. ÉG ÆTLA AÐ HORFA AÐEINS Á SJÓNVARPIÐ ANSANS KANNSKI ÆTTIR ÞÚ BARA AÐ LESA BÓK ...OG FÓLK VELTIR ÞVÍ FYRIR SÉR... HVORT KÓNGULÓAR- MAÐURINN SÉ HRÆDDUR VIÐ AÐ TAKAST Á VIÐ VULTURE Félagsstarfeldriborgara

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.