Monitor - 15.04.2010, Side 21
21
fílófaxið
FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2010 Monitor
„Það er náttúrlega bara
harmleikur, mjög harmrænt,“
segir Eggert Þorleifsson,
aðspurður hvernig það sé að
leika í verki sem fjallar um
nágrannaerjur sem snúast um
frosna kjúklinga. „Þetta sýnir
hvað maðurinn getur verið smár
í sniðum sem er náttúrlega
frekar sorglegt,“ bætir Eggert við
en aðsókn að verkinu sem er
sýnt í Þjóðleikhúsinu hefur verið
gríðarlega góð.
„Sýningin hefur gengið þannig
að það eru ekki til miðar fyrr en
í haust. Við höfum mjög gaman
af því vegna þess að þetta er
mjög vel skrifað og skemmtilegt
verk og svo eru allir með fínar
rullur,“ segir Eggert sem hefur
einnig leikið aðalhlutverkið í
Brennuvörgunum samhliða
Hænuungunum. Hann segir það
þó ekkert tiltökumál. „Svona er
bara bransinn á Íslandi.“
Harmleikur
að rífast um
kjúklinga
HÆNUUNGARNIR
Þjóðleikhúsið, Kassinn
20:00
laugardagur
SKOPPA OG SKRÍTLA
Á TÍMAFLAKKI
Borgarleikhúsið, litli salur
12:00 og 14:00 Tilvalin sýning tilað fara á með krakka enda
hafa Skoppa og Skrítla verið eftirlæti ungra
leikhús- og bíógesta undanfarin ár.
TÓNLEIKAR TÓNLISTAR-
SKÓLA KÓPAVOGS
Salurinn
13:00 Kennarar og nemendurTónlistarskóla Kópavogs
spila tónlist eftir Þorkel Sigurbjörnsson,
Oliver Messiaen, Atla Heimi Sveinsson,
George Crumb og Hilmar Þórðarson.
FÍASÓL
Þjóðleikhúsið, Kúlan
13:00 og 15:00 Fíasól í Hosiló ersprellfjörug sýning fyrir alla
fjölskylduna byggð á hinum geysivinsælu
og margverðlaunuðu bókum Kristínar Helgu
Gunnarsdóttur en sýningunni er leikstýrt af
Vigdísi Jakobsdóttur.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT
ÍSLANDS – LITLI TÓN-
SPROTINN
Háskólabíó
14:00 og 17:00 Litli tónsprotinn eráskrift að góðri skemmtun
fyrir alla fjölskylduna og gefur yngstu
tónlistarunnendunum einstakt tækifæri til að
kynnast töfrum tónlistarinnar á klukkutíma
löngum tónleikum.
LANDSLEIKUR
Í HANDBOLTA
Laugardalshöll
16:00 Tvö bestu handknattleiks-landslið heims mætast í
Laugardalshöll þegar Strákarnir okkar mæta
heims-, Evrópu- og ólympíumeisturum
Frakka í sínum fyrsta leik eftir Evrópumótið
í Austurríki.
GAURAGANGUR
Borgarleikhúsið
16:00 og 20:00 Ormur Óðinssonog félagar eru mættir aftur
á fjalirnar í þessu ástæla verki Ólafs Hauks
Símonarsonar. Í þetta skipti er gaura-
gangurinn í Borgarleikhúsinu og það ætti
enginn að láta þetta stykki framhjá sér fara.
Aðalhlutverkið er í höndum Guðjóns Davíðs
Karlssonar en þess má geta að tónlistin í
verkinu var sérsamin af hljómsveitinni Ný
dönsk þegar leikritið var sett upp í fyrsta
skipti í Þjóðleikhúsinu.
ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ
Í HNEFALEIKUM
Broadway
19:00 Íslandsmeistaramótiðí hnefaleikum hefst á
laugardagskvöldið með forkeppni en úrslitin
fara svo fram miðvikudaginn 21. apríl.
39 ÞREP
Leikfélag Akureyrar
19:00 39 þrep, eða The 39 Steps,er nýlegur gamanleikur
eftir Patrick Barlow, sem byggður er á hinni
þekktu kvikmynd Alfreds Hitchcocks, eftir
samnefndri skáldsögu Johns Buchans. Í þessu
nýstárlega verki blandast saman spenna og
gamanleikur en sýningin þykir afar hröð og
spennandi. Þess má til gamans geta að leikar-
arnir fjórir í sýningunni, Atli Þór Albertsson,
Björn Ingi Hilmarsson, Jóhann G. Jóhannsson
og Þrúður Vilhjálmsdóttir, þurfa að bregða
sér í 139 hlutverk meðan á sýningu stendur.
Leikstjórn er í höndum Maríu Sigurðardóttur.
GERPLA
Þjóðleikhúsið
20:00 Baltasar Kormákur leggurtil atlögu við meistaraverk
nóbelskáldsins, en Gerpla hefur aldrei áður
verið sett á svið. Með hlutverk fóstbræðranna
Þorgeirs Hávarssonar og Þormóðar
Kolbrúnarskálds fara Jóhannes Haukur og
Björn Thors.
OKIDOKI-TÓNLEIKA-
KVÖLD
Sódóma
21:00 Breski tónlistarmaðurinnTristram kemur fram á
tónleikunum en hann hefur fengið mikið lof
fyrir lagasmíðar sínar og söngrödd. Auk hans
spila Rökkurró, Miri og Nolo á tónleikunum
sem OkiDoki stendur fyrir.
SÁLARTÓNLEIKAR
Nasa
22:00 Sálin hans Jóns míns spilar ífyrsta skipti í langan tíma á
tónleikum á Nasa og búast má við miklu fjöri
eins og venjan er þegar þeir koma saman.
SAMKYNHNEIGÐUR
ROKKFISKUR
Sódóma
23:00 Haffi Haff stendur ísamvinnu við Sódóma fyrir
kvöldi með samkynhneigðu þema sem hefur
hlotið nafnið Rockfish.
17
apríl
EGGERT ÞORLEIFSON
RÍFST UM FROSNA KJÚLLA