Morgunblaðið - 25.01.2010, Síða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2010
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
VERKFRÆÐINGAR, tæknifræð-
ingar, arkitektar og verktakar eru
í hópi þeirra sem ætla að setjast á
skólabekk hjá Endurmenntun Há-
skóla Íslands nú í febrúar, en um-
talsverður áhugi hefur reynst vera
fyrir tveggja anna námsbraut í
framkvæmdaferli mannvirkja-
gerðar sem þá verður hleypt af
stokkunum. Náminu er ætlað að
auka sérþekkingu þeirra sem
starfa við mannvirkjagerð, sem og
raunar allra þeirra sem starfa við
ráðgjöf og bera ábyrgð á ráðgjaf-
arsamningum, ráðningu hönnuða,
útboðum, gerð útboðsgagna, samn-
ingum við verktaka, fjármögnun
verkefna og áhættugreiningu inn-
an fyrirtækja og stofnana.
Kviknaði yfir kaffibolla
Ein þeirra sem þarna ætla að
setjast á skólabekk er Sigríður
Sigurðardóttir, arkitekt hjá Eflu.
Er hugmyndin að náminu raunar
komin frá henni sjálfri og vinkonu
hennar, Ragnheiði Aradóttur arki-
tekt. Þær leituðu síðan til EHÍ og
hefur námið verið rúmt ár í þróun.
„Við vorum að spjalla saman yfir
kaffibolla eftir að kreppan skall á
um það hvað arkitektar gætu gert,“
segir Sigríður. Sjálf fór hún í við-
skipta- og rekstrarhagfræðinám hjá
Endurmenntun er atvinnustaða
arkitekta var erfið 1994 og telur
hún það hafa breikkað starfsvið
sitt.
Niðurstaða þeirra vinkvenna var
að m.a. mætti bæta þekkingu á
lagalegu hliðinni hjá þeim sem
starfa við mannvirkjagerð. „Það er
verið að gera samninga, útboðsgögn
og ráðleggja um hvaða leiðir eigi að
fara. Sá sem ráðin gefur hefur síðan
kannski ekki fullan skilning á mál-
inu og það getur haft miklar afleið-
ingar í för með sér ef hlutirnir eru
túlkaðir vitlaust,“ segir Sigríður.
Auk áherslu á ráðgjafarsamn-
inga, verksamninga, útboð, opinber
innkaup og bótaskyldu er athyglinni
einnig beint að fjármálunum. Sigríð-
ur telur það ekki síður mikilvægt.
„Það er verið að ala okkur upp í
ábyrgðinni,“ segir hún. „Í dag er oft
verið að gera frumkostnaðaráætlun
á einni forsendu, síðan er gerð
kostnaðaráætlun fyrir hönnun og út-
boð, svo dæmi sé tekið. Það er mik-
ilvægt að þetta sé allt tekið saman
og að frumkostnaðaráætlun standist
allt til loka verksins.“ Þannig þurfi
t.a.m. að taka áhættu inn í útreikn-
ingana strax á frumstigi.
Námið ætti því gefa þeim sem að
framkvæmdum koma færi á að
byggja sig upp og vera færari fag-
menn er kreppu lýkur. „Það er líka
mikilvægt að þarna komi saman
fjölbreyttur hópur fólks svo þróa
megi skilning á milli stétta og við
förum öll að tala sama málið.“
Fái færi á að byggja sig
upp sem færari fagmenn
Morgunblaðið/Ómar
Húsbygging Mannvirkjagerð er vandasamt ábyrgðarverk.
Í HNOTSKURN
»Framkvæmdaferli mann-virkjagerðar er tveggja
anna nám sem hægt er að
sækja meðfram vinnu.
»Námið samsvarar 24 ein-ingum á háskólastigi.
Mikill áhugi á nýrri námsbraut Endurmenntunar Háskólans
SALA slitastjórnar SPRON á
lausafjármunum úr þrotabúi spari-
sjóðsins gekk vonum framar um
helgina. Fyrir opnun á laugardag
hafði biðröð myndast fyrir utan
geymsluhúsnæðið á Kjalarnesi þar
sem salan fór fram. Vörurnar sem
voru til sölu voru ýmsar skrif-
stofuvörur, tölvur og raftæki, auk
húsbúnaðar sem hafði verið not-
aður í útibúum SPRON á höf-
uðborgarsvæðinu.
Að sögn Magnúsar Steinþórs
Pálmarssonar, ráðgjafa hjá slit-
astjórn SPRON, gekk salan mjög
vel. „Það seldist nánast allt og
megnið af vörunum kláraðist strax
á laugardag. Það var jafnvel reynt
að stöðva auglýsingar fyrir sunnu-
daginn.“
Magnús segir að alls konar fólk
hafi mætt og sumir hafi jafnvel
gert sér sérstaka ferð utan af landi.
„Þetta voru til dæmis atvinnurek-
endur og félagasamtök sem voru að
kaupa húsgögn inn í starfsemi sína.
Þarna var fólk að kaupa stóla inn í
félagsheimili og þess háttar.“
kjartan@mbl.is Morgunblaðið/Golli
Mikill áhugi
á þrotabús-
sölu SPRON
MIKIL hækkun varð á gjaldi fyrir af-
lestur röntgenmynda af mjöðmum og
olnbogum hunda hjá Hundarækt-
arfélagi Íslands (HRFÍ) þann 6. jan-
úar sl. Samkvæmt nýrri gjaldskrá fé-
lagsins sem tók gildi um áramótin var
þetta gjald 4.500 krónur en það var
svo hækkað í 13.500 krónur fáeinum
dögum síðar. Gjaldsins er krafist fyrir
aflestur mjaðma- og olnbogamynda en
það er 8.500 krónur ef aðeins er lesið
úr mjaðma- eða olnbogamynd.
Valgerður Júlíusdóttir, fram-
kvæmdastjóri HRFÍ, sagði að sú
breyting hefði orðið að nú kostaði sér-
staklega að lesa úr hverri mynd.
Ákvörðun hefði verið tekin um það í
Noregi þar sem lesið væri úr mynd-
unum. Verðhækkunin stafaði þó að-
allega af óhagstæðri gengisþróun ís-
lensku krónunnar gagnvart þeirri
norsku.
„Þeir taka 250 NKR fyrir eina
mynd og 450 NKR ef lesið er úr báð-
um myndum. Við tökum rúmar 700
krónur í umsýslugjald fyrir eina
mynd og 1.200 kr. fyrir tvær. Svo
leggst virðisaukaskattur ofan á. Því
miður búum við við svona hrikaleg
kjör út af gjaldmiðlinum okkar,“ sagði
Valgerður. Hún sagði að norsku dýra-
læknarnir sem önnuðust aflesturinn
væru sérhæfðir og viðurkenndir af
hundaræktarfélögum á Norð-
urlöndum.
Gerðar eru ákveðnar heilsufars-
kröfur til margra hundategunda, t.d.
svonefndra retriever-hunda. Til
þeirra heyra vinsælar tegundir á borð
við Labrador retriever og Golden ret-
riever. Greinist hundur úr þeim flokki
með mjaðma- og eða olnbogalos upp á
D- eða E-stig fást afkvæmi hans ekki
skráð í ættbók. A-stig merkir að
hundur sé laus við los í liðum og B-
stig að það sé smávægilegt. Séu báðir
foreldrar hvolps af fyrrgreindum teg-
undum greindir með C-olnboga eða
-mjaðmir fær hvolpurinn ekki ættbók.
gudni@mbl.is
Verðið þrefaldaðist
Morgunblaðið/Ingó
Hraustur Mjaðmagrind í heil-
brigðum Labrador-hundi.
Röntgenmyndir af mjöðmum og olnbogum hunda hafa
hækkað verulega í verði Rukkað fyrir hverja mynd
Félagsdómur
hefur sýknað ís-
lenska ríkið i
máli sem Lands-
samband lög-
reglumanna
höfðaði vegna
ágreinings um
framkvæmd
kjarasamnings
lögreglumanna.
Lögreglumenn töldu að einhliða
ákvörðun lögreglustjórans á höf-
uðborgarsvæðinu um að setja
reglur um vinnutilhögun fælu í sér
brot á kjarasamningi. Þeir töldu
að lögreglumönnum, sem starfa
við rannsóknardeildir lög-
reglustjórans á höfuðborgarsvæð-
inu, bæri ekki skylda til að fara
eftir reglunum.
Þá töldu þeir að lögreglumenn,
sem náð hafa 55 ára aldri, ættu að
vera undanþegnir bakvaktaskyldu
á næturvinnutíma. Ennfremur var
ágreiningur um hvernig ætti að
taka á því þegar lögreglumenn
þurfa að vinna á hvíldardegi.
Félagsdómur féllst ekki á kröf-
ur Landssambands lögreglumanna
og sýknaði ríkið. Málskostnaður
var felldur niður.
Lögreglumenn
töpuðu máli
í félagsdómi