Morgunblaðið - 25.01.2010, Side 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2010
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Í GÓÐUM
MÁLUM
Hollustan og heilsan eru málið á nýju ári. Ívar og
Arnar mæla með reglulegri hreyfingu og hollum
bita á Nesti. Renndu við og fáðu þér fitusnauðan
og næringarríkan mat og drykk þegar þér hentar.
Þá ertu alltaf í góðum málum.
Á NÝJU ÁRI
UM 1.250 þúsund
krónur höfðu
safnast til stuðn-
ings íslensku
alþjóðabjörgun-
arsveitinni í
átaki fjögurra
bókaforlaga í
samvinnu við Ey-
mundsson síð-
degis á sunnudag. Allur ágóði af
sölu valinna bóka þessa helgina
rennur óskertur til að endurnýja
búnað sveitarinnar sem skilinn var
eftir á Haítí.
Að sögn Bryndísar Loftsdóttur,
vörustjóra íslenskra bóka hjá Penn-
anum, stóðu vonir til að næðist að
safna 1,5 milljónum króna fyrir lok
átaksins. „Söfnunin gekk ágætlega
á laugardag. Það var mikið um út-
skriftir frá Háskólanum í Reykjavík
svo það seldist talsvert af bókum
þá,“ segir Bryndís. kjartan@mbl.is
Bókasala í þágu
björgunarsveit-
arinnar gekk
ágætlega
Eftir Sigmund Sigurgeirsson
SAMÞYKKT var á almennum safn-
aðarfundi á Selfossi í gær að krefjast
þess af biskupi, að presti sem taka á
til starfa í Selfossprestakalli verði fal-
ið að stýra og bera ábyrgð á öllu
kirkjustarfi í Selfosskirkju. Ágrein-
ingur var um tillöguna en hún sam-
þykkt með 64 atkvæðum gegn tíu.
Þar sem fleiri en einn prestur
starfa innan sömu sóknar skal, sam-
kvæmt starfsreglum, verkaskipting
fara fram undir forystu sóknarprests.
Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson,
sóknarprestur í Selfossprestakalli, á
ekki von á öðru en svo verði áfram.
Lög og starfsreglur kveði á um
ábyrgð sóknarpresta og hann segist
ekki skorast undan þeim skyldum.
Hann beri ábyrgð á starfi sem fram
fer í kirkjum prestakallsins.
Fjölmenni var á safnaðarfundinum
sem var boðaður vegna nýlegrar sam-
einingar Selfossprestakalls og
Hraungerðisprestakalls. Hart var
deilt á hvernig sú sameining kom til,
en hún var ákveðin á kirkjuþingi í
nóvember síðastliðnum.
Árni Valdimarsson, einn fundar-
manna, sagðist í samtali við Morgun-
blaðið þess fullviss að þorri fundar-
manna hefði ekki gert sér grein fyrir
því hvað var verið að samþykkja.
Samkvæmt áskoruninni væri fundur-
inn í raun að krefjast þess að biskup
svipti sóknarprest forræði yfir
stærstu kirkjudeildinni í prestakall-
inu. Á fundinum beindi Árni því til
fundarmanna að tillaga að áskorun-
inni yrði ekki lögð fram en fylgdi því
hins vegar ekki eftir. Greinilegt væri
hvernig til fundarins var boðað, fylg-
ismenn séra Óskars Hafsteins Ósk-
arssonar, starfandi afleysingaprests
á Selfossi, hefðu smalað á fundinn til
að koma í gegn ályktuninni og því
hefði verið þýðingarlaust að bera upp
breytingartillögur, eða frávísun.
Þórður Árnason, sem lagði tillög-
una fram, segir að líta megi svo á að
farið sé fram á að sóknarpresturinn
afsali sér völdum í kirkjunni. Hann sé
þó ávallt yfirmaður starfsins. Þórður
neitar því að sérstaklega hafi verið
smalað á fundinn af sinni hálfu.
Frestur til að sækja um stöðu
prests á Selfossi rennur út í dag, og
tekur hann að óbreyttu til starfa 1.
mars nk.
Nýr prestur stýri og beri ábyrgð á kirkjustarfinu
Fjölmennt á fundi Selfosssafnaðar
Ágreiningur um samþykkta tillögu
Morgunblaðið/Ómar
ALLS eru 27 erlendir skiptinemar í
námi við Háskólann á Akureyri á
vorönn, þar af 24 í staðbundnu
námi en þrír í verknámi.
Aldrei áður hafa eins margir
skiptinemar verið við HA á einu
skólaári og er það líklega vegna
stöðu íslensku krónunnar gagnvart
erlendum gjaldmiðlum, að því er
fram kemur á vefsetri skólans.
Nemendur koma frá ellefu þjóð-
löndum og er dreifing milli landa
svipuð og síðustu ár. Hins vegar er
einn nemandi frá nýjum samstarfs-
skóla HA í Rúmeníu. Akureyrar-
skólinn er stöðugt að auka við nem-
enda- og kennaraskiptasamninga
sem gefur nemendum einnig fjöl-
breyttari möguleika á skiptinámi.
Skiptinemar og -kennarar eru
sagði setja alþjóðlegan blæ á há-
Morgunblaðið/Kristján
Akureyri Sífellt fleiri koma frá öðr-
um löndum til háskólanáms fyrir
norðan.
Hagstæð
króna heillar
háskólafólk