Ísfirðingur - 15.12.1978, Blaðsíða 12
fSFIRÐINGUR
12
Ávallt fyrirliggjandi allar fóðurtegundir fyrir:
kýr, sauðfé, svín, alifugla og hesta. Auk þess
steinefnablöndur og saltsteinar.
SÍS-FÓÐUR FYRIR ALLAN BÚPENING
ÞÚ HEFUR ÞAÐ
í HENDIÞÉR
-góða fóðrun búpeningsins
gefirðu fóðrið fró okkur
Samband ísl. samvinnufélaga
Innflutningsdeild
Holtagörðum Rvík Sími 81266
Kaupfélögin
um allt land
almennilega kallaður „gamli
harði vetur.“ (Þessi vetur
hefur einnig verið nefndur
„Lurkur.“ Þá formyrkvaðist
sól og tungl um haustið fyrir.
í sjövikna fardögum var
genginn ís úr Steingrímsfirði
og á Vatnsnes. Á Hjalla-
sandi var sjaldan eða aldrei
á sjó komið um veturinn,
fram á mið var lagnaðarís.
Nær graslaust um sumarið.
Lögðust í eyði yfrið mikil
jarðagóss um allt landið. Þá
var ég 5 vetra. Um slikt ár
finnast engir annálar, síðan
landið var kristnað, að svo
hart hafi verið. í fardögum
var sjóís riðinn frá Kambs-
nesi að Skoravik í Hvamms-
firði.
Anno 1603. Vetur daða-
góður til veðráttu, svo fitn-
uðu peningar, þar þeir voru
eftir jól.
Aldrei hefur skeð hér á
landi slíkt mannfall sem þá
af hungri, svo það er ógnar-
legt, hvað fólkið hefur mér
þar af sagt, sem það mundi.
Það finnst prentað í einum
formála herra Guðbrands, að
600 fólks hafi af vesöld dáiþ í
Skagafjarðarsýslu. Þá voru
seld jarðagóss í landinu með
afföllum, og fengust þó ekki
seld sem þurfti. Þá var frá-
bær þjófnaður í landinu og
ránsháttur úr hófi. Hryggi-
legt er að heyra slíkt tilfelli,
sem þá skeði af hugnursneyð
í landinu. Þessi vetur í Þór-
hallaspá heitir Píningur.
Fólkið breiskti við eld sér til
matar bein úr haugunum og
forna skó, og annað þvílíkt.
Fiskur var þá og lítill við
sjóinn. Menn sumir sem til
sjóar fóru, höfðu ei annan
mat með ser, en steiktu
nokkuð af nautshúðum á
kveldum.
Anno 1604-1605. Veit ég
ekkert annálað, nema stórt
hallæri og þjófnaður.
Anno 1634. Vetur mjög
harður og graslítið sumar.
Þá gekk upp kringum landið
svo magur fiskur, að enginn
man slíkt. Þá var mannfall
fyrir norðan og sunnan.
Anno 1637. Sást niður úr
fiskleitum þeim djúpustu og
til lands, vestur fyrir vikum
og Tálknafirði, fertugt djúp,
sást hver gimburskelin og
kletturinn í sjónum. Mönn-
um sýndist á djúpinu svo
grunnt, að standa mundi
skipið, en þá var 35 faðmar,
þá rennt var.
Þá rak fyrst þá orma, sjó-
orma, sem sumir kalla hala-
fisk, undurmarga á Vstfjörð-
um, en síðan hefur rekið hér
og hvar um landið, einkum i
Vestfirðingafjórðungi undur
af þeim. Halinn á þeim var
sem akkersfleygur aftan,
kjapturinn mjög víður, með
öngum fram úr hausnum, og
þá í þá var tekið, duttu öll
innyflin fram um kjaptinn,
KAUPFÉLAG
DÝRFIRÐINGA
ÞINGEYRI
Öskar öllum viðskiptavinum sínum
og starfsfólki gleðilegra jóla og farsæls
komandi árs, og þakkar viðskiptin
á líðandi ári.
Koupiélag Dýrfirðingu
- ------i
Sjukrasamlag ísafjarðar
óskar öllum meðlimum sínum gleðilegra jóla
og farsældar og heilbrigðis á komandi ári.
Blaðið ísfirðingur
*
Oskar lesendum sínum og
öðrum gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs.
svo skrokkurinn var eftir
tómur.
Anno 1643. Spurðust
hingað stríðstíðindi fyrst. Þá
sá ég með 7 öðrum undar-
lega í loptinu fljúga manns-
mynd glóandi, gekk höfuðið
á undan, var mjög bjart, sást
í heiðviðri í sólskini um mið-
aftansskeið. Ég var þá stadd-
ur í Bjarneyjum.
Anno 1646. Góður vetur.
Lágu her um veturinn
Danskir á Stapa og þeir af
Vogaskipinu og á Patreks-
firði.
Þá var stirt vor fram að
hvítasunnu. Þá kom bati
með náttdöggum og þerrum.
Varð mikið grasár og nýttist
alstaðar vel hey, og mjög
gott sumar. Fiskiár gott og
nýttist vel. Æskilegt haust.
Þítt og þurrt vetrarfar hið
besta fram á jól, svo í manna
minni elstra hefur ekki svo
gott árlag verið.
Það sumar fyrir alþing
sást blóðlitur á Öxará tvisvar
sinnum af prstinum og
heimamönnum á Þingvelli.
Item 2 stjörnur, óvanalegar,
um hautið i fullu austri,
bjartar.
Þá kom út á Evrarbakka
allur viður til Skálholts-
kirkju á því sumri. kostaði
500 dali.