Monitor - 15.04.2010, Side 20
20 Monitor FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2010
fílófaxið
föstudagur
Hljómsveitirnar Retro Stefson og FM Belfast spila saman á
tónleikum á Nasa en það er ávallt rífandi stuð þegar þessar tvær
hljómsveitir leiða saman hesta sína. „Árni plús einn í FM Belfast
var að vinna í félagsmiðstöðinni okkar í Austurbæjarskóla þegar
við byrjuðum með Retro Stefson. Hann er frekar góður vinur okkar
og það er bara rosalega skemmtilegt að spila með þeim,“ segir
Þorgerður Roach Gunnarsdóttir, hljómborðsleikari Retro Stefson,
spurð út í upphaf vinskapar þessara tveggja hljómsveita en þær
hafa spilað talsvert mikið saman.
Þorgerður er eina stelpan í Retro Stefson en hún segir það ekki
breyta miklu. „Það er eiginlega bara mjög fínt. Það gefur mér frelsi
til að sleppa mér aðeins og hegða mér pínulítið eins og strákur
líka. Þeir kippa sér að minnsta kosti ekkert voðalega mikið upp við
þetta,“ segir Þorgerður sem hlakkar til sumarsins. „Við ætlum að
reyna að æfa mikið og spila mikið á tónleikum. Svo erum við að
fara til Svíþjóðar í maí að spila á lítilli bæjarhátíð og það á örugg-
lega eftir að verða geðveikt gaman.“
Skiptir engu
að vera eina stelpan
RETRO STEFSON TÓNLEIKAR
Nasa
23:30
16
apríl
BÍÓDAGAR
Regnboginn
14:00 Græna ljósið stendurfyrir Bíódögum, þriggja vikna
kvikmyndaveislu sem fer fram í Regnbogan-
um, þar sem sýndar verða alls 24 kvikmyndir.
39 ÞREP
Leikfélag Akureyrar
19:00 39 þrep, eða The 39 Steps,er nýlegur gamanleikur
eftir Patrick Barlow, sem byggður er á hinni
þekktu kvikmynd Alfreds Hitchcocks, eftir
samnefndri skáldsögu Johns Buchans. Í þessu
nýstárlega verki blandast saman spenna og
gamanleikur en sýningin þykir afar hröð og
spennandi. Þess má til gamans geta að leikar-
arnir fjórir í sýningunni, Atli Þór Albertsson,
Björn Ingi Hilmarsson, Jóhann G. Jóhannsson
og Þrúður Vilhjálmsdóttir, þurfa að bregða
sér í 139 hlutverk meðan á sýningu stendur.
Leikstjórn er í höndum Maríu Sigurðardóttur.
HELLISBÚINN
Íslenska óperan
20:00 Íslendingar kunna greinilegavel að meta þennan
vinsælasta einleik veraldar, en nú hafa 15.000
manns séð þessa uppfærslu af Hellisbúan-
um. Í þetta skipti er Hellisbúinn leikinn af
Jóhannesi Hauki Jóhannessyni.
ÚTSKRIFTARSÝNING
NEMENDALEIKHÚSSINS
Smiðjan
20:00 Nemendaleikhúsið sýnirlokaverkefni sitt, leikritið
Stræti eftir Jim Cartwright, einn af þekktari
samtímahöfundum Breta.
BRENNUVARGARNIR
Þjóðleikhúsið
20:00 Brennuvargarnir eru eitt affrægustu leikritum 20. aldar-
innar. Þetta er síðasta sýningin á verkinu að
sinni en á meðal leikenda eru Ólafía Hrönn
Jónsdóttir og Eggert Þorleifsson.
GAURAGANGUR
Borgarleikhúsið
20:00 Ormur Óðinsson og félagareru mættir aftur á fjalirnar í
þessu ástæla verki Ólafs Hauks Símonarson-
ar. Í þetta skipti er gauragangurinn í Borgar-
leikhúsinu og það ætti enginn að láta þetta
stykki framhjá sér fara. Aðalhlutverkið er í
höndum Guðjóns Davíðs Karlssonar en þess
má geta að tónlistin í verkinu var sérsamin
af hljómsveitinni Ný dönsk þegar leikritið var
sett upp í fyrsta skipti í Þjóðleikhúsinu.
EILÍF ÓHAMINGJA
Borgarleikhúsið – Litli salur
20:00 Eilíf óhamingja er sjálfstættframhald af verkinu Eilíf
hamingja sem sett var upp í Borgarleikhúsinu
árið 2007. Verkinu er lýst sem gamansamri en
beittri ádeilu á markaðshyggjuna. Handrits-
gerð er í höndum Andra Snæs Magnasonar
og Þorleifs Arnar Arnarssonar. Þorleifur
leikstýrir einnig verkinu en hann hefur getið
sér gott orð sem leikstjóri á erlendri grund,
nú síðast fyrir uppsetningu á Rómeó og Júlíu í
Sviss sem hlaut mikið lof.
LANDSLEIKUR
Í HANDBOLTA
Laugardalshöll
20:15 Tvö bestu landslið heimsmætast í Laugardalshöll
þegar strákarnir okkar mæta heims-, Evrópu-
og ólympíumeisturum Frakka í sínum fyrsta
leik eftir Evrópumótið í Austurríki.
MARGRÉT EIR
Í SÖNGLEIKJASTUÐI
Miðgarður, Skagafirði
20:00 Söngkonan Margrét Eir ferí ferð í kringum landið og
syngur lög úr söngleikjum á borð við Cabaret,
Les Misarables og Jesus Christ Superstar. Með
Margréti verða þeir Matti Kallio sem spilar
á píanó og harmónikku og Ágúst Ólafsson
barítónsöngvari.
ÚRSLIT MORFÍS
Háskólabíó
20:00 Verzlunarskóli Íslands ogMenntaskólinn við Sund
mætast í úrslitum þessarar gríðarlega
vinsælu ræðukeppni framhaldsskólanna.
Umræðuefnið er „fáfræði er sæla“ og búast
má við spennandi viðureign.
DIKTU-TÓNLEIKAR
Players
22:00 Strákarnir í Diktu mætaí Kópavoginn og alls ekki
óraunhæft að áætla að það verði fullt út að
dyrum miðað við vinsældir hljómsveitarinnar
um þessar mundir. Maggi Mix sér um að
skemmta gestum á milli atriða en Sing For
Me Sandra hitar upp.
Mynd/Jói Kjartans.