Morgunblaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 28
28 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2010
Félagslíf
MÍMIR 6010012519 III° þf.
GIMLI 6010012519 II° þf.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
www.gvendur.is
Gvendur dúllari hefur opnað
fornbókabúð á vefnum.
Gott úrval bóka.
Gvendur dúllari
Alltaf góður
Vestfirskur húmor í ellefu bókum
101 ný vestfirsk þjóðsaga eftir Gísla
Hjartarson í 8 bókum, 99 vestfirskar
þjóðsögur í 3 bókum. Alls 1105 gam-
ansögur af Vestfirðingum á 9.800,- kr.
Sending innifalin. Vestfirska forlagið,
netfang: jons@snerpa.is
Sími 456-8181.
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
Útsala - Útsala - Útsala
Kristal ljósakrónur, postulín, krystal
glös, handskornar trévörur frá
tékklandi og Slóvakíu
Uppl. Í s. 5444331
opið laugardag 11-16
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Þjónusta
Helgi pípari
Viðgerðir - Nýlagnir - Breytingar.
Lítil sem stór verk, hitamál o.fl.
Hafið samband í síma 820 8604,
Helgi pípari.
Ýmislegt
FYRIR VEISLUNA
Leigðu borðbúnaðinn fyrir þorra-
blótið, árshátíðina, fermingarveisluna
eða hvaða veislu sem er í Leigu-
markaði BYKO. Mikið úrval af
diskum, glösum, bollum og
hnífapörum. Leigjum einnig út borð,
stóla og veislutjöld.
Nánari upplýsingar hjá LM BYKO
í síma: 515 4020.
Fallegir og þægilegir dömuskór
úr leðri og með skinnfóðri. Litur: svart
Stærðir: 36 - 41. Verð: 8.890.
Fallegir og vel lagaðir dömuskór
úr leðri og með skinnfóðri.
Litir: rautt og svart. Stærðir: 37 - 41.
Verð: 14.685.-
Fallegir dömuskór með klassísku
sniði gerðir úr leðri og með skinn-
fóðri. Litur: svart. Stærðir. 37 - 41.
Verð: 14.685.-
Sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Bílar
Til sölu Ford Escape XLT 3000 V6,
árg. 2008, 5 dyra, bensín, sjálfsk.,
ekinn 27 þ.km., dráttarkrókur, vetrar-
og sumardekk. Verð 4.2 millj. áhv. 2.9
millj. lán. Upplýsingar í síma 893
1712 eða helgafe@gmail.com.
Til sölu efni í 2 Willys jeppa CJ2,
árg. 1946, þ.á.m. vélar, gírkassar,
grindur, hásingar, skúffur, fjaðrir,
felgur og fl. og fl. Eftirspurn eftir
þessum skemmtilegu léttu bílum er
mikil og eru þeir mjög dýrir erlendis.
Þetta er upplagt tækifæri fyrir
bílaverkstæði að nýta dauðan tíma.
Uppl. í síma 898 8577 milli 13 og 15.
NISSAN PATHFINDER SE 33”,
breyttur, 7/2007, ekinn aðeins 16 þús
km. Dráttarkrókur, stigbretti ofl.
Verð: 5.900 þús.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Öruggur í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Húsviðhald
Skipti um rennur og bárujárn
á þökum, einnig smávægilegar
múrviðgerðir og ýmislegt fl.
Þjónum landsbyggðinni einnig.
Upplýsingar í síma 659-3598.
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Varahlutir
atvinna
Hrund Adamsdóttir
✝ HrundAdamsdóttir
fæddist á Ak-
ureyri 16. júní
1908. Hún lést í
Winnipeg í Kan-
ada hinn 12. jan-
úar 2010.
Foreldrar
Hrundar voru
Adam Þorgrímsson, f. 1879, frá Nesi í
Aðaldal, og Sigrún Jónsdóttir, f. 1886 á
Mýri í Bárðardal.
Hrund bjó ásamt foreldrum sínum í
Hayland Manitoba frá árinu 1919 þar
sem faðir hennar Adam var prestur.
Hrund giftist 1923 til Geysis, Jonasi
Gesti Skúlasyni, f. 5. mars 1901, d.
1959, bónda og vörubílstjóra. Börn
þeirra: Sigrún, Ada, Guðrún Jónína,
Kristín Hólmfríður, Hermann Jónas,
Thor Adam.
Afkomendur Hrundar eru: Kristine
Laxdal, Herman, Thor, Gordon, Lori
Reid, Bradley, Kellym, Melvin McInnis,
Sigrún Þóra, Signý Hrund, Inga Hlif, Ca-
rol Anne McInnis, Danielle, Adam, Joni
Shepheard, Regan, Gwen Noble, Kyle,
Neil McInnis, Caitlin og Bryn, Jim Lax-
dal, Austin, Derek Laxdal, Jessica og
Jaime, Alison Lindsay, Maeghan og Lac-
hlan, Darrell Skulason, Emma, Eliza-
beth, Cassidy, Diana Thorsteinson,
Christopher, Brett, Denise Smolinski,
Hannah, Ethan, Laura Drover, Freyja,
Andrea Skulason, Sophie og Emma,
Heather Skulason, Claudia, Maggie
Noble, Mark, Brynn og Oliver, Jordon,
Aleesha, Edwina Schwindt og Anna
Gyda.
Hrund bjó í Geysi fram að 1960 þeg-
ar hún flutti til Winnipeg. Hún var bóka-
safnsvörður við Íslenska bókasafnið við
University of Manitoba fram að 1975.
Jarðarför Hrundar fór fram 16. jan-
úar frá Árborg-Geysir lútersku kirkjunni
í Árborg.
Meira: mbl.is/minningar
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Bridsfélag Kópavogs
Fimmtudaginn 21. janúar var
spilað síðasta kvöldið í þriggja
kvölda tvímenningi Bridgefélags
Kópavogs.
Fyrir lokakvöldið áttu nokkur
pör möguleika á sigri. Úrslit
kvöldsins urðu þessi.
N-S
Erla Sigurjónsd.– Guðni Ingvarss. 56,9%
Leifur Kristjánss. – Gísli Tryggvas. 56,7%
Guðm. Péturss. – Sigurjón Tryggvas.
53,7%
Rósa Oddsd. – Arnþrúður Karlsd. 52,5%
A-V
Sveinn Símonars. – Sigurl. Bergvinsd.
66,4%
Skúli Sigurðss. – Vigdís Sigurjónsd. 57,2%
Guðm. Grétarss. – Óli B. Gunnarss. 53,9%
Sig. Sigurjónss. – Ragnar Björnss. 52,8%
Lokastaðan varð þessi.
Leifur Kristjánss. – Gísli Tryggvas. 57,5 %
Guðm. Péturss. – Sigurjón Tryggvas.
56,93%
Sig. Sigurjónss. – Ragnar Björnss. 56,91%
Guðm. Grétarss. – Óli B. Gunnarss. 54,0%
Við óskum vinunum Leifi og
Gísla til hamingju með sigurinn.
Ekkert verður spilað fimmtudag-
inn 28. janúar vegna Bridshátíð-
arinnar.
Fimmtudaginn 4. febrúar hefst
Barometer félagsins. Áhugasamir
geta hringt í Heimi í síma 698 1319
til að skrá sig eða til að fá hjálp við
myndun para.
Spilað er í félagsheimilinu Gjá-
bakka í Fannborginni í Kópavogi.
Spilamennska hefst klukkan 19.
Elsku afi, elsku
langafi, nokkur orð að
kveðju. Við erum
þakklát fyrir hverja mínútu sem við
fengum að njóta samveru þinnar. Þó
að þessar samverustundir hafi ekki
verið margar síðustu árin skildu
þær eftir sterkar og góðar minn-
ingar. Fyrstu minningarnar úr
Afabingói, óteljandi vinnustundir
okkar í málningunni, fiskibollurnar
góðu sem jafnvel eru orðnar frægar
í Póllandi og síðast en ekki síst að
sjálfsögðu margar útilegur og veiði-
túrar. Sjálfur er ég sérstaklega
þakklátur fyrir það að við, ég, þú og
Daniel Thor, skulum hafa haft tæki-
færi til að styrkja okkar sambönd
með síðustu veiðitúrunum þínum.
Daniel talar enn í dag um langafa
sinn, þennan ótrúlega veiðimann,
með sérstökum glans í augunum.
Kveðjustund okkar í nóvember var
gulls virði.
Elsku afi, elsku langafi, við erum
fullviss um að þér líður núna betur
og að þú brosir til okkar að ofan.
Ástarkveðjur,
Eyjólfur, Adrianna,
Daniel Thor og
Natalia Anna.
Eyjólfur
Arthúrsson
✝ Eyjólfur Arthúrs-son málarameist-
ari fæddist í Sól-
eyjartungu á
Akranesi 7. febrúar
1926. Hann lést
sunnudaginn 10. jan-
úar sl.
Útför Eyjólfs var
gerð frá Bústaða-
kirkju 22. janúar sl.
Föðurætt mín er
ættuð af Akranesi.
Þar fæddist Eyjólfur,
föðurbróðir minn í
Sóleyjartungu. Ólst
upp á Geirsstöðum og
var hann kenndur við
það hús. Eyfi eins og
hann var kallaður fell-
ur fyrstur frá úr hópi
alsystkina sinna, sem
voru alls fimm. Tvo
hálfbræður átti hann í
móðurætt, sem báðir
eru látnir. Hann fór
ungur til náms í mál-
araiðn til Reykjavíkur, og bjó þar
alla tíð eftir nám. Í Reykjavík á
námsárum sínum kynntist hann
Guðrúnu Ingimundardóttur. Þau
gengu í hjónaband ung að árum og
eignuðust átta börn. Guðrún lést af
ólæknandi sjúkdómi rúmlega þrí-
tug.
Það var mikið áfall í Ásgarði 3
sem frændi minn og börnin hans
átta gengu í gegnum. Börnin voru á
aldrinum eins árs til sextán ára.
Frændi minn kynntist henni Svövu
nokkrum árum eftir andlát Guðrún-
ar. Svava var ein með þrjú börn.
Hún hafði misst mann sinn af slys-
förum. Heimilið í Ásgarði 3 var orð-
ið fjölmennt. Svava lést fyrir þrem
árum. Æviskeið frænda míns var
ekki áfallalaust, en hann átti sína
léttu lund sem lyfti honum oft upp
úr sorginni. Hann missti son sinn og
stjúpdóttur og tvö barnabörn. Það
er ekki hægt að lýsa með orðum
þeim missi og þeirri sorg sem á
frænda minn var lögð. Margar sög-
ur sagði Eyfi frændi mér af upp-
vexti sínum á Skaganum. Það voru
ljúfar minningar í frásögn hans um
atburði liðins tíma. Hann sagði frá
mörgum veiðiferðum sem hann fór í,
enda rann varla sú lækjarspræna
sem hann fór fram hjá, að ekki væri
stoppað og rennt út færi. Mér er
minnisstæðust veiðiferð sem hann
og faðir minn fóru með okkur syn-
ina í Reyðarvatn ofan við Lundar-
reykjadal um hvítasunnu 1963. Það
var svaðilför sem farin var á gúmmí-
bát yfir vatnið. Feður og synir allir
um borð. Þessi ferð hefur aldrei ver-
ið til umræðu eftir það. Oft kom ég
með fjölskyldu mína í Skorradal til
Eyfa og Svövu þar sem þau eyddu
mörgum sumrum í hjólhýsi sínu í
landi Haga. Þar fór vel um þau. Eyfi
hafði sinn litla bát og lagði oft net
eða var að veiða á stöng. Þar undi
frændi minn sér vel, sagði sögur og
gerði grín. Ég vil þakka frænda
mínum fyrir þá aðstoð og umhyggju
sem hann sýndi mér alla tíð. Hann
kom í tvígang og bauð aðstoð sína
við málningarvinnu á heimili mínu.
Börnum mínum hefur alltaf hlýnað
um hjartarætur þegar minnst var á
Eyfa frænda. Hann var þeim alltaf
góði afabróðir. Að lokum sendi ég
kvæði eftir Sólmund afa minn, þeim
var vel til vina.
Heyri ég raddir himins gjalla,
hörpur stilltar, tóna falla,
til að kalla okkur alla
upp til starfs og rýmri hags.
Yfir hraun og hamrastalla
hrynur glóð hins nýja dags.
Ber mig inn í óskalandið
öldurótið kynngi blandið,
ævistritsins strengda bandið
sterka, greiðist mér af háls,
baðað skini bíður landið,
brautin opin, þrællinn frjáls.
(Sólmundur Sigurðsson frá Smiðju-
hólsveggjum.)
Far í friði, elsku föðurbróðir.
Sólmundur
Þormar Maríusson.