Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1965, Blaðsíða 4

Skólablaðið - 01.04.1965, Blaðsíða 4
- 146 - kollhnís, Þegar viÖ streymum frá skóla- husinu eftir einn mánuð, þá skulum við brjóta allar klukkur, ur og pendula, henda brotunum át 1 hinztu myrkur, gefa ís- lenzkum atvinnupostulum og moldarsnobb- urum langt nef og stinga okkur á bólakaf í* sultukrukku sumarsins og koma ekki upp aftur, fyrr en 1 haust. Afmæliskveðja til Skólablaðsins Háttvirta Skólablað ! Nemendur og kennarar Menntaskólans 1 Reykjavik óska þér innilega til ham- ingju með afmælið og þakka þér fyrir allt gamalt og gott, ( hinir siðarnefndu þó sérstaklega, því* að þeir hafa ætí*ð fengið þig ókeypis). Að lokum tókst þér að afplána fjórða tuginn. Raunar er þetta ekki ýkja hár aldur, ef miðað er við The Observer, en þvert á móti heil eilíífð, ef við tökum Busann til samanburðar. Ég veit, að þú ert svolítið montið, þó að þú látir ekki á því* bera, farir ekki einu sinni í spari- fötin og setjir upp hátíðarsvip, enda ertu af góðu fólki komið og hefur ekki kynnzt öðru en hlédrægni og auðsveipni her 1 gamla Þjóðfundarhúsinu. Það er ekki laust við, að ég öfundi þig svolítið af aldrinum. Mannlífinu er nú svo háttað, að innan við tvítugt er sumt bannað með lö^um ; þegar æskan er horfin og full- orðinsarin taka í taumana telst sumt vera barnaskapur ; þegar ellinni er náð, þa er vesalings mannskepnan siðferðilega seð of gömul til þess að geta leyft sér ýmsa a- nægjulega hluti. En ég held, að þu sert a bezta aldrinum, ÞÚ mátt kyssa Bakkus, an þess að íslenzkt réttarfar kollste'jyist. Þu mátt fara á dansleiki og veitingahus. Þu mátt vinna að hentisemi, og í* þokkabot get- ur þú orðið ástfangið að lögum, og það eru sannarlega ekki einskisverð forrettindi. En, - ef til vill get ég einnig orðið fertug- ur, og þá verður J?ú á sjötugsaldri og svo gamalt og hrukkott, að þú þarft ekki að ganga með nafnskí*rteini upp á vasann, þvert á móti treysta því* allir leynilöj*- reglumenn, að þu segir rett til um hara- lit og afmælisdag. Og þa hafa aðrir spjátrungar tekið við ritstjórn, ungir Menntaskólanemar, sem eru hundeltir af íslenzku ríkisvaldi og syngja um "stud- entens lyckliga" dag yfir glasi af fjör- efnaauðugri, gerilsneyddri og fitusprengdii mjólk og verða að sanna heiðarleik sinn með vottorði frammi fyrir úslenzkum "Guardia Civil". Þá verðum við hin ráð- settir ríkisborgarar, sem líða vegna þeirra fórna, er þeir færðu djöflinum, áð- ur en þeir náðu lögaldri. En sleppum því*. Fjörutíú ár eru ekki langur tími fyrir hinu ritaða orði, en samt sem áður er margs að minnast, ef litið er um öxl og hugað að fornum kynnum. ÞÚ hefur tek- ið við grátbólgnum hrákasmúðum ungra skáldfifla, án þess að verða óglatt, og kynnt jpær glaðværum æskulýð, sem fékk aftur á móti illt í* magann. ÞÚ hefur lát- ið sérvitra myndlistarmenn krota í* þig ljótar rispur, leyft hrokafullum "ung- diplómötum" að sletta þig út í* bleki, og síðast en ekki sizt beygt þig undir lelega ritstjórn ótal ritstjóra, sem gengu inn a sviðið fullir sjálfstrausts, en uppgötvuðu svo allt i einu, að þeir kunnu ekki rull- una sína. ÞÚ hefur rækt hlutverk þitt af prýði í öll þessi fjörutíú ár, og ég vona, að svo verði í* næstu aldir, unz menn eru hættir að skrifa og tendra eld með tinnu. Kveðjuorð í vetur hafa komið út fimm tölublöð Skólablaðsins, misjöfn að gæðum og gáfnavúsitölu, en hafa öll sameiginlegt, að þeim hefur yfirleitt verið illa tekið, og fáir munu leggja sig í líma við að þakka ritnefnd hennar starf. Þegar ég smalaði á fyrsta ritnefndarfund í* haust, stóð meira til, og áætlunarskipulagning mún var margþætt og tók hálfa stilabok, skrif- uð fíngerðri hönd í hverja linu. En þessi kompa var aldrei notuð. Þegar ég fletti blöðunum, finnst mer raunar alveg stór- furðulegt, hvernig okkur tókst að vöðla efninu saman og gefa út blað hér í Menntaskolanum, þar sem enginn virðist hafa tíma aflögu til að skrifa og þeir sarafair, sem bera löngun til slxkrar dægradvalar. En sökin er ekki öll nem- enda. Því* miður er staðreynd, að sam- vizkusamur og námfús Menntskælingur er svo önnum kafinn við heimavinnu og glósuþrælkun, að honum er beinlínis of- viða að taka verulegan þátt í* felagslí*fi. Frh. á bls. 160.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.