Morgunblaðið - 13.01.2010, Qupperneq 32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2010
„BJARNFREÐARSON KOM MÉR EKKI LÍTIÐ
Á ÓVART. MÉR FANNST HÚN GEGGJUÐ!“
KVIKMYNDIR.IS-T.V.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
FRÁ RAGNARI BRAGASYNI KEMUR EIN BESTA GAMANMYND ÁRSINS!
GEORG, ÓLAFUR RAGNAR OG DANÍEL ERU KOMNIR Í BÍÓ!
FRÁBÆR MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
BJARNFREÐARSON
HHHH
MEINFYNDIN...
– FRÉTTABLAÐIÐ/
BERGSTEINN SIGURÐSSON
HHHH
ÞAÐ VAR LAGIÐ!
– DV/DÓRI DNA
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG (AÐRA VIKUNA Í RÖÐ)
YFIR 52.000 MANNS
Á 12 DÖGUM
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
ELLEN PAGE úr
JUNO er stórkostleg
í þessari frábæru
mynd
Vertu þín eigin hetja
HHHH
“ELLEN PAGE ER STÓRKOSTLEG”
- NEW YORK DAILY NEWS
HHH
“MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ”
- ROGER EBERT
/ KRINGLUNNI
DER ROSENKAVALIER Ópera endurflutt - UPPSELT kl. 5:30 L
BJARNFREÐARSON kl. 5:40 - 8 - 10:20 L
WHIP IT kl. 8 - 10:20 10
PRINSESSAN OG FROSKURINN m. ensku tali kl. 6 L
/ ÁLFABAKKA
WHIPIT kl.5:30-8-10:30 10 OLDDOGS kl. 6 L
BJARNFREÐARSON kl.5:40-6:20-8-9-10:20 L SORORITYROW kl. 8 - 10:20 16
BJARNFREÐARSON kl. 5:40 - 8 - 10:20 VIP NINJAASSASSIN kl. 10:30 16
PRINSESSANOGFROSKURINN m.ísl.tali kl.5:50 L THETWILIGHT2NEWMOON kl. 8 12
Nikulás litli (Le Petit Nicolas)
Leikstjórn: Laurent Tirard
Aðalhlutverk: Maxime Godart, Valérie Lemercier, Kad
Merad.
Gamanmynd fyrir alla fjölskylduna. Myndin er
byggð á samnefndri persónu sem Sempé og Gosc-
inny, höfundur Astérix, bjuggu til. Nikulás litli
lifir friðsömu lífi. Hann á foreldra sem þykir vænt
um hann og hóp af góðum vinum til að leika sér
við. Hann vill engu breyta. Dag einn heyrir hann
óvart á tal foreldra sinna og skilst að móðir hans
eigi von á barni. Hann fyllist ofsahræðslu og
ímyndar sér hið versta. Brátt eignast hann lítinn
bróður og foreldrar hans verða svo uppteknir af
nýja barninu að þau hafa ekki lengur tíma fyrir
Nikulás og skilja hann á endanum eftir aleinan
úti í skógi, alveg eins og Tuma þumal...
Góð lögga, vond lögga (Bon Cop, Bad Cop)
Leikstjóri: Erik Canuel
Aðalhlutverk: Patrick Huard, Colm Feore, Lucie Lau-
rier.
Lögreglumynd í léttum dúr, þar sem gert er
stólpagrín að hinni fransk-ensku Kanada. Kosin
besta myndin í Kanada árið 2006. David Bouch-
ard og Martin Ward eru eins ólíkir og hugsast
getur. Annar er frönskumælandi og frá Montréal,
hinn er enskumælandi og frá Toronto. Annar er
löghlýðinn, hinn fer að sínum eigin lögum …
Það var ekki ég, ég sver það! (C’est Pas Moi, Je
Le Jure!)
Leikstjórn: Philippe Falardeau
Aðalhlutverk: Antoine Lecuyer, Suzanne Clément,
Daniel Brière.
Allir sem hrifust af C.R.A.Z.Y á síðasta ári verða
að sjá þessa mynd.
Árið 1968 breytist líf hins tíu ára Léon Doré.
Þá flytur móðir hans til Grikklands til að komast
frá yfirþyrmandi eiginmanni sínum, og skilur
syni sína tvo eftir í hans umsjá. Eldri bróðir Léon
verður sífellt bitrari, á meðan Léon fer um hverf-
ið með hnupli og ólátum, snýr húsi nágrannanna
á hvolf á meðan þeir eru í fríi, gerir sér upp sjón-
leysi til að afsaka slakar einkunnir í skólanum …
Edrú (Clean)
Leikstjórn: Olivier Assayas
Aðalhlutverk: Maggie Cheung, Nick Nolte, Béatrice
Dalle.
Manneskjan breytist þegar hún á engra kosta
völ. Tengdaforeldrar Emily ala upp son hennar
án þess að hún fái að koma þar nálægt, en það
sem hún þráir umfram allt annað er að fá son
sinn aftur. En til þess verður hún að ná tökum á
lífi sínu... verða edrú.
Hjörtun (Cœurs)
Leikstjórn: Alain Resnais
Aðalhlutverk: Sabine Azéma, Lambert Wilson, André
Dussollier.
Í þessari mögnuðu mynd sýnir einn virtasti
leikstjóri Frakka, Alain Resnais, hvernig líf sögu-
persóna í nokkrum sögum skarast, hvernig lífið
gengur fyrir sig í París að vetrarlagi. Lífið er eins
konar hringrás þar sem gjörðir eins einstaklings
geta umbylt örlögum annars, jafnvel þótt þeir
þekkist ekkert og hafi aldrei hist.
Ljúfa Paloma (Délice Paloma)
Leikstjórn: Nadir Moknèche
Aðalhlutverk: Biyouna, Nadia Kaci, Aylin Prandi.
Hann Nadir Moknèche er nokkurs konar
Almodóvar frá Alsír, og býður áhorfandanum upp
á að kynnast ýmsum óvæntum og skemmtilegum
hliðum Alsír.
Vantar þig ökuskírteini? Ertu einn í kvöld?
Hringdu þá í frú Aldséria, velgerðarkonu allra:
hún bjargar þessu fyrir þig. Hún, sem tók sér
nafn heimalands síns, beitir öllum brögðum til að
komast af í Alsír nútímans.
Verndargripurinn (Khamsa)
Leikstjórn: Karim Dridi
Aðalhlutverk: Marco Cortes, Raymond Adam, Magalie
Contreras.
Khamsa, 13 ára, flýr frá fósturforeldrum sín-
um, til að fara aftur í sígaunaþorpið þar sem hann
fæddist. Hann lendir í vafasömum félagsskap og
hönd Fatma, verndargripurinn sem Khamsa ber
alltaf um hálsinn, getur ekki alltaf verndað hann.
Frumgráturinn (Le Premier Cri)
Leikstjóri: Gilles de Maistre
Hrífandi heimildarmynd þar sem því tilfinn-
ingaflóði sem barnsfæðing kemur af stað er lýst
af mikilli nærfærni. Hér er sögð töfrandi saga
fyrsta gráts ævinnar, sem staðfestir komu manns
í heiminn.
Louise Michel
Leikstjórn: Sólveig Anspach
Aðalhlutverk: Sylvie Testud, Nathalie Boutefeu, Coral-
ie André.
Louise Michel var franskur stjórnleysingi,
femínisti, kennari og hjúkrunarkona. Hún var
send í útlegð til Nýju-Kaledóníu þar sem hún
eyddi átta árum og barðist með frumbyggjunum,
Kanökum, fyrir aukinni sjálfstjórn þeim til
handa. Þetta er mynd um ofbeldi og yfirgang
valdsins gegn sínum eigin þegnum, blindu ný-
lendustefnunnar og óvenjulega sambúð hinna
undirokuðu.
Morðkvendi (Meurtriéres)
Leikstjórn: Patrick Grandperret
Aðalhlutverk: Hande Kodja, Céline Sallette, Gianni Gi-
ardinelli.
Sýnd á Festival de Cannes árið 2006. Frönsk
útgáfa af myndinni Thelma & Louise.
Nína og Lizzy eru svolítið viðkvæmar og finnst
þær aðeins vera sterkar og hamingjusamar þegar
þær eru saman. Þær eru frekar óheppnar, staur-
blankar og eiga sér bara einn draum: að finna
ástina.
Virtur Cœurs er nýjasta mynd hins mikilhæfa Alain Resnais. Vinsæl Le Petit Nicolas var langvinsælasta mynd Frakklands í fyrra.
Byltingarkona Úr Louise Michel, nýjustu mynd
Sólveigar Anspach.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ALLIANCE Française í Reykja-
vík, sendiráð Frakklands á Ís-
landi, sendiráð Kanada á Íslandi
og Græna ljósið kynna franska
kvikmyndahátíð sem verður hald-
in í 10. sinn dag-
ana 15.-28. jan-
úar í
Háskólabíói.
Friðrik Rafns-
son er forseti
Alliance Franç-
aise.
„Það var í
fyrsta skipi í
fyrra sem við
fengum önnur
frönskumælandi lönd í þetta með
okkur og sýndum þá myndir frá
Kanada og Belgíu,“ segir Friðrik.
„Bara svona til að minna á að
franska er töluð víðar en bara í
Frakklandi. Kanadísku mynd-
irnar eru tvær í þetta sinnið og
svo er ein eftir alsírskan leik-
stjóra.“
Friðrik segir ekkert sérstakt
þema renna í gegnum hátíðina,
áhersla sé nú sem fyrr á fjöl-
breytni en auk þess eru mynd-
irnar nýjar, ekki eldri en þriggja
ára.
„Hugmyndin er að hafa gott
sýnishorn af því sem hefur verið
að gera það gott í Frakklandi ný-
verið. Við reynum að fara yfir all-
an skalann, í boði eru bæði vel
listrænar myndir og svo fjöl-
skyldu- og afþreyingarmyndir.
Opnunarmyndin, Le Petit Nicolas,
var t.a.m. langvinsælasta kvik-
myndin í Frakklandi 2009, með
yfir fimm milljónir áhorfenda.“
Friðrik segir Frakka mikla bíó-
þjóð, slíkar ferðir séu rígbundnar
í hversdagslíf Frakkans og al-
gengt sé að öll fjölskyldan fari
saman út að borða og svo í bíó á
eftir – eða öfugt.
„Hátíðin gefur líka gott tæki-
færi á því að ráðast gegn þeirri
mýtu að allar franskar myndir
séu leiðinlegar og listrænar.
Þarna eru framleiddar alls kyns
myndir – meira að segja listræn-
ar skemmtilegar myndir líka!“
Þess má að lokum geta að í ár
verða myndir frönsku kvik-
myndahátíðarinnar í fyrsta sinn
sýndar í Borgarbíói á Akureyri,
frá 5. febrúar.
Nánari upplýsingar á af.is
Friðrik Rafnsson
Tíu myndir fyrir tíu ár
Frönsk kvikmyndahátíð í Háskólabíói 15.-28. janúar Í tíunda sinn sem hátíðin er haldin
Áhersla er lögð á breidd, bæði landfræðilega og kvikmyndalega, segir Friðrik Rafnsson
Myndirnar sem í boði eru: