Morgunblaðið - 25.01.2010, Síða 29

Morgunblaðið - 25.01.2010, Síða 29
Dagbók 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2010 Sudoku Frumstig 3 4 7 8 1 5 5 2 3 7 6 2 5 4 1 8 3 1 7 6 1 8 4 3 8 4 7 1 5 6 3 1 2 2 6 4 8 3 8 7 4 3 3 5 2 4 8 5 2 7 5 2 6 3 7 4 6 1 5 3 2 5 5 1 7 2 3 1 4 3 6 9 7 3 2 4 6 7 5 9 8 4 7 6 5 3 2 1 3 5 1 2 4 9 6 7 8 7 6 2 8 3 1 4 9 5 4 9 8 1 2 3 5 6 7 2 7 5 4 9 6 8 1 3 1 3 6 5 8 7 2 4 9 6 4 7 9 5 8 1 3 2 8 2 9 3 1 4 7 5 6 5 1 3 6 7 2 9 8 4 5 3 2 8 4 6 9 7 1 9 7 8 2 1 5 3 4 6 6 4 1 7 9 3 8 2 5 3 1 5 4 8 7 2 6 9 8 9 7 3 6 2 1 5 4 2 6 4 9 5 1 7 3 8 7 8 9 6 2 4 5 1 3 4 5 3 1 7 8 6 9 2 1 2 6 5 3 9 4 8 7 2 4 1 8 3 9 6 5 7 9 5 6 4 7 2 8 1 3 3 7 8 6 5 1 9 4 2 6 8 2 3 4 5 1 7 9 5 3 9 7 1 8 4 2 6 7 1 4 9 2 6 5 3 8 1 9 7 2 8 4 3 6 5 8 2 5 1 6 3 7 9 4 4 6 3 5 9 7 2 8 1 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 25. janúar, 25. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Varpið allri áhyggju yðar á hann, því að hann ber umhyggju fyr- ir yður. (1Pt. 5, 7.) Víkverji dagsins er eins og flestirhreykinn af því hvað íslenska björgunarsveitin stóð sig vel á Haítí og sér enga ástæðu til að taka undir með þeim sem finnst að fjölmiðlar hérlendis hafi gert of mikið úr fram- lagi hennar. Mennirnir stóðu sig af- burðavel. Og þjóðirnar sem sendu fólk á vettvang hafa eðlilega meiri áhuga á frammistöðu eigin liðs- manna en einhverra annarra. Þannig er þetta alltaf, það sjá allir sem fylgst hafa með umfjöllun í erlendum fréttamiðlum, hvort sem sagt er frá hjálparstarfi eða íþróttum. x x x Sjálfsdýrkun þjóða er auðvitaðhvimleitt fyrirbæri og hún hefur oft gengið úr hófi hér. En fæstir úti í heimi kannast við smáþjóðir og þess vegna verða þær að sjá um það hjálp- arlaust að hæla sér eða skamma. Þetta er stundum svolítið hlægilegt en í lagi nema talað sé af hroka um eigin þjóð eins og eitthvert samsafn ofurmenna. Og fjallað um íslenska náttúru og menningu eins og eitt- hvað sem allir jarðarbúar þrái svo heitt að eignast hlut í að þeir séu vart mönnum sinnandi. Þá er kominn tími til að láta renna af sér og fara í með- ferð. x x x En Víkverji veltir öðru fyrir sér ísambandi við rústabjörg- unarmennina. Er öruggt að liðsmenn sveitarinnar, allavega þeir sem hafa enga fyrri reynslu af skelfilegum að- stæðum eins og á Haítí, fái þá and- legu aðstoð sem þeir þurfa þegar nokkur fjarlægð er komin á þessa reynslu? Sérfræðingar eru víst sam- mála um að fyrstu dagana eftir heim- komuna sé engin hætta á bakslagi. Það kemur seinna ef það kemur. x x x En þeir sem hafa í fyrsta sinnkynnst megnri nálykt og heyrt neyðaróp deyjandi fólks, þeir sem hafa þurft að harka af sér, yfirvinna hræðsluna við að grafast sjálfir undir brakinu, verða að búa sig undir erf- iða drauma. Hraustmenni eru menn en ekki sálarlausar vélar. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 myrkur, 4 karldýr, 7 stráka, 8 bölvi, 9 miskunn, 11 sef- ar, 13 korntegund, 14 Evrópubúi, 15 sívala pípu, 17 þekkt, 20 kjaft- ur, 22 þætti, 23 gömul, 24 ákveð, 25 flanar. Lóðrétt | 1 kústur, 2 munntóbak, 3 svelg- urinn, 4 för, 5 eyja, 6 verk, 10 hagnaður, 12 auðug, 13 tjara, 15 eld- fjall, 16 hrósar, 18 snúin, 19 skyldar, 20 vegg, 21 snaga. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 sukksamur, 8 lógar, 9 torga, 10 nía, 11 terta, 13 nárar, 15 hlera, 18 sukks, 21 kát, 22 leitt, 23 ólúin, 24 hliðstætt. Lóðrétt: 2 urgur, 3 kirna, 4 aftan, 5 urrar, 6 flot, 7 maur, 12 Týr, 14 átu, 15 háll, 16 ekill, 17 aktið, 18 stórt, 19 klúrt, 20 sona. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Rf6 4. e5 Rfd7 5. Bd3 c5 6. c3 Rc6 7. Re2 cxd4 8. cxd4 f6 9. exf6 Rxf6 10. 0-0 Bd6 11. Rf3 Dc7 12. Rg3 0-0 13. He1 e5 14. dxe5 Rxe5 15. Rxe5 Bxe5 16. Dc2 Dd6 17. Bg5 h6 18. Bd2 Rg4 19. He2 Df6 20. Be1 Bd4 21. Hd1 Kh8 22. h3 Re5 23. Bb5 Dh4 Staðan kom upp á alþjóðlegu ung- lingamóti sem Taflfélagið Hellir hélt fyrir skömmu í Kópavogi en mótið var styrkt af Skákstyrktarsjóði Kópavogs og Skáksambandi Íslands. Emil Sig- urðarson (1.609) hafði hvítt gegn sænsku skákkonunni Lindu Astrom (1.786). 24. Hxd4! Dxd4 25. Bc3 Dc5 26. Bxe5 Dxc2 svartur hefði einnig tapað eftir 26. … Dxb5 27. Dg6. 27. Hxc2 Hf7 28. Hd2 Be6 29. f4 Kg8 30. Rh5 g5 31. Rf6+ Kf8 32. fxg5 hxg5 33. Rg4 Hd8 34. Bf6 Hc8 35. Bxg5 og hvít- ur vann skákina um síðir. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Banvænt útspil. Norður ♠D109 ♥ÁD98 ♦D54 ♣D102 Vestur Austur ♠G ♠4 ♥K7632 ♥G1054 ♦G96 ♦K1087 ♣K763 ♣G854 Suður ♠ÁK876532 ♥– ♦Á32 ♣Á9 Suður spilar 7♠. Þeir grétu blóðugum tárum, sagn- hafar Reykjavíkurmótsins sem fengu út tígul gegn sex spöðum, enda eina út- spilið sem hnekkir slemmunni. Hvern- ig sem málið er skoðað er engin leið að ná í tólf slagi. Útspil í hjarta gefur hins vegar fría svíningu og með laufi út er hægt að byggja upp annað niðurkast fyrir tígulinn. Jæja. Einn hugdjarfur spilari, ónefndur, var í sjö spöðum. Og fékk út tígul, eins og til að bæta gráu ofan á svart. Enginn spilar frá kóng gegn al- slemmu og því setti hetjan hugumstóra smátt úr borði og drap tíu austurs með ás. Gaf svo dauðan og djöfulinn í blind- an og rúllaði niður átta trompum. Báð- ir mótherjar fleygðu öllum tíglum sín- um og þegar vestur átti að henda í ♦3 og ♦2 fór hann niður á ♣K blankan. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú ert að velta því fyrir þér hvort þú eigir að sýna meiri hörku í viðkvæmu máli. Gættu þess að skrifa ekki undir neitt sem gæti komið í bakið á þér seinna. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú átt þér marga talsmenn og þarft því ekki að örvænta um þinn hlut. Fé- lagslífið er í miklum blóma hjá þér. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Eitthvað á eftir að koma þér verulega á óvart heima fyrir. Börn taka sig saman og koma þér á óvart. Þú ert með samviskubit vegna ættingja sem þú hefur ekki heimsótt lengi. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þótt þú getir verið sveigjanleg/ur þýðir það ekki að þú eigir að láta stjórnast af tilfinningum annarra. Kannski leynist eitthvað í geymslunni sem má henda. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það er engin minnkun að því að þekkja takmörk sín og viðurkenna þau. Gerðu lista yfir það sem þú getur þakkað fyrir, lengdin á honum kemur á óvart. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Mundu að þú getur ekki alltaf gert svo öllum líki. Trúnaðarsamtal við vin gæti reynst sérstaklega jákvætt og upp- örvandi. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Ástvinir munu reyna að troða sínum reglum upp á þig, en þeir munu átta sig á að það er tímaeyðsla. Ekki berjast á móti heldur láttu berast með straumnum með bros á vör. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Reyndu að verja sem mestu af deginum í návist vina þinna. Taktu til og hentu því sem þú hefur ekki lengur not fyrir, það hreinsar hugann. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Notaðu daginn til þess að fara yfir fjármálin. Ættrækni þín er aðdáun- arverð. Nýttu þér tilboð á hlut sem þig hefur lengi langað í. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Í dag væri ekki vitlaust að leiða til lykta vandamál tengd samskiptum við hið opinbera. Útgeislun þín á sér engin takmörk þegar sá gállinn er á þér. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú hefur fengið hugmynd sem vel er þess virði að markaðssetja. Varastu umfram allt að hrapa að niðurstöðu því þá gæti farið illa. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Drífðu í því að kalla fjölskyldu og vini saman og njóttu þess að eiga með þeim góða stund. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Stjörnuspá 23. janúar 1979 Reyklaus dagur var haldinn í fyrsta sinn. Síðustu ár hafa þeir verið árlega. 23. janúar 1988 Mesta frost í sjötíu ár mældist í Möðrudal á Fjöllum, 32,5 stig. Svipað frost var í Mý- vatnssveit. Erfitt var að gang- setja vélknúin ökutæki og vatn fraus í leiðslum. 23. janúar 2001 Forseti Hæstaréttar svaraði bréflega fyrirspurn forseta Alþingis um túlkun á svo- nefndum öryrkjadómi. Bréfið olli „nokkru uppnámi“ á Al- þingi, að sögn Morgunblaðs- ins, enda ekki fordæmi fyrir því að dómarar skýrðu dóma sína á þennan hátt. „Hörku- deilur um Hæstarétt,“ sagði DV. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Kristín Ás- geirsdóttir Joh- ansen verður sjötug á morg- un, 26. janúar. Hún verður með opið hús á heim- ili sínu, á Laug- arásvegi 46, milli kl. 17 og 19 á afmælisdaginn og tekur á móti vinum og vandamönnum. Kristín afþakkar blóm og gjafir en það myndi gleðja hana ef Rauði kross- inn, sem stendur fyrir söfnun fyrir nauðstadda á Haítí, fengi heldur að njóta þess. 70 ára Ásgeir Þór Davíðsson veit- ingamaður er sextugur í dag, 25. janúar. Í til- efni þessara tímamóta tekur hann á móti vin- um og vanda- mönnum og fyrrverandi samstarfsmönnum til sjós og lands á 80’s Club (þar sem áður var Steak’n Play) á Grens- ásvegi 7, föstudaginn 29. janúar frá kl. 20 til 23. 60 ára „HVAÐ segir þú, á ég afmæli á mánudaginn kem- ur?“ sagði Haukur Halldórsson, eggjabóndi á Þórsmörk á Svalbarðsströnd, þegar blaðamaður náði tali af honum rétt fyrir helgi og falaðist eftir stuttu afmælisviðtali í tilefni dagsins. „Ég lít nú ekki á þetta sem stórafmæli og hef svo sem ekki velt því fyrir mér að gera neitt sér- stakt í tilefni þess,“ sagði Haukur og tók fram að þó væri aldrei að vita nema sér yrði komið á óvart í tilefni dagsins. „Ef einhver man eftir því,“ segir Haukur kíminn. Tekur hann fram að hann haldi yfirleitt aðeins upp á afmæli sitt þegar það standi á heilum tug. Spurður um eftirminnileg afmæli í tímans rás nefnir Haukur veislu sem hann hélt þegar hann varð fimmtugur, en þá starfaði hann sem formaður Stéttasrsambands bænda, forvera Bænda- samtakanna. Haukur hefur löngum verið á kafi í félagsmálastörfum, hann situr sem dæmi í sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps og er í augnablikinu formaður bankaráðs Landsbankans (NBÍ hf.). Hann er kvæntur Bjarneyju Bjarnadóttur og eiga þau þrjú uppkomin börn. silja@mbl.is Haukur Halldórsson bóndi 65 ára Man varla eftir afmælinu Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.