Morgunblaðið - 25.01.2010, Side 16

Morgunblaðið - 25.01.2010, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2010 Svokallaðurstöð-ugleikasátt- máli hefur öðru hvoru verið í umræðunni. Fljótt á litið virtist þar á ferð samn- ingur með löngu nafni en litlu efni. En hann var engu að síð- ur mikilvægur vegna þess að hann var umbúnaður um frið á vinnumarkaði, þegar átök voru engum til gagns og öllum til bölvunar. Margir áttu um sárt að binda og eiga enn, atvinnu- öryggi ótryggt og forráða- menn fyrirtækja þurftu á öllu sínu að halda til að halda þeim á floti. Vinnudeilur hefðu verið olía á eld. Ríkisstjórninni var ætlaður nokkur hlutur í samn- ingsgerðinni, en skemmst er frá því að segja að hann liggur allur eftir. Samtök atvinnulífsins gengu mjög langt í að samþykkja eða una skattaálögum og skemmd- um á skattkerfi og liggur við að þessi samtök hafi tekið á þeim pólitíska ábyrgð. Því til viðbótar stunduðu for- ráðamenn samtakanna er- indrekstur fyrir ríkisstjórnina gagnvart stjórnarandstöðu í Icesave-málinu og voru til- búnir til að láta senda sig á fund forseta í sömu erindum, en hann afþakkaði pent. Þarna voru samtökin komin á hreinar villigötur. En skýringin á þess- ari umframfylgispekt við rík- isstjórnina var ekki síst sú, að SA trúðu því að þau hefðu tryggt að friður í atvinnulífi næði jafnframt til sjávarútvegsins á Íslandi. At- vinnugreinar, sem menn sjá nú aftur í réttu ljósi eftir hrun út- rásar og loftbólustarfsemi. En vilyrði um sáttatíma í sjávar- útvegi, sem aldrei hefur verið mikilvægari, hafa öll verið svikin. Ráðist hefur verið að sjómannaafslættinum, sér- íslensku fyrirbæri í sköttum sem fremur er ástæða til að standa vörð um en eyðileggja. Hótanir um fyrningarleið veikja traust á stöðu fyr- irtækjanna í sjávarútvegi til frambúðar og skref sem hafa verið í stigin í þá átt sýna að loforð um samráð og samstarf voru innihaldslaus froða. Einar Guðfinnsson, fyrrver- andi sjávarútvegsráðherra, segir nýverið að íslenska rík- isstjórnin sé mestur skaðvald- ur í einni höfuðgrein þjóð- arinnar. Þarna er fast kveðið að, en við blasir að þingmað- urinn hefur mikið til síns máls. Það er ekki ástæða til að ætla að núverandi sjávarútvegs- ráðherra sé ekki í hjarta sínu velviljaður því sem hann á að standa vörð um. En hann er augljóslega með lítinn eða eng- an stuðning hjá samráðherrum sínum. Atlaga ríkisstjórnar að íslenskum sjávar- útvegi er óskiljanleg} Svikin fyrirheit við sjávarútveg Árásirnar hinn11. september 2001, þar sem flug- vélar, fullsetnar farþegum, voru notaðar sem vopn gegn almennum borgurum, fylltu veröldina skelf- ingu. Hryðjuverkamenn sýndu að þeim væru engin mörk sett. Viðbrögðin urðu auðvitað harkaleg og ef tími til yfirveg- unar hefði verið meiri hefði sjálfsagt færra farið úrskeiðis. Hugmynd að bráðabirgða- fangabúðum Bandaríkjamanna á öryfirráðasvæði þeirra í Kúbu var við þessar aðstæður skiljanleg. En hún hafði ekki verið hugsuð til enda og stjórn Bush var orðin óróleg yfir búð- unum og var byrjuð að feta sig út úr þeirri aðgerð en hafði ekki fundið endanlega né full- nægjandi lausn. Obama, núverandi forseti, gaf áberandi kosningaloforð um að loka fangabúðunum inn- an árs frá því að hann tæki við embætti. Við það hefur hann ekki getað staðið. Bandaríska dómskerfið er orð- ið órólegt og mannréttinda- frömuðir hafa frá öndverðu verið mjög gagnrýnir. Nú virðist sem hugmyndin sé að 45 fanganna, sem enginn vill taka við, verði með stjórnvaldsákvörðun og án dómsmeðferðar af nokkru tagi geymdir til lífstíðar í fangelsi til öryggis. Þótt ekki liggi fyrir um hvaða einstaklinga er þarna að ræða og þótt ekki sé ástæða til að efast um að í hópi þeirra séu flestir, ef ekki allir, stórhættulegir menn, þá er lausn af þessu tagi ógerleg fyr- ir Bandaríkin. Það hlýtur að vera ófrávíkj- anleg regla að frelsissvipting manna, svo ekki sé talað um til lífstíðar, fái málsmeðferð sem stenst skoðun réttarríkis. Því það er svo, að hverfi for- ysturíki lýðræðis í heiminum til slíkrar niðurstöðu, þá geta þeir sem síst skyldi helst hlakkað yfir því og hagnýtt sér það. Jafnvel í tilvikum verstu illvirkja og þrjóta má ekki víkja algjörlega frá reglum réttar- ríkisins} Fangabúðir og réttarríki H ann var sætur sigurinn á Dönum. Íslendingum er þá ekki alls varn- að. Eftirminnilegt að heyra lýs- inguna: „Og sjáið þið Róbert, hvernig hann nær boltanum! Kastar sér þarna eins og gráðugt ljón á bráð, alveg eins og ljón sem hefur verið svelt í þrjár vikur!“ Þetta skiptir máli. Að berjast eins og ljón. Orri Steinarsson, sem búsettur er í Hollandi, lýsti því í sunnudagsmogganum á dögunum að ímynd Ís- lands hefði beðið hnekki þar í landi í kjölfar Ice- save og bankahrunsins, en fyrst og fremst í við- skiptum. „Sem betur fer hafa listamenn eins og Sigur Rós, Múm og Mugison komið landinu veg- lega á kortið í Hollandi og sú ímynd er enn mjög jákvæð. Það er stórlega vanmetið hversu mikil áhrif ungt listafólk hefur á ímynd landsins.“ Auðvitað er þetta rétt hjá Orra. Gróskan í íslensku listalífi hefur skipt sköpum fyrir ímynd landsins. Fyrir vikið eru Ís- lendingar ekki óskrifað blað í augum umheimsins. Tónninn var gefinn með Björk, alhliða listamanni sem er frumleg og úthugsuð í öllum sínum verkum. Það á ekki aðeins við um tónlistina, heldur líka leiklistina og hönnunina; það varð mælistikan sem allir mældu sig við og íslenskt listalíf hefur uppskorið síðan. Og það skiptir máli fyrir ímynd þjóðarinnar, að á sama tíma og þýskir bankar töpuðu stórfé á íslenskum bönkum, þá sló Emilíana Torrini í gegn þar í landi og Jungle Drum var í efsta sæti vinsældalistans í heilar átta vikur! Við erum líka lánsamari en Norðmenn, sem sitja uppi með gleðipoppsveitina Aha, og Danir með sína Aqua, „I’m a Barbie girl, in a Barbie world. Life in plastic, it’s fantastic!“ Það er enda- stöð. Um þessar mundir er Íslendingum ítrekað boðið upp á listviðburði á heimsmælikvarða. Nefna má Faust í uppfærslu Vesturports og Borgarleikhússins, þar sem Goethe öðlast nýjan þrótt, án þess þó að sneitt sé hjá grundvall- arspurningum. Og sýningu Ragnars Kjart- anssonar í Hafnarborg á The End, framlagi Ís- lands á Feneyjatvíæringnum. Þar er sleginn nýr tónn sem mun óma víða. Ekki má gleyma Carnegie Art Award, þar sem Kristján Guðmundsson er í öndvegi. Þó er áhyggjuefni að á meðan gróskan er mikil í listalífinu, þá virðist forgangsröðunin hafa brenglast, ekki aðeins meðal stjórnmálamanna, heldur líka listamannanna sjálfra. Og tugir milljarða fara í tónlist- arhús og menningarhús um allt land. Hvað hefði ekki verið hægt að gera við þá fjármuni í listsköpuninni sjálfri, í stað þess að framleiða steinsteypu? Ímynd þjóðarinnar verður ekki bjargað af einni „stof- unni“ enn eða innantómum slagorðum. Þjóðin sjálf skapar ímyndina með frumkvæði sínu og framtaki. Ef við spjörum okkur í samfélagi þjóðanna, berjumst eins og ljón, þá ávinnum við okkur virðingu, stöndum vörð um sjálfsvirð- inguna, og ryðjum með því brautina fyrir komandi kyn- slóðir. Það skiptir máli. pebl@mbl.is Pétur Blöndal Pistill Það sem skiptir máli Leigumarkaður íbúða allur að lifna Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is E ftirspurnin er mikil,“ segir Halldór Jensson, sölustjóri á leigumiðl- uninni Rentus. Fyrir- tækið er nú með um 30 íbúðir á skrá á höfuðborgarsvæðinu. Í janúar í fyrra voru þær sextíu. Hann segir mikinn fjölda íbúða koma í út- leigu þessa dagana, þótt framboðið sé minna en fyrir hrun. Þær íbúðir sem komi í útleigu stoppi heldur ekki jafn- lengi. Leiguverð hefur hækkað og er mánaðarleigan á þriggja herbergja íbúð í blokk nú í kringum 120 þúsund krónur. „Þetta er að nálgast verðið sem var fyrir hrun,“ segir hann. Hilmar Þór Hafsteinsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari hjá fast- eignasölunni Eignamiðlun, staðfestir að leigumarkaður hafi tekið við sér og leiguverð hækkað þótt það hafi ekki náð sömu hæðum og fyrir kreppu. Ekki á hvaða verði sem er „Kaupgeta fólks er minni og það er ekki tilbúið að leigja á hvaða verði sem er,“ segir Hilmar Þór. Skortur sé engu að síður á íbúðarhúsnæði og óskirnar um leiguhúsnæði margfalt fleiri en íbúðirnar sem fyrirtækið hafi á skrá. Hilmar Þór fær að meðaltali tvö símtöl á dag frá fólki í leit að leiguíbúð. Eignamiðlun er nú með tvær eignir á skrá, en á sama tíma fyrir ári voru þær tuttugu. Hann seg- ir húseignir líka seljast betur en fyrir ári og því sé minna um að eignir sem ekki seljast fari í leigu. Lítil breyting hefur hins vegar orð- ið á eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði. Eignir með atvinnuhúsnæði á skrá eru nú 30-40 sem er svipað hlutfall og í fyrra. Hjá Félagsbústöðum í Reykjavík er minni eftirspurn eftir leiguíbúðum en var til skamms tíma. Fólk á bið- lista eftir félagslegu húsnæði hefur í vaxandi mæli fært sig yfir á almenna markaðinn þar sem eignir bjóðast í ákveðnum tilvikum á lægra verði en áður. Einkum á það við um stærri íbúðir. Eignir og tekjur ráða „Almenni markaðurinn hefur komið sterkt inn að undanförnu,“ segir Sigurður K. Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Félagsbústaða. „Framboð á eignum þar er meira og því hefur verð lækkað. Það á sér- staklega við um stærri eignir. Við er- um hins vegar mest í minni eignum, 80% okkar íbúða eru þriggja her- bergja eða minni. Margir sem voru á biðlista eftir stærri íbúðum hjá okk- ur hafa fært sig yfir á almenna markaðinn, bæði til að komast strax í húsnæði og eins er leiguverðið á slíkum íbúðum jafnvel hagstæðara en hjá okkur. Í minni eignum erum við hins vegar með lægra verð. Einn- ig verðum við þess vör að fólk gerir nokkrar kröfur um staðsetningu. Vill gjarnan fá íbúð í þeim borg- arhluta þar sem félagslegt bakland þess er.“ Félagsbústaðir eiga alls 2.158 íbúðir, þar af rúmlega 300 þjónustu- íbúðir fyrir aldraða. Fyrir liggja alls 650 umsóknir eftir félagslegu leigu- húsnæði. Velferðarsvið Reykjavík- urborgar úthlutar íbúðunum sem fara aðeins til þeirra sem eru með tekjur og eignir undir ákveðnum mörkum. Morgunblaðið/Valdís Thor Hús Fjármálastofnanir hafa undanfarið leyst til sín fjölda eigna sem þeim er skynsamlegra að leigja út en selja á hrakvirði, að mati leigumiðlara. Mikil eftirspurn er eftir leigu- húsnæði á almenna markaðnum og verðið hækkar. Hjá Félags- bústöðum í Reykjavík eru færri á biðlista en áður. Einkum á það við um stærri íbúðir. „LEIGUMARKAÐURINN mun bara stækka á næstu misserum. Fjöldi fólks hefur misst eignir sínar eða er illa statt af öðrum ástæðum og hefur ekki annan kost en leigja sér íbúð,“ segir Guðlaugur Örn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Leigulistans. Hann segir eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði hafa aukist mikið að undanförnu. Fyrst eftir hrunið hafi fyrirtækið verið með um 1.100 eignir á skrá en í dag séu þær 300 til 400. Á höfuðborgarsvæðinu er tals- vert um hálfbyggt íbúðarhúsnæði sem fjármálastofnanir hafa leyst til sín. Guðlaugur segir sitt mat að fyr- ir núverandi eigendur sé skynsam- legast að koma eignunum í nothæft stand og leigja út. Ekki borgi sig að selja þær, því við núverandi að- stæður seljist eignirnar aðeins fyrir hrakvirði á markaði sem sé í raun steindauður sem sakir standi. MARKAÐUR STÆKKAR ›› Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.